Nýtt kirkjublað - 15.02.1909, Page 4

Nýtt kirkjublað - 15.02.1909, Page 4
44 NÝTT KIRKJUBLAÍ) „Getum vér baldið áfram bræðrafélaginu?11 Svo spurðu allir sjálfa sig. En það var svo eftir að leysa hnútinn. Mikið lán var það að enginn ílokkadráttur var til í Bræðrasöfnuði Hér var um enga mótstöðumenn að ræða, að eins um menn með öðrum skoðunum. Ekkert var heldur annað en gott að segja um |)á ungu guðfræðinga, sem komu frá Gnadenfelds prestaskóla. Til samkomulags studdi það og eigi lítið, að enginn eíi var á, að heilög ritning var hinum' nýju guðfræðingum nú enn kærari en áður. Árangurinn af þessum bróðurlegu umræðum var sá, þrátt fyrir hinn mikla skoðanamun, að bróðurbandið tengdist enn fastari böndum en áður Báðum stefnunum var ]iað fullljóst, að rígbindandi trúarjátning kæmi eigi að tilætluðum notum. Að rígbinda væri sama sem að skilja, slíta bróðurbandið, sem Jesús hefði bundið og til þess hefðu þeir ekkert leyfi. Með þetta fyrir augum feldi synódan allar uppástungur í þá átt að herða á jálningar ófrelsinu. Sú uppástunga var og feld með miklurn atkvæðamun, að fella niður prestaskól- ann og korna guðfræðingaefnum á rétttrúnaðarskóla annarstað- ar, en samþykt tilkynning til safnaðanna svo hljóðandi: „Á kirkjuþingi voru i ár hefir til umræðu komið guðtræði sú sem kend er við prestaskóla voru. Eu lof og dýrð sé guði að umræður þessar hafa farið mjög friðsamlega fram. Augljóst hefir það orðið, að ýmsar guðfræðisskoðanir ríkja í söfnuðnm vorum, sem eDgin leið virðist til, að svo komnu, að geti þýðst hver aðra. Kirkjuþingið finnur sig því í miklum vanda statt. Umræðuruar hafa leitt i ljós, að hér er um enga mannlega hjálp að ræða. Ilið eina sem vér getum gert, og eigum að gera, er að treysta drott- ins hiálp, og fyrir því biðjum vér af heilum hug og hjarta alla vora bræður og systur, að bera þessa neyð f'ram fýrir guð i bæn- um sínum og þreytast ekki, svo að söfnuðir vorir bíði ekki tjón af þessu, heldur snúist þeim til blessunar.“ Jafnframt þessu samþykti kirkjuþingið, að bera meiri um- hyggju fyrir ungum guðíræðingum en áður befði verið gert, og séð yrði um, að þeim gæfist kostur á að kynnast guðfræð- isstefnum annara skóla. Mörgum kann að finnast þessi málslok ófullnægjandi — segir fréttaritarinn. — En sá, sem verið hafði sjónar og heyrn- arvottur, gat ekki varjst þeim áhrifuni að málslokin voru guðs

x

Nýtt kirkjublað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.