Nýtt kirkjublað - 01.09.1910, Blaðsíða 1
NÝTT KIRKJUBLAÍ)
HÁLFSMÁNAÐARRIT
FYEIE KEISTINDÓM OG KEISTILEGA MENNING
1910
Reykjavik, 1. sept.
17. blað
leim að Sólum.
Það var Norðlendingum harmur mikill er biskupsstóll,
skóli og prentsmiðja voru flutt frá Hólum um næst-síðustu
aldamót.
Eg man gamla Skagfirðinga í æsku minni, er varla máttu
óklökkvandi á það minnast.
En Hólar lifðu í endurminningu Norðlendinga sem höfuð-
ból alls Norðurlands. I öllum Skagafirði og eg má segja víð-
ast hvar á öllu Norðurlandi var jafnan sagt „Heim að Hólum.“
Málvenjan sú átti ætt sína að rekjatil Hóladýrðarinnarfornu.
Það jmtti jafnvel töluverður frami ungum mönnum að
hafa komið „Heim að Hólum“ og séð dómkirkjuna með altar-
isbríkinni miklu, krossmarkinu og biskupamyndunum, annað
þá ekki eftir af Hóladýrðinni fornu.
Á hverju sumri reið fjöldi fólks úr Skagafirði til Hóla-
kirkju, það voru nokkurs konar pílagrímsferðir til hins forn-
helga staðar.
En svo fór eg úr Skagafirði að ekki kom eg „Heim að
Hólum“, en oft hafði mig langað til þeirrar farar.
Og sannast að segja hefir mér síðan eg komst á þroska-
árin þótt hálfgerð minnkun að því, að hafa ekki komið „Heim
að Hólum“ og ógjarnan viljað láta það vitnast um mig sem
gamlan Skagfirðing.
Endurminningin um Hóla hefir verið mér því kærari sem
eg hefi kynst betur sögu ])eirra alt frá þeim tíma, er Illugi
Bjarnason varð til þess „sakir guðs og nauðsynjar heilagrar
kirkju“ að gefa þessa föðurleifð sína til biskupsstóls á Norð-
urlandi.