Nýtt kirkjublað - 01.09.1910, Qupperneq 6

Nýtt kirkjublað - 01.09.1910, Qupperneq 6
198 NÝTT KIRKJUBLAÐ drottinn reisa hina fyrstu kirkju landsins. Þar stóð vagga hinnar íslenzku kirkju, — og færb upp á jiessar hæðir, gjörb- ist hér höfuðból guðsríkisstarfsins hjá þjóð vorri um aldaskeið, að minsta kosti fyrir Norðurland. — Og fólkið, — það streymdi hingað heim. Lotning, djúp og innileg lotning fyrir vorum algóða guði og frelsara, er vitjaði feðra vorra og kallaði einnig til þeirra úr ljósinu bjarta, ætti að verma hvers nianns hjarta. Yirðing, inniieg virðing hlýtur og að búa í sálum vorum, virðing fyrir öllum hinum góðu drottins lærisveinum, er hér hafa prédikað Krist og hann krossfestan, fyrir öllum sem ráku hans erindi af trú og dygð, öllum, sem þektu sína köllun og ræklu hana, öllum, sem kölluðu úrval æskulýðs sinnar sam- tíðar hingað heim, og sendu sveinana héðan heiman að út í þjóðlífið, mentaða i lífsins æðstu fræðum. Þökkum guði fyrir sérhvert sanngott verk, er hann studdi vora feður til að vinna á þessum stað, fyrir hvert eitt ljós, er héðan hefir lýst út yfir þjóðina, og inn í einstaklinganna hjörtu. . . . Gleymið ekki hinum horfnu kynslóðum, og lítilsvirð- ið ekki störf þeirra fyrir nútíðina. Rætur yðvars lífs liggja í liðnum öldum, horfnum kynslóðum. Reynið ekki að slíta yð- ur lausa frá rótinni. Tré, sem er höggvið frá sinni rót, ligg- ur dautt á jörðinni. Þannig er hver einn maður, sem hygst að losa sig úr andlegu lífssambandi við fortíðina. Því fortíðin geymir í skauti sínu hina gæzkuríku og glöggu opinberun guðs í Jesú Kristi, hið dýrðlega, óviðjafnanlega fagnaðarerindi drottins vors Jesú Krists, sem hefir sýnt sig lífskröftugt í sál- um svo margra fyrirrennara voi'ra, og gjört hina beztu þeii-ra að starfsmiklum mönnurn í guðs riki. . . . Hér er verk til að vinna. Hver efast um að svo só? Fyrir allra sjón er þörfin þúsundföld, þörfin fyrir guðs- ríkisstörf hjá vorri þjóð. Og ekki dreg eg í nrinsta efa, að vér allir i rauninni viljum eitt og hið sama, viljum lyftast upp og lyfta öðrum upp á sólbjartar hæðir lifandi og lífgandi, gleðjandi og huggandi, styrkjandi og svalandi evangeliskrar kristilegrar trúar, viljum hjálpa öllu hinu góða og göfuga, öllu hinu veika og ósjálfbjarga, viljum koina öllu hinu guði velþóknanlega upp í öndvegissess andlegrar tignar hjá þjóðinni yorri. — Vér viljum af hjarta etla guðsríki í sannleika, — en

x

Nýtt kirkjublað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.