Nýtt kirkjublað - 01.09.1910, Síða 7

Nýtt kirkjublað - 01.09.1910, Síða 7
NÝTT KIRKJUBLAÐ 199 hvað getum vér? Getum ekkert, en getum þó alt. Á því er víst enginn efi, að vér finnum nú sem jafnan vel til fiess, að getan vor til sérhvers góðs verks er viljanum miklu smærri. Af mannlegum mætti verður hér harla litlu til vegar komið, hvað sem allri hinni lofsverðu menningu og mentum nútimans líður, pví ekki eru mennirnir, alment talað, bjartara Ijós en })eir verið hafa frá ]iví er „heimsins ljós“ birtist. En svo er enn sem fyr, að með drottins hjálp megna mennirnir að gjöra undursamlega hluti, og að leysa af hendi mikil og góð verk í guðsríki. — Eins og postulinn þarf hver og einn að geta sagt. „Alt megna eg fyrir hans kraft, sem mig styrkan gjörir." . . . Þessar eru vonirnar vorar, vonirnar um sigur hins góða og eflingu guðs rikis á meðal vor. — Sá algóði guð og faðir, sem hefir fyrir soninn veröldina skapað, mun halda því áfram, að leggja alt undir hans vald og dóm, svo að hans dýrð aukist og eflist eilíflega meðal mannanna barna, eins og hann sjálfur, blessaður frelsarinn vor, jók dýrð föðursins, og opinberaði oss alla hans óumræðilegu föður gæzku, um leið og hann endurleysti oss frá valdi hins illa. — Að hreinn evangeliskur kristindómur, með öllum sínum helgandi krafti, verði sívaxandi eign þjóðar vorrar, og auðgi hana að beztu gæðunum, sannkristilegri trú og siðgæði, til ó- metanlegs gagns fyrir alda og óborna. — Það eru vonirnar vorar. Að koma vor hingað heim, og samstarfið vort þessa dag- ana verði guðs blessaða ríki hjá oss til eflingar, og að guð vilji vera með oss i öllu slíku starfi. — Það eru vonirnar vorar. Vér lifum á samvinnuöldinni. Á svo mörgum svæðum lífs vors er gildi og mikil þýðing samvinnunnar viðurkend. En ef svo er á lægri svæðunum, hvað þá á hinum æðstu, hvað þá í sjálfu guðsríkisstarfinu. Öll samvinna verður að grundvallast á kærleika. — Sainvinna í kristilegum bróður- kærleika þarf að aukast og eflast í vorum kristilega kirkju og safnaðarfélagsskap, — samvinna milli presta innbyrðis, og samvinna milli presta og safnaða, — samvinna fyrir ríki drottins vors Jesú Krists. — Hver maður, sem tekið hefir

x

Nýtt kirkjublað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.