Nýtt kirkjublað - 01.09.1910, Side 15
________KÝTT RTRK.TUBLAÐ 20?
Biskupsvíg’slan
ior fram í Reykjavík, en ekki í Skálholti, 28. f. m. Jens prófastur
Pálsson lýsli vígslunni, en séra Jóliann dómkirkjuprestur Þorkelsson
var fyrir altari. Hinir vígsluvottarnir voru lektor séra Jón Iíelgason
og dósent séra Eiríkur Briem. A undan og eftir vígsluathöfninni voru
sungin Ijóðin sem Valdimar biskup kvað við biskupsvígsluna fyrir 2
árum og Sigfús tónskáld Einarsson setti lögin við. Alls voru við 16
prestar herapuklœddir i kór. Úr Arnessýslu kom auk vígslubiskups
og séra Olafs sonar bans, þeir séra Gísli á Slokkseyri, séra Jón á
Þingvölluin, séra Ólafur i Arnarbæli og séra Ólafur i Hraungerði. Úr
Kjalarnesþingi voru auk prófasts þeir séra Árni á Kálfatjörn, séra
Magnús a Mosfelli og séra Þorsteinn aðstoðarprestur Briem. Hinir
Reykvikingar.
Yflrreið biskups.
Hún stóð yfir fullar 3 vikur eftir prestafundinn á Hólum og voru
24 kirkjur vísíteraðar, meiri hlutinn af kirkjunum i Skagafiiði og í
austur hluta Húnavatnsprófastsdæmis og vesturhluta Eyjafjarðar. Bisk-
up prédikaði á Holtastöðum í Langadal, á Siglufirði og Grund í Eyja-
firði þessa 3 sunnudaga sem hann var á ferðinni.
Gruudarkaleikurinn.
Magnús bóndi Sigurðsson á Grund í Eyjaíirði lýsir það rangliermi,
sem stóð í N. Kbl. 1906, 3. tbl. að kaleikurinn góði hafi verið gefinn
Vfdalínshjónunum.
Magnús margneitaði að farga kaleiknum, en fyrir vináttu sakir
lét hann loks til leiðast, að þau hjónin geymdu kaleikinn hjá sér,
en að þeim fráföllnum kæmi hann aftur til Grundarkirkju, og skyldi
vandlega gengið frá því að eigi brygðist, og fastmælum bundið að eigi
mætli láta kaleikinn fara í nokkurn annan stað.
Svo sem frá var skýrt í N. Kbl. 1908 17. tbl. er Grundarkaleikur-
inn nú kominn á Forngripasafnið, ásamt mörgum öðrum góðum gripum
úr Vidalínssafni, og er hætt við því að eigi sé svo vel frá láninu á
honum gengið, — mun ált hafa verið munnlegt, — að hann náist aftur
til Grundarkirkju, vilji safnið halda.
Guðbrandarbiblíau frá Hálsi.
Biblía Guðbrandar með áritun hans og i ágætu standi var seld frá
Hálsi i Fnjóskadal fyrir einum sjö árum síðan, án biskups leyfis og
enda í forboði lians, og komst Landsbókasafnið eigi að kaupum ; vurð
of seint. Nokkur rekstur varð úr því og málaleitun að fá bókina endur-
keypta, og hefir Eiríkur meistari Magnússon nú i það gengið, og feng-
ið yfirlýsing eigandans um það, að bókin sé föl landinu fyrir sama verð
og eigandinn gaf fyrir hana, 25 pund eða 450 kr.
Bókin .var seld enskri konu, er ferðaðist um Norðurlnnd, fyrir 18
pund eða 270 kr., þó gengu 30 kr. frá verðinu tyrir kostnnði, og i árs-
lok 1905 fær kirkjan inn i reikning sinn biblíuverðið 239 kr. 75 aurci.
Nú á bókinu Mrs Bannon i Lundúnum.