Nýtt kirkjublað - 15.01.1911, Side 1
NYTT KIRKJUBLAÐ
HALFSMANAÐARRIT
lí’YRIR KRISTINDÓM OG KRISTILEGA MENNING
"xAAA.sAy-
1911
Reykjavik, 15. jan.
2. blað
■nn að barnshjartanu.51
Eftir síra Jónas kennara Jónasson.
I.
Þegar eg kom úr prestaskólanum fyrir 27 árum, gekk eg
þegar út i prestskapinn, og fanst þá helst að eg væri ekki vit-
andi vits í neinu, sem til þeirrar vandasömu stöðu heyrði, og
þó einna síst i þeirri grein, þegar til kastanna kom, að upp-
fræða börnin í kristindómnum. Eg var mörg ár að átta mig
á þessu. Eg tann að þarna lá tvent fyrir og hvorttveggia
nokkuð fjarskylt.
Annað var það, að koma inn í börnin svo miklu sem
auðið varð af þessari andlegu seglfestu af þungskildum trú-
árlærdómum og reyna að útskýra þá eftir ])ví viti og lagi,
sem guð hafði gefið mér til þess, svo langt sem það náði.
Hitt var það, að reyna svo út frá þessari undirstöðu að
komast inn á börnin og Ieiða hjörtu þeirra og huga til guðs.
Og vegurinn til þess átti að vera sá, að láta þau læra utan-
bókar sand af dogmatískum hugmyndaskýringum, sem þau
skildu ekki upp né niður í. Þetta átti svo eftir megni að nota
til þess að skýra fyrir þeim afstöðu þeirra í lífinu sem guðs
börn og erfingjar hans heilaga ríkis.
Þetta vildi ganga heldur en ekki misjafnt. Sum börn voru
fermd svo, að eg var þess fullviss, að þau skildu ekki upp
né niður í megininu af kverinu, þó að þau kynnu það vel og
* Síra Jónas œllaði að halda fýrirlestur pennan á prestastefnunni
á Hólum síðastliðið sumar, og átti íýrirlesturinn uð vera inngungsrœða
í kristindómsfrœðslumálinu. En svo varð sira Jónas lasinn, og gaf
eigi sótt fundinn.