Nýtt kirkjublað - 01.03.1911, Page 7

Nýtt kirkjublað - 01.03.1911, Page 7
NÝTT KIRKJUBLAÐ 55 næst kendu Lúterstrúarmenn, að Kalvínstrúarmenn gætu ekki hólpnir orðið fremur en Tyrkir og heiðingjar, ]ivi aS þeir hefSu ekki hina einu réttu sáluhjálplegu, þ. e. lúterska trú. Einn mikilsmetinn rétttrúaSur guSfræSingur þrengdi svo um hjálpræSis-möguIeikann, að hugsunarrétt afleiSing af skoðun hans varð sú, að eiginlega gætu ekki aðrir hólpnir orðið en rétttrúaðir guðfrœdingar. Vér hrosum að þessu og öðru eins, en það er þó miklu grátlegra, en það er hroslegt, því að afarmikið ilt hefir af þessu leitt innan kristninnar, og það hefir hrundið fjölda manna hurt frá kirkjunni, sem annars hefðu verið henni vinveittir. Og vill ekki brydda á þessu sama enn í dag hjá fjölda kristinna manna? Menn hlífa sér ef til vill við að segja, að þeir menn, sem halda frani annarlegum skoðunum, bein- línis glatist, en þeir tala um þá sem „vantrúaða menn“ óendur- fædda menn, fjandmenn krossins Krists, sem hér kemur í sama stað niður, því að sjálfsögðu er gjört ráð fyrir öllum slikum sem glötunarinnar börnum, ef þeir ekki snúi sér. Hvernig tala menn ekki t. a. m. um Unítara sem eina hina örgustu vantrúarmenn. Mér dettur í hug sálmurinn, sem ef til vill oftast allra sálma er sunginn á þessum stað: „Hærra minn guð til þín!“ Er nokkur hér inni, sem getur trúað því, að höfundur þessa sálms sé útskúfunarinnar barn? Nú vel! Konan, sem orti þennan sálm lifði og dó sem únítari. [Meira.] j H Safnaðarsöngurinn i kirkjunum. Þegar eg las greinina hans Brvnjólfs gamla frá Minna- núpi um „Húslestrana“ í 1. tbl. N. Kbl. þ. á., og það sem hann þar segir um sálmasöng við húslestra, eða réttara sagt sálmasöngsleysið nú orðið, þá datt mér í hug hluttaka safn- aðarins í sálmasöngnum við messugjörðir. A hverjum einasta safnaðarfundi um mörg undanfarin ár hefi eg gjört hluttöku safnaðarins í sálmasöngnum að um- talsefni. Eg hefi sýnt mönnum fram á, að sálmasöngurinn sé einn aðalþáttur guðsþjónustunnar, að sá sem ekki fylgist

x

Nýtt kirkjublað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.