Nýtt kirkjublað - 01.03.1911, Page 9
NÝTT KIRKJUBLAÐ^ 57
f iíra iddur iigfús iíslason.
F. í Reykjavík 8. apríl 1836. — D. í Winnipeg 10. janúar 1911.
Andlátsfregn síra Odds, vestan um haf, vekur hlýja hug-
arstrauma í mörgu brjósti heima á ættjörð hans.
„Heimskringla“ minnist hans rækilegast, segir að hann hafi
verið gáfumaður, gleðimaður og glæsimaður. Fyrsta lýsingar-
orðið er varla rétt, að því alment er skilið. Hugsjónamaður
var hann flestum meiri. Yonar og kærleiksmaður var hann.
Hann var yfirburðamaður að fjöri og kappi, mesta karlmenni
í öllum svaðilförum á sjó og landi. Mesta braskaramenni
landsins um hríð, ef valið er orðið af lakari endanum. En
minst var það sjálfum honum til peningasláttu.
Hún er einkennileg æfisagan hans í vígslubókinni. Fim-
tán ár líða frá því hann útskrifast af prestaskólanum 1860
þangað til hann vígist að Lundi 1875. Um þessi 15 ár seg-
ir síra Oddur i æfisögubrotinu, að það hafi verið aðalmark
sitt og mið að bæta hag manna við sjávarsíðuna sunnan
lands. Og því verkinu heldur hann áfram i prestsstöðunni í
Grindavík með „Sæbjörg" og bjargráðaferðum sinum. Ótal
margt hafði hann með höndum þessi árin og er vikið að ýmsu
í æfisögunni. Alt hnígur þó að þessu verki, og andlega starf-
ið er í og með: I sömu 6 línum ei tvinnað saman á vondri
latínu að hann hefir fengið verðlaun fyrir gufubrætt þorska-
lýsi suður í Bologna og unnið fyrir Kristilega smáritafélagið
í Lundúnum.
Þjóðkunnur var Oddur Gíslason þó áður en hann varð
prestur, og eigi sist fyrir brúðarránið, er svo miklar sögur
gengu af í bréfum og tali um land alt, en blöð fóru þá lítt
með slíkt efni. Engan mann hefi eg heyrt tala jafn-innilega
um konu sína og síra Odd. Það eina sem mér fanst angra
hann í fátæktarbaslinu var það, að Anna hans ætti svo miklu
lakari daga en hún ætti skiiið, sú góða kona.
Börnin voru afar mörg — 15 sé eg talin. Húsakynnin
smá og léleg á Stað í Grindavík. En þá sagði séra Oddur
sér léttast um ræðusamning, er ekki heyrðist orðaskil fyrir
hávaða í börnunum og ein þrjú eða lleiri væri upp um hné
og herðar pabba síns.