Nýtt kirkjublað - 01.03.1911, Qupperneq 10

Nýtt kirkjublað - 01.03.1911, Qupperneq 10
58 NÝTT KIRKJUBLAÐ Sjálfur réri hann vertíðina í Grindavík. Afbrigða for- maður, hefir maður sagt mér sem hjá honum var. Breitt var á, ef einhver kom að sækja prestinn. Einn var liann tíðast á sinum mörgu vetrarferðum um eyðimerkur-hjarnið yfir Vellina og Almenninginn, hvernig sem viðraði. Man eg hvað hann lýsti ])ví ástsamlega glaður, er hann kom til mín sem oftar, nýstiginn af hestbaki: Hann var að deila verðinum með sér og Bleik sinni (,,Freyju“), og ])á kom að ]>eiin stór hópur snjótitlinga, og hann gat mettað ])á alla: „átu nærri ])ví úr hendi minni.“ Um hagi síra Odds vestra veit eg ekki mikið fram yfir það er séð varð af blöðunum. Hann átti lengst af við örðugleika að stríða. Islensk hjón að vestan sem hér voru í kynnisför fyrir einum tveim sumrum sögðu mér af honum, ferðaflakki hans og lækninga-viðleitni, og blessuðu þau hann af öllu hjarta fyrir manngæsku hans. Síra Oddur ílýði fátæktarbaslið hér. Hann var auðvitað of veraldarvanur til að gera sér gyllingar, er hann fór: „Um- skiftin verða þá þau að fara úr grásleppunni í hvítfiskinn,“ man eg hann sagði við mig skömmu áður en við kvöddumst. „Heimskr.“ getur þess afburðadugnaðar hjá síra Oddi á áttræðisaldri, að hann hafði undanfarin ár aflað sér Jieirrar þekkingar eða aukið hana svo, að hann rétt áður en hann andaðist hafði fengið skírteini urn það að læknafélag Banda- ríkjanna viðurkendi hann meðlim sinn. —- Blaðið bætir því við, að nú „virtist sira Oddur eiga góða framtið í Winnipeg.“ Þetta var hann húinn að berjast við í 50 ár og þá kom dauðinn. Síra Jón Bjarnason jarðsöng hann, og minnist hans hlý- lega í janúarblaði „Sameiningarinnar11. Einn vonardraumur var sá hjá hinum hrausta og fjöruga öldung, að geta komið heim og geta litið ættjörðina og ást- vinina sem hann átti eftir hór. Kveðjuorð á eg frá honum í bréfi, frá síðustu islensku höfninni, sumarið 1894 — skipið fór norður fyrir: „Kveð eg yður og konu og börn elsku kossi. Drottinn vor og Frelsari varðveiti ástvini vora. 0, elsku hróðir! Lát- um oss elska hann, ]iví hann elskaði oss að fyrra bragði.

x

Nýtt kirkjublað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.