Nýtt kirkjublað - 01.03.1911, Blaðsíða 11

Nýtt kirkjublað - 01.03.1911, Blaðsíða 11
NÝTT KIRKTUBLAÐ 59 Að lifa í honum eins og börnin lifa í elskulegum foreldrum. — Það er indælt. Hvílum öll i honum, og ]oá er oss rótt.“ pvcrnig d eg að fara að? Smásagii úr daglegu líti. Á einum af útkjálkum landsins var síðast á næstliðinni öld prestur einn, Brandur að nafni. Brauðið var rírt, klerkur- inn snauður að öllu öðru en krökkum. Lítill var liann kenni- maður og enn minni sálusorgari. En hann var meinhægðar- maður, og kom sér því heldur vel við sóknarmenn sína, enda voru þeir honnm ávalt drengir í raun. Síra Brandur Iiafði þann kost, að hann var oftast ánægð- ur með hag sinn og íurðaði það suma, en þó bar við að út af því brá. Kom það stundum fyrir að hann iðraði þess að hafa gjörst prestur, því honum fanst hann sáralítið gagn gjöra söfnuðinum með prédikun sinni, en út yfir tók þó þegar menn, sem stundum bar við, leituðu hjá honum huggunar og hjálpar í andlegum eða veraldlegum bágindum. Þá var oft- ast komið að tómum kofunum hjá presti; einkum stóð hann ráðþrota ef sálin var hrygg eða menn báðu hann um ráð gegn ofurmegni freistingar og syndar. Þegar best lét grot hann með grátendum, en þeir voru, seni nærri má geta, litlu bættari, og þegar hann grét með grátendum, grét hann öllu fremur yfh' sjálfum sér en þeim, grét yfir því hve ónýtur verkamaður haun var í víngarði drotlins. Mesta ánægju hafði hanu af að húsvitja og gjörði það oftast rækilega, enda báru menn þá helst upp vandkvæði sín, fyrir honum, og þó það kæmi oftast fyrir lítið, hættu menn því ekki. Einu sinni sem o'tar var hann að húsvitja um vortíma. Tíðiu var góð en yfirferð ill. Prestur fór sér því hægt og bar ýmislegt á góma á bæjunum, helst þar sem fá voru börnin. Hann var vanur að gista á Gili og brá nú ekki þeim vana. Bóndinn þar, Guðmundur, var góður kunningi hans.

x

Nýtt kirkjublað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.