Nýtt kirkjublað - 01.03.1911, Qupperneq 12

Nýtt kirkjublað - 01.03.1911, Qupperneq 12
60 NÝTT KIEKJUBLAÐ Þegar prestur hafði spurt börnin, fór hann út i hlöðu til bónda að spjalla um tíðina, skepnuhöldin o. s. frv. Þegar þvi var Iokið mælti bóndi: „Verða mörg börn fermd í vor?“ „Eg veit ekki hvort þau verða þrjú eðafjög- ur“, svaraði prestur, „mér er um og ó, hvort eg á að ferma hann Esekíel Daníel, hann er svo dauðans skilningslítill, en eg sé nú á morgun hvort hann hefir nokkuð batnað síðan í haust.“ „Honum hefði ekki veitt af að heita eftir öllum stærri spámönnuuum ef hann hefði átt að hafa meðalgáfur" sagði bóndi. „Ætli hann hafi ekki fult í fangi með að bera nöfn þess- ara tveggja“ sagði prestur. „Það held eg nú reyndar“ sagði bóndi nokkuð alvarlega, „annars hafði eg ásett mér að tala dálítið við yður um þann dreng.“ „Hvað er það?“ sagði prestur. „Hann hefir komið hér stundum í vetur,“ mælti bóndi, „og mér líst ekki á háttsemi hans.“ „Er hann orðljótur?“ spurði prestur. „0 nei, ekki til- takanlega, en hann er varla ráðvandur; oftar en einusinni hefir sitthvað smávegis horfið hér þá daga, sem liann hefir komið, og grunar mig að það sé af hans völdum.“ „Hafið þér nokkuð haft orð á þessu,“ sagði prestur. „Nei,“ mælti bóndi, „við hjónin álitum réttast að draga það þangað til þér kæmuð í vor.“ „Það var vel gjört,“ sagði prestur, „eg skal tala við drenginn á morgun, en þér skulið ekki láta á neinu bera fyrst um sinn.“ Daginn eftir húsvitjaði prestur á Þverá; þar var Esekíel Daníel smali. Hann kunni kverið sæmilega, en stirt var honum um öll svör þegar út úr því var spurt. Biblíusögum var hann aíleitur í. Það var gamla lagið. Húsbóndi hans spurði hvort hann mundi „komast áfram“ um vorið, en prestur hvað það óvíst. Um leið og prestur fór, spurði hann bónda hvort hann gæti lofað Esekiel Daníel að fylgja sér svo sem hálfa bæjarleið til að bera töskuna sína, og var það velkomið. Næsti bær var að Nesi, stendur hann innanvert undir nesmúla einum. Má þaðan sjá langt út á sjó, en næst fyrir landi eru sker og smáhólmar. Þeir prestur og fylgdarsveinn hans töluðust fátt við frá

x

Nýtt kirkjublað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.