Nýtt kirkjublað - 01.03.1911, Síða 14

Nýtt kirkjublað - 01.03.1911, Síða 14
62 NÝTT KIRKJU13LAÍ) stilt, áður en þú snertir á því sem þú girnist. Viltu lofa mér þessu!“ „Já“ svaraði pilturinn tárfellandi. Svo kvöddust þeir og presturinn gekk hugsandi áleiðis að Nesi. Esekíel Daníel var fermdur um vorið; árið eftir fór hann „til sjós“, og presturinn vissi ekkert frekar hvað um haun varð, en stundum mintist hann gáfutrega, breiska piltsins, sem langaði svo til að verða góður drengur, en vissi ekki hvernig hann álti að fara að því. Nokkur ár voru liðin. Síra Brandur hafði komist að þeirri niðurstöðu, að hann lifði ekki á svona litlu brauði, enda þótt biskupinn hefði veitt það. Sótti hann því um annað betra, en fekk ekki. Söfnuðurinn hafnaði honum með öllum þorra atkvæða. Töldu menn hann jafnólíklegan til að bæta líkam- legar þarfir sínar sem andlegar. Prestur hafði verið á kjörfundinum og hélt nú heimleiðis. Hann var að rifja upp það sem á dagana hafði dritið síðan hann varð prestur. Oftast hafði hann verið hamingjusamur og við engan vildi hann kjörum skifta, en hann varð að við- urkenna, að hann var ónýtur klerkur, enda var hann nú „veg- inn og léttur fundinn", líklega svo af guði sem mönnum. Langt var heim og prestur fór hægt; þegar hann kom undir túngarðinn vildi reiðskjótinn taka sprett eins og hann var vanur, en í þetta sinn fekk hann það ekki. Það var komið fram yfir miðnætti og vornæturskíman tók óðum að glæðast. Prestur gekk í bæinn og hugði alla í svefni; svo var þó ekki. I svefnstofunni vakti kona hans. Hún tók blíðlega kveðju haus án þess að spyrja tíðinda. Síðan rétti hún hon- um bréf með ofur viðvaningslegri utanáskrift. Bréfið var dagsett í Mandal svolátandi: „Yelæruverðugi si'ra (o. s. frv.) Jeg pára iður þessar líuur til að láta iður vita að mjer líður vel og het fundið guð. Jeg er sjómaður og sem stend- ur staddur hjer. Jeg á nú gott, þvi jeg er alveg laus við þetta, sem þú veist að var að mjer; en fengi gekk það erv-

x

Nýtt kirkjublað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.