Nýtt kirkjublað - 15.12.1914, Síða 4

Nýtt kirkjublað - 15.12.1914, Síða 4
284 NÝTT KIRKJUBLAB engill bænarinnar verur, sem leið illa. Og hann heyrði stun- ur og sá tár. „Hér er gott að vera. Hér er heimili mitt. Hér get eg kannske hjálpað eitthvað11, — sagði Bænin við föður sinn. — „Já hér skalt þú vera“ — svaraði faðirinn. „Hérer vagga ódauðlegra sálna. Hér er heimkynni mannanna. Sárs- aukinn á að vera þeim rót til eilífrar gleði. En til þess að þeir fari ekki villir vega, átt þú að vera í nálægð þeirra. Þú átt að vera tengitaugin milli mín og þeirra. Þú átt að kenna þeini að huggast og vona. Þú átt að vaka við vöggu þeirra og gröf. Og í öllum sársauka þeirra og ama, átt þú að beina huga þeirra til mín, svo eg geti látið kærleiksliós mitt vernm sálir þeirra“. — Bænin féll á kné, spenti greipar og mælti: „Verði þinn vilji, faðir minn! Sæla nn'n er að gera vilja þinn. Eg skal alt af vaka hjá mönnunum og beina hjörtum þeirra til þín. En lil þess að eg geti ávalt veitt þeim von og huggun og gleði, verður þú alt af að vera nálægur mér“. — „Þar sem þú ert, þar er eg“, svaraði Kærleikurinn himn- eski og horfði á dóttur sína með ólýsanlegri ástúð og blíðu. Síðan breiddi hann út vængina og sveif hægt og hægt til himins. En Jörðin varð heimili Bænarinnar. Og Bænin varð verndarengill mannanna. Hún vakti við vöggu þeirra og gröf. Hún studdi þá í æsku 'Og elli. Hún hjálpaði þeim til að bera alt mótlæti og sársauka. Hún kendi þeim að vona. Og hún kendi þeim að brosa gegnum tárin. María Jóliannsdóttir þýddi. grot úr ljóðaflokki. Það er snemma morguns. Sumarsunna sveipar Jórsalaborg; bjarmi er á fjöllum, blíðviðri um runna bjart er um stræti og torg. Þögull og andlega þyrstur lýður þyrpist í musterið inn.

x

Nýtt kirkjublað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.