Nýtt kirkjublað - 15.04.1915, Side 4

Nýtt kirkjublað - 15.04.1915, Side 4
92 NÝTT KERKJTJBLAÐ Eg er fœddur 22. janúar 1866, á Felli í Sléttuhlíð. Á Hvítasunnu sama árið mun eg ekki hafa verið mikill burgeis. En svo stóð á í Felli á Hvítasunnu þeirri, er eg nefndi, að alt fólk fór í kirkju, nema eg og stúlka nokkur Una að nafni; átti hún að gæta mín um messutímann. Heiðrikt var loft og hitasólskin. Barnfóstrunni hefir vafalaust leiðst að kúldast inni í bæ, í þessu indæla veðri, og þegar allir aðrir voru þá líka í kirkju. Og víst er það, að hún labbaði út með mig og settist með mig sunnan undir kirkjuvegg og þar sat hún með mig, þegar komið var úr messunni. En mér hefir snemma þótt sólin fögur; og í þetta skifti glápli eg svo lengi uppi hana, þarna, þar sem eg sat hjá Unu sunnan undir kirkjuveggnum, að eg var orðinn blindur á hægra auganu og vinstra augað dálítið skemt líka. En því hlífði þó að mestu skýluklútur, sem eg hafði utanum höfuðið og lá að mestu fram yfir augað. Enga athygli hefir Una veitt þessu, og var það því ekki henni að þakka, að eg varð ekki blindur á báðum augum. Marga daga var setið með mig. í myrkri, og alblindur var eg lengi á hægra auganu, en svo smárann blindan af; en enn er ský á auganu hægra, og aldrei hefi eg getað lesið með því á bók. Þar á móti varð eg albata á vinstra auganu, og liefi eg haft skarpa sjón með því. II. Þegar eg var á fyrsta árinu var það eitt sinn sem oftar um sumarið, að mamma var heima fyrri hluta dagsins, ann- aðist miðdegismatarsuðu, fór síðan með matinn á engið, til pabba og vinnufólksins og var síðan á engjunum til kvölds. — I þá daga gáfu konur sér ekki mikinn tíma til skrifta, og þá voru heldur ekki farin að tíðkast bréfaumslög þau, sem nú eru almenn, og lokað er með lími. Þá var ílestuni eða öllum bréfum lokað með lakki. Einu sinni um sumarið skrifaði mamma bréf, á meðan maturinn var að soðna; var hún að því frammi í stofu. Kveikti hún á kertisskari, á meðan hún lokaði bréfinu, því að eldspýtur voru þá fremur fátíðar. Þegar hún hafði lokið þessu, þóttist hún vera heldur en ekki á seinni skipun- um með matinn. Tók hún hann því ofan í snatri, bjó hann Út í ilát, og hélt svo af stað með hann á engið. Þegar hún

x

Nýtt kirkjublað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.