Nýtt kirkjublað - 01.04.1916, Blaðsíða 1

Nýtt kirkjublað - 01.04.1916, Blaðsíða 1
NÝTT KIRKJUBLAÐ HÁLFSMÁN AÐ ARRIT FYRTR KRISTINDÓM Oö KRISTILEGA MENNING 1916 Reykjavik, 1. april 7. blað Jöstuprédikun. (Á 4. miðvikudag i föstu 1916). í kveld höfum vér aftur heyrt upplesinn kafla úr þeim hluta píslarsögunnar, sem skýrir frá yfirheyrslunni, sem óvinir Jesú héldu yfir honum til þess að fá átyllu til að draga hann fyrir lög og dóm. Vér heyrðum þá líka þegar í upphafi hins upplesna sögukaíla þessum spurningum beint að honum : „Ertu Kristur?“ „Ertu þá guðs-sonurinn?“ Enda má segja, að yfirheyrzlan öll frá byrjun til enda snúist um þessa einu miklu spurningu: hver Jesús segist vera. Sannaðist það með eigin framhurði Jesú, að hann hefði gert eða gerði tilkall til að vera Kristur, guðs sonur, þá álitu fjandmenn hans, að sigur- inn væri unninn. Þá væri Jesús sannur að sök sem guðlast- ari. Slík býsn þóttu það, að slíkur maður sem Jesús var, — að þeirra áliti, — mentunarlaus iðnaðarmaður úr Galíleu, dirfðist að gefa í skyn, að hnnn væri hinn fyrirheitni drottins smurði. En hvernig gat úr slíku orðið guðlast? Jú, einmitt það var, eftir þeirra skoðun, að tala lastmæli gegn guði; því að bera guði það á brýn, að hann hefði sent sinni útvöldu þjóð slíkan Messías sem þessi furandprédikari var, var — að þeirra dómi — beint sama sem að segja, að guð hefði illa efnt fyrirheit sín við eignarþjóð sína. Slíkar sem Messiasar- vonir Gyðinga-leiðtoganna voru, var þeim það skiljanlega blátt áfram óhugsandi, að Jesús væri Kristur, og því í alla staði vítavert af honum, að segjast vera það. En að hann segðist vera það, þurfti að vottfestast, og til þess var þá og leikur- inn gerður. í rauninni var það þegar voftfast kveldinu áður. Kaífas

x

Nýtt kirkjublað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.