Nýtt kirkjublað - 01.04.1916, Síða 10

Nýtt kirkjublað - 01.04.1916, Síða 10
82 NÝTT KIRJUKBLAD Tota gens Islandiae tibi gratulatur, tibi habet gratiam, teque veneratur; tantum ignem fidei, spei, caritatis, tantam vim justitiae, atque veritatis tuis tu carminibus genti accendisti, et virtutis auream viam docuisti. „Gaudeamus igitur,“ noster es et eris; vivus lumen populi; quando morieris, tua summa carmina non oblita stabunt, lucem in itinere genti semper dabunt. Höfundur þessarar latíunu-þulu, síra Bjarni Þorsteinsson á Siglufirði, ritar svo með kvæðinu 9. f. m.: „Mér datt í hug að senda þér eftirrit af skeyti því, er eg skrautritaði og sendi skáldkonungi okkar, Matthíasi klerki, á 80. afmæli hans. Væri kanske rétt, meðfram af þvi það er frá presti til prests, að leyfa því rúm einhversstaðar i N. Kbl. Ekki af því að eg sé neitt montinn af því, því það er ósköp einfalt og óskrúfað; góður nýsveinn i gamla daga hefði skilið það orðabókarlaust, að eg held — heldur til þess að það glatist ekki með öllu“. N. Kbl. þakkar sem bezt, að mega geyma slíkt fágæti. Og eigi væri það síður þakkarvert, ef eitthverl skáldanna okk- ar, latínulesnu, vildi þýða þetta ástúðlega og fagra latinuljóð, og senda N. Kbl. þýðinguna, og byggju þá allir að. fíund og nefskattur. Ekki trúi eg því, að það séu ekki fleiri prestar en eg einn, sem telja það leiðinlegast allra prestsverka, að skrifa upp skrána yfir gjaldendur til prests og kirkju, en eílir þeitn skrám heimta sóknarnefndir inn nefskaltinn svo kallaða. Eg segi fyrir mig, að eg þoli varla að sitja við það verk. Mér finst eg vera þar neyddur til að vinna að ranglæti, sem eg hlýt að fyrirdæma. Á skránni skrifa eg hinn bágstaddasta aumingja við hliðina á stóreignamanninum, því að báðum er ællað að greiða sama gjald. Heilsulaust gamalmenni, sem lifir afgust-

x

Nýtt kirkjublað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.