Tímarit iðnaðarmanna - 01.12.1958, Blaðsíða 3
3
Formannaskipti hjá iðnsamböndum
Noregs og Svíþjóóar.
TÍMARIT IÐNAÐARMANNA
en áður, því að i dag væru þeir allt
að 7% af starfsliðinu, en hefðu áð-
ur verið allt niður í 0,3%.
Að erindi Egil Einarsen loknu,
voru umræður. Voru þær bæði í senn
fróðlegar og lærdómsríkar.
Helge Ormestad, kiæðskerameist-
ari og formaður Iðnaðarmannafélags
Oslóborgar, gat þess, að kennslan
þyrfti auk annars að ná til moralsins.
Það þyrfti, að kenna mönnum þýð-
ingu þess að fara vel með allt efni,
liirða vélarnar sómasamlega og nota
timann vel. Hann hélt, að þessu væri
minni gaumur gefinn nú en áður
og gat þess til gamans, að þegar hann
var að læra, hefði meistarinn sinn
tekið smá pjötlu upp af gólfinu,
þegar hann var að sníða og sagt:
Heyrðu Ormestad, þetta eru 3 aurar.
Stig Stefansson, formaður Iðn-
sambands Sviþjóðar skýrði frá þvi,
að í sínu heimalandi væri iðnaður
eins konar þjóðarhreyfing. Sá þætti
ekki maður með mönnum, sem ekk-
ert kynni til handanna.
Framkvæmdastjóri Iðnsambands
Danmerkur, Börge Nissen, gat um
nauðsyn þess, að iðnaðurinn fengi
ráðunauta, sem heimsæktu fyrirtæk-
in og gæfu verklegar og verzlunar-
legar ráðleggingar. Minntist hann á
landbúnaðinn danska til samanburð-
ar, sem nyti mikils álits og hefði
á að skipa fjölda ráðunauta. Drap
hann ennfremur á nauðsyn þess, að
reglusemi ríkti í viðskiptum og
stjórnsemi og vöruvöndun.
Undir þetta tók Svíi, sem sagði,
að hverjum og einum væri heimilt
að setja á stofn iðnfyrirtæki í Sví-
þjóð, þótt hann hefði ekkert nám
að baki. En þegar um samkeppni
væri að ræða, sæju menn sér hag í
því að hafa fagmenn.
Annar Svíi talaði um stöðlun og
taldi, að þrátt fyrir ýmsa kosti, væri
rétt að hafa viss takmörk fyrir við-
gangi stöðlunar. Minntist hann einn-
ig á hættuna á því, að nieð fríverzl-
un streymdu inn i löndin illa unnar
vörur og þyrfti þá ríkisvaldið að
sjá til þess, að vörugæði settu ekki
niður við fríverzlun.
Framkvæmdastjóri Iðnsambands
Finnlands benti á þann ávinning,
sem iðnaði landsins liefði orðið að
stofnun liinna 8 upplýsingastofnana
fyrri iðnaðinn, sem hefðu aðsetur
sitt á mestu iðnaðarstöðum Finn-
lands.
í maí s.l. hélt Iðnsamband Noregs
aðalfund sinn í Osló. Við stjórnar-
kjör baðst Kaare Aass, verkfræðing-
ur, eindregið undan endurkosningu
i formannssæti sambandsins, en
hann hefur gegnt þeim starfa í sex
ár. Eftirmaður hans var kosinn
Trygve G. Frederiksen, bókbands-
meistari, Osló.
Iðnsamband Svíþjóðar hélt aðal-
fund i ágúst s.l. Lá m. a. fyrir þeim
fundi að kjósa nýjan formann, þvi
að Gerhard Nilsson, formaður Iðn-
sambandsins hafði látizt i júlí.
Gerhard Nilsson var 63 ára að aldri,
ÞINGLAUSNIR.
Að umræðunum loknum, var
haldinn fundur i stjórn Norræna
iðnsambandsins, en hana skipa for-
menn iðnsambanda Norðurlanda.
Var þar samþykkt, að Daninn Erik
Hansen, ritari Norræna iðnsam-
bandsins og Stig Stefanson, for-
maður Iðnsambands Svíþjóðar sæktu
Evrópuiðnþing í Briissel sem á-
heyrnarfulltrúar á næsta ári.
Þinginu var síðan slitið að öllum
fulltrúum viðstöddum i hátiðarsal i
iðnaðarmannahúsinu af Kaare Aass.
Afhenti liann við það tækifæri hin-
um nýja formanni Norræna iðnsam-
bandsins, Stig Stefanson, fundar-
hamar samtakanna.
Að kvöldi laugardagsins sátu full-
trúar boð á heimilum Trygve Fred-
riksen, formanns Iðnsambands Nor-
egs og Einars Höstmark, framkv.stj.
Iðnsambands Noregs. Sátu þingfull-
trúar þar í góðum fagnaði fram eftir
kvöldi.
Stjórn Norræna iðnsambandsins
er skipuð Stig Stefanson, Sviþjóð,
Poul Persson, Danmörku, Lauri
Viljanen, Finnlandi, Trygve Fred-
riksen, Noregi og Björgvin Frede-
riksen, íslandi.
Að lokum er skylt að geta þess,
að Norræna iðnþingið fór i alla
staði fram með miklum myndarbrag
og var Norðmönum, sem fyrir því
stóðu, til mikils sóma.
Trygve G. Fredriksen t. v. og Stig
Stefanson t. h.
þegar hann lézt og hafði um árabil
unnið að hagsmunamálum iðnaðar-
ins i heimalandi sínu. Hann varð
formaður Iðnsambands Svíþjóðar
árið 1949 og gegndi auk þess fjölda
trúnaðarstarfa fyrir samtök iðnað-
armanna. Meistari var hann í gler-
slípun og speglagerð.
Á aðalfundinum i ágúst var Stig
Stefanson, sjóntækjasmíðameistari,
kosinn formaður.
Flytur Timarit iðnaðarmanna
báðum hinum nýkjörnu formönnum
beztu kveðjur og árnaðaróskir með
hin virðulegu trúnaðarstörf.
—0—
Cciiið siörfin.
NÝ BÓK FRÁ I.M.S.Í.
Iðnaðarmálastofnun íslands hefur
nýlega látið þýða þýzka bók um
hagræðingu vinnunnar, og ber hún
lieitið LÉTTIÐ STÖRFIN. Eru i
bókinni 100 myndir og skýringar-
textar með hverri mynd. Ennfrem-
ur eru fyrst i bókinni 24 forsagn-
ir um rétta tilhögun við vinnu og
síðar aðrar 24 forsagnir með mynd-
unum.
í bókinni er fjallað um viðfangs-
efni, sem alla starfandi menn varð-
ar á auðskilinn og smekklegan liátt.
Verður bókin LÉTTIÐ STÖRFIN
til sölu i bókaverzlunum landsins.
—O—