Glettingur - 06.01.1932, Blaðsíða 4

Glettingur - 06.01.1932, Blaðsíða 4
4 GLETTINGUR Allir sem skulda verslun Guðbjörns Björnssonar, eru vin- samlega beðnir að greiða í síðasta lagi fyrir 15. janúar. Þeir sem þá ekki hafa gert full skil á viðskiptum sínum, geta ekki vænst þess, að verslunin geti haldið áfram viðskiptum við þá. pr. versl. Guðbj. Björnssonar. SOPHUS ÁRNASON. EITT LÍTIÐ VERS. Lag: Tunga mín af hjarta hljóði. ir, verksmiðjur, bókmentir, skóla, tugthús og typtunaraðferðir, einkalíf, opinbert fóik og fæðingarstofnanir, því að hans sjálfs máli er hann á allt þetta jafn vel vígur, h\orthehi- ur er vestur í Leningrad eða austur á Kamtsjatka. Hann er jafn kunn- ugur í Moskva og Mannaski eins og í Hertervigsbakaríinu eða „Fus“, og eru þetta meiri stórmerki en frá verði sagt eða lýst réttilega. Sérstak- lega er þessi fróðleíkur hans merki- lega fenginn, þegar þess er gætt, að hann var linur í rússneskunni þeg- ar hann fór, og kannske öðrum er- lendum tungum, sem talaðar eru í Rússlanci, þó þæru séu nú ekki nema 50 eða svo til. En getum má leiða að því, að þar hafi hann við suma þegnana bjargað sér með ein- liverju fingramáli. (Sbr. „Eyfirðing- ur Árni snar“). Pá undrast menn stórlega og furða sig á því, yfir hve mikið Gísli hefir gripið í þekking- unni er litið er til landflæmis og fólksfjölda, en þar er þess að gæla, að fyrst og fremst hafa gáfur hans, sem „Fus“-félögunum þóttu fvr meir harla góðar, auðvitað stórum skerpst o^ aukist af hinni kommunistisku stemningu. Og Gísli var þarna í heilan hálfan mánuð, en Sovjet- veldið er ekki nema skitnar 20 mil- jónir ferkílómetra og íbúarnir litlar 160 miljónir. — Ungum kommún- ista ægir ekki við þessum smámun- um. Svo sem Ijóst mun verða af fram- ansögðu, þarf ekki að segja um Gísla hið fornkveðna: Heimskan rik í heila flaut, hér á Jandi bjó ’ann. Kálfur sigldi, kom út naut, kussi lifði og dó ’ánn. Mun Gísli, þegar á alt er litið, vera einn hinna skörpustu land- könnuða og þjóðlífs- og lifnaðar- hátta-fræðinga, sem nú eru fyrir moldu ofan, þegar þess er til sam- anburðar minst, hve lítið Sven Hedin greyið, þekkir til i Tibet og Himalaya eftir hálfrar aldnr stag I og strit, enda mun hann verastaðn- aður íhaldsmaður, vesalingurinn. En lítið er þó Tíbet-land á borð við alla Sovjet-unionina. Annar lýsír reiprennandi lang viðáttumesta heimsveldinu eins og buxnaskálm- inni sinni, með öllu í, lifandi og dauðu, kyrru og kvikandi, eftir að- eins hálfs mánaðar kynrríngu, en hinn er að þvælast um lítinn kot- ríkiskollublett, hálfa æfina og kveð- ur sig þó margt á skorta um þekk- inguna. Hvílíkur munur! Eða Vilhjálmur Stefánsson, „the great Explorer"! Hvað vill hann upp á dekk? Nei, Gísli okkar kútveltir þessum körlum öllum í þessurn leik. — Ferðaminningar hans eru óþrjótandi, og sannur lífsins brunn- ur og sálarinnar balsam allri mann- kind, enda kvað Guðlaugur í elli sinni daglega endurfæðast til nýrrar þekkingar, er „sellu“fundir eru haldnir níðri undir honum, og Páll á hótelinu sér valla miíli veggja í Brúarfossi síðan fundurinn var þar háður og Gísli talaði. í stuttu máli sagt, vitum vér engan Gísla jafna, nema ef vera skyldi þjóðsagnahetj- una Don Quijote — en það var nú líka karl í krapinu, Gísli minn. — Siglufjarðarprentsmiðja. Oft er hermanns örðug ganga, — illur er margur víndropinn — Riddarann kvenna lítt mun langa að lenda í burtreið annað sinn. Hann hreppti meiðsloghirtingstranga í Hvanndalabjörgum —Auminginn! Hreinlœtis Og fegurðarvörur í fjölbreyttu úrvali. Lyfjabúðin. PÖKK FYRIR VIÐSKIFTIN á liðna árinu. GUÐ GEFI YKKUR FAR- SÆLT NÝJA ÁRIÐ. KR. DÝRFJÖRÐ. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Kristján P. ,Jaku bsson.

x

Glettingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Glettingur
https://timarit.is/publication/366

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.