Vikan


Vikan - 30.04.1953, Blaðsíða 16

Vikan - 30.04.1953, Blaðsíða 16
Þér sparið með því að verzla * 1 VERZLUN GUÐM. MAGNÚSSONAR Símar 136 og 36 (heima). AKRANESI Bílasmiðja Akraness Suðurgötu 67 — Sími 114 Bifreiðasmíði Byggjum yfir Fólksbifreiðar Mjólkurbifreiðar Vörubifreiðar Sendiferðabifreiðar Jeppabifreiðar Trésmíði Framleiðum Hurðir Glugga Eldhúsinnréttingar Búðarinnréttingar og fleira Klæðum innan og sprautum allar tegundir bifreiða. Hafið þér athugað að það bezta er og verður ódýrast? Kynnið yður verð og gæði áður en þér festið kaup annars staðar. AKRAIMES ... Framhald af bls. 5. Þá sýn sá Örlygur, er hann kom vestan af Patreksfirði og sigldi „suðr um Snæfellsjökul á fjörðinn." Sjálfur er skaginn sléttur og láglendur og tilvalið bæjar- stæði. Fremst á honum heldur stóri vitinn vörð nætur og daga sem vera ber. — En upp af kaupstaðnum, allt til fjallsróta, breiðir sig hið ákjósanlégasta ræktunarland. Eg held, að eng- inn bær á Islandi eigi búsældarlegra uppland en Akranes. Enn hafa bæjarbúar lagt meiri áherzlu á að efla sjávarútveg sinn en landbúnað, en ræktun er þó mikil og fer vaxandi og vonandi líður að því, að akrar hylji móa, svo að nesið beri aftur nafn með rentu. Bærinn á nú land Garða, hins gamla höfuðbóls, sem stóð skammt fyrir ofan. Þar er nú ekki byggð. Sagt var fyrir nokkrum árum, að Akranes væri frægt fyrir fallegt kvenfólk og góðar og miklar kartöflur. Þá bylgjuðust kartöfluakrar hvar- vetna milli húsanna í bænum á sumrin, og enn má víða sjá fallegan kartöflugarð í bænum. En mjög hafa þeir orðið að víkja á síðari árum fyrir nýjum húsum, og garðarnir færzt nokkuð upp fyrir bæinn. En kvenfólkið hefur að sama skapi fært út kvíarnar í >bænum, og er fallegt sem fyrr, og hvort tveggja er enn ósvikið á Akra- nesi — kartöflurnar og kvenfólkið. Útgerðarbær er Akranes fyrst og fremst og ber þess líka merki. Atvinnu sína eiga bæjar- búar aðallega undir sjónum og afurðum þeim, sem í hans greipar eru sóttar. Ef vel veiðist, er líf og fjör i bænum, kraftur færist í verzlun og viðskiptalíf. og félagslif eflist. En ef eitthvað syrtir í álinn fyrir útveginum, dofnar skjótlega yfir athöfnum bæjarbúa og allt verður þyngra í vöfunum. Svona er þetta í útgerðarbæjunum. Þar er allt líf í nánum tengslum við atvinnulífið, og það finna allir, þótt ekki hafi þeir jafnvel sumir lífsuppeldi sitt af sjávarútveginum bein- linis. Þar og í sveitunum er óhugsándi, að nokk- ur maður geti slitnað upp úr jarðvegi atvinnu- lífsins. 1 Reykjavík getur hins vegar fjöldi manns stritazt við að sitja á skrifstofustólnum ár eftir ár, án þess að kynnast hæðunum og lægðunum í atvinnulífi þjóðarinnar öðru vísi en af blaðagrein- um og æsingaræðum pólitíkusanna rétt fyrir kosningar. Ferðamaður, serh stígur á land á Akranesi, sér skjótlega mörg merki þess, að hann er kom- inn í útgerðarbæ, enda „sæmir vel að sauðaspörð sjáist kringum fjárhúsið". Við augum hans blasa mörg stórhýsi, svo og mörg önnur minni hús, sem taka við sjávaraflanum, vinna úr hon- um og búa hann til útflutnings. Ef til vill sækir hann þannig að, að togari er nýkominn úr veiði- för og fólk er á leið til vinnu í frystihúsin, karl- ar og konur, eldri og yngri. Kvenfólkið er svo búið, að við fyrstu sýn gæti manni dottið í hug að þarna væru á ferð hjúkrunarkonur við störf sin. Þær eru hvítklæddar og hreinlegar með hvitt um höfuðið. Svona fínar hafa konurnar áreiðan- lega ekki verið við fiskvinnuna fyrir nokkrum áratugum, en nútíminn heimtar hreinlæti-hrein- læti. Leyfið mér nú að verða ferðamanninum sam- ferða upp í bæinn og segja honum helztu kenni- leiti. (iönguferð um bæinn Skipið, sem við komum með, siglir inn í skipa- kví í höfninni, sem mjög er gerð af mannahönd- um. Það leggst að vestri hafnargarðinum, en hann er harla langur, og er framanverður gerð- ur af miklum steinkerum, sem eru hingað kom- in alla leið sunnan úr Frans, dregin alla leið yfir hið'öldótta haf. Enn á þessi garður eftir að lengjast, segja þeir, sem vit hafa á. Irinar er ann- ar garður styttri, og liggur vélbátaflotinn þar, þegar hann er ekki á sjó. Enn ofar er verið að gera þriðja hafnargarðinn, þar sem viðskiptaskip sementsverksmiðjunnar eiga einkum að athafna sig, en þá erum við komin inn á verksmiðjusvæð- ið, 1 en það er annar kapítuli. En framan við þennan síðastnefnda garð á að koma enn eitt hlemmistórt steinker, 62 metra langur nökkvi, sem enn liggur suður i Elliðavogi. Nú skulum við spásséra upp bryggjuna. Fyrsta húsið á hægri hönd er Síldar- og fiSkimjölsverk- smiðjan, sem spýr hvítum og svörtum gufu- og reykjarstrókum upp í loftið og yfir bæinn, ef §tormur er utanstæður, og fylgir því fnykur nokk- ur. Þetta er mikil bygging og fjölbreytileg, en engin bæjarprýði er að henni. Vinstra megin við götuna, litlu ofar, er mikið stórhýsi og langt, eigi ófrítt. Það er hraðfrysti- húsið Heimaskagi, og vinnur þar fjöldi manns. Ofar við götuna, sama megin, ris enn geysimik- ið stórhýsi, dökkrautt og nýlegt. Hér erum við líomin í ríki Haralds Böðvarssonar & Co. Á það fyrirtæki hér heilt húsahverfi, og eru húsin öll með sama svip. Þetta er stærsta frystihúsið í bænum, vandað mjög og fullkomið. Vinna í því einu á. annað hundrað manns. Síðan tökum við „slag“ þvert yfir skagann, skamman spöl, og komum þá að þriðja frystihúsinu, Fiskiver heit- ir það. Þarna höfum við þá helztu vinnustaðina á Akranesi. Auðvitað er fjöldi smærri húsa utan um vélbátaútgerðina, en héðan eru venjulega gerðir út nær 20 vélbátar. Bæjarútgerðin gerir út tvo togara, Akurey og Bjama Ólafsson. Nið- ursuðuverksmiðja er hér, eign Haralds Böðvars- sonar & Co. Bezta baðströnd Svo er bezt að við höldum upp á Skagann sunnanverðan. Þar stendur nú yfir umrót mikið og undirbúningur að stórframkvæmdum. Hér á nefnilega að koma sementsverksmiðja ríkisins, ef vinir okkar að vestan bregðast okkur ekki alger- lega og sleppa af okkur hendinni. Og það verður nú enginn kotbær. Er ætlað, að byggingar verk- smiðjunnar nái yfir mestallt svæðið meðfram fjörunni frá hafnargarðinum innsta og inn á Langasand. Yrði of langt mál að lýsa því hverfi nánar hér, en mjög hlýtur landsýn til bæjarina af sæ að breytast. Langisandur breytist mjög til hins verra við tilkomu verksmiðjunnar. Hefur þegar verið sett- ur grjótgarður mikill með akvegi á af Jaðars- bökkum og girðir hann af stórt svæði af sand- inum. Þangað á að dæla fimamiklu af skeljasandi utan úr flóa og verður hafizt handa við það starf þegar í sumar. En úr skeljasandinum á að framleiða sement handa öllum lýðnum. Þá verða allar götur á Akranesi steyptar og öll hús, stór og smá. „Ég tók við múrsteinaborg, en afhendi yður marmaraborg," sagði Ágústus keisari. Ef til vill getur bæjarstjórn Akraness einhvern tíma sagt eitthvað svipað. Enn er þó mikið eftir af Langasandi, ham- ingjunni sé lof. En hann er indæll staður, og eiga Akurnesingar honum mikið að þakka. Hann er breiður og rennisléttur og er oft gaman að vera þar á sólbjörtum sumardögum. Börnin una þar daglangt og skvampa í öldunum og eldra fólkið syndir og liggur í sólbaði, þvi að hér er ein bezta baðströnd á Islandi. Margir eiga ljúfar minning- ar um Langasand. Upp af Langasandi er íþróttavöllurinn, þar æfa knáir knattspyrnumenn íþrótt sína. Áður en völl- urinn er hæfur til æfinga snemma vors, æfa þeir á sandinum. Sandurinn, völlurinn, knáleik- urinn og áhuginn valda því, að Akranes á ein- hverja beztu knattspymumenn Islands, stundum Islandsmeistara. Upp af íþróttavellinum eru svo matjurtagarð- 16

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.