Vikan


Vikan - 30.04.1953, Blaðsíða 11

Vikan - 30.04.1953, Blaðsíða 11
Bíllinn hérna „fældist“, ef svo mætti orða það, og þegar hann stöðvaðist, var hann búinn að valda slysum á 24 mönnum. Þar af meiddust tveir alvar- lega. Á neðri myndinni er verið að bera einn hinna slösuðu inn í sjúkrabifreið. Stundum sviþar stríðsmönnum nútímans til mið- aldariddaranna. Svo finnst okkur til dæmis um manninn á myndinni hérna niðri i vinstra honinu. Ekki vantar það að hjálmurinn hans sé skraut- legur, og hann er með silkislæðu um hálsinn. Fákur hans er þrýstiloftsflugvél, og hann berst i her Sameinuðu þjóðanna í Kóreu. ♦ ★♦ Kvenfólkið heldur áfram að olnboga sig inn í raðir karlmannanna. Það eru ekki ýkjamörg störf, ,sem karlmaður- inn hefur ennþá einkarétt á. Kon- an hefur líka sýnt það áþreif- anlega undanfar- in ár — og sýndi það ekki síst í síðustu styrjöld — að hún lætur ekki sitt eftir liggja þar sem hún fær að reyna sig. Myndin hér fyrir ofan er af fyrsta kvenlækninum, sem verð- ur liðsforingi í her Bandaríkjanna. — Hún er að sverja hollustueið. ♦ ★♦ Litli strákurinn til vinstri týndist í þrjá daga i Kaliforníu. Mikil leit var gerð að honum, og loks fannst hann inni í skógi, sjö mílur frá heim- ili sínu. Faðirinn heldur á honum, en sá litli er aðeins þriggja ára. Einn leitarmannanna fær ekki varist tárum. ,rÞað getur vel verið að stúlk- an sé eklci nema átta ára. En það breytir engu urn það, að hún er of stór.“ Copr 19}$, King Pc»..c$ Syndicatc, Int , World rights rcíc. Pabbinn: Mundu það hér eftir, að fyrsta LAlli: Gœttu þín, pabbi! reglan er að Uta alltaf vel í kringum sig. Lilli: Já, pabbi. Lilli: Ég fann bók um öryggisreglur. Á ég að lesa þœr fyrir þig? Pabbinn: NEI! 11

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.