Vikan - 10.09.1953, Blaðsíða 2
T ékkósló vakíu-viðskipti
Eins og að undanförnu seljum vér
bæði beint frá umbjóðendum vorum í
Tékkóslóvakíu og hér af lager:
Margar gerðir af verkfœrum
allskonar og smœrri bygg-
ingavörum
Allar nánari upplýsingar á skrif-
stofu vorri.
S. Árnason & Co.
Laugaveg 29.
ÞÆGINDIN
er það sem máli
skiptir fyrir
HÚSMÓÐURINA
"ENGLISH ELECTRIC'
Heimilistækin létta erfiðustu störfunum af
húsmóðurinni
Laugavegi 166.
Geturðu sagt viér eitthvað um
leikkonuna Glynis Jolins. Hún lék
í kvikmyndinni Leyndarmáliö (State
Secret), sem sýnd var i Austur-
bœjarbíó. Viltu líka birta mynd af
henni.
Biógestur.
Svar: Glynis Johns er dóttir enska
leikarans Mervyn Johns, en er samt
fædd í Suður-Afríku 1923. Hún hef-
ur leikið bæði á leiksviði og I kvik-
myndum siðan 1935 og fólk virðist
hafa gaman af dálitið ófyrirleitna
svipnum á fjörlega andlitinu á henni.
Nýlega er búið að kvikmynda þrjár
af sögum Somerset Maugham og
leikur Glynis Johns aðalhlutverkið í
einni sögunni, „Gigolo og Gigolette"
Meðfylgjandi mynd er tekin þeg-
ar hún er að hvíla sig í einu hléinu.
Glynis hefur talsverða leikhæfileika.
Kœra Vika!
Vinsamlegast birtu þetta fyrir
mig í pistli þinum. Hann er svo
víðlesinn að það er eina von mín
um að þetta beri árangur. Bg átti
hvitan reiðhest sem ég felldi í fyrra-
haust, þá þritugan að aldri, og ég
sendi húðina af honum til görfun-
ar norður á Akureyri með milli-
göngu Kaupfélags Borgfirðinga ■ í
Borgarnesi. Nú fékk ég húð að norð-
an sem ég táldi vera mina, en þá kom
í Ijós að hún var ekki hvit heldur
jarpskjótt. Ef einhver sem þessar
línur les, skyldi eiga þessa húð en
hafa fengið mína þá er hann vin-
sanilega beðinn að senda mér línu.
Með þökk fyrir birtinguna.
Virðingarfyllst
Gnðmmidur Bergsson.
Hvammi, Ölfusi,
Ámessýslu.
1. Þarf að taka inntökupróf, eða
lamdspróf til að komast í Bam-
vinnuskólann ?
2. Hvað eru margir bekkir í skól-
anum ?
3. Og hverjar eru helztu náms-
greinar ?
j. Hvaða bœkur eru kenndar þar •
og eftir hverja?
5. Eru stúlkur í skólanum ?
Kaupandi VIKUNNAR.
Svar: 1. Til að fá inngöngu í Sam-
vinnuskólann þarf að hafa lokið mið-
skólaprófi. Inntökupróf er tekið á
haustin, venjulega upp úr 29. sept.
— 2. Ein aðaldeild (1 vetur) og síð-
an eru 8 nemendur teknir í fram-
haldsdeild i annan vetur. — 3.—4.
Því miður getum við ekki talið upp
allar námsbækurnar, en þú skalt
skrifa Samvinnuskólanum og fá nán-
ari upplýsingar. — 5. Já, það eru
stúlkur í skólanum.
Viltu vera svo góð og birta fyrir
mig textann „Öt við Hljómskála".
Dce gurlagaunnandi.
Þegar stjarnan á bláum himni biður,
bjartur máninn um himinhvolfið
líður,.
út á sundunum syngur blærinn
þýður;
það er sumarnæturró i Reykjavik.
Ot við Hljómskála eiga stefnumótin
ungur drengur og litla, blíða snótin,
oft er gaman að gefa undir fótinn,
það er gleði, sem er engu öðru lík.
Daggaperlur gróa á greinum
það er gott að vera í leynum
og þar gerist margt sem enginn veit.
Þegar tvö þar saman tala,
tungu ástarinnar hjala
og hvor öðru vinna ótal heit.
Oft þau hittast í húmi ljósrar nætur,
eru horfin er aðrir koma á fætur,
því þau öldruðu gefa öllu gætur.
Það er glatt um sumarnótt í
Reykjavík.
MAÐUR OG KONA
nefnist safn frægra ástarjátninga,
sem birtist í SAMTÍÐINNI. 10
hefti (320 bls.) árlega fyrir aðeins
35 kr. Sendið áskriftarpöntun
strax, og þér fáið tímaritið frá
síðustu áramótum. Árgjald fylgi
pöntun.
Útgefandi VIKAN H.F., Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Gísii J. Ástþórsson, Tjarnargötu 4, sími 5004, pósthólf 365.
2