Vikan - 17.12.1953, Side 5
Vöggukvœði
eftir Einar Sigurðsson
1538—1626
f . . , .
Nóttin su var ágæt ein
um alla veröld Ijósið skein.
I>að er nú heimsins þrautamein
að þekkja hann ei sem bæri.
Með vísnasöng ég vögguna þína hræri.
í Betlehem var það barnið fætt,
sem bezt hefur andarsárin grætt.
Svo hafa englar um það rætt
sem endurlausnarinn væri.
Með vísnasöng ég vögguna þína hræri.
Fjármenn hrepptu fögnuð þann:
þeir fundu bæði guð og mann.
1 lágan stall var lagður hann,
þó lausnari heimsins væri.
Með vísnasöng ég vögguna þína hræri.
Þér geri ég ei rúm nieð grjót né tré,
— gjarnan læt ég hitt í té:
vil ég mitt hjarta vaggan sé;
vertu nú hjá mér, kæri.
Með vísnasöng ég vögguna þína hræri.
Lofið dýrð á himnum hátt
honum með englum syngjum þrátt.
Friður á jörðu og fengin sátt,
— fagni því menn sem bæri.
Með vísnasöng ég vöggima þína hræri.
/
Upp úr stallinum ég þig tek,
þó öndin min sé við þig sek,
bams mun ekki bræðin frek,
— bið ég, þú ligg mér nærri.
Með vísnasöng ég vögguna þína hræri.
Af klám hjarta kyssi ég þig:
komdu sæll að leysa mig.
Faðmlög þín em fýsilig,
frelsari minn kæri.
Með vísnasöng ég vögguna þína hræri.
Skapaðu hjartað hreint í mér
til herbergis, er sómir þér,
saurgim allri síðan ver,
svo ég þér gáfur færi.
Með vísnasöng ég vögguna þína hræri.
Örmum sætum ég þig vef,
ástarkoss ég syninum gef.
Hvað ég þig mildan móðgað hef,
minnstu ekki á það, kæri.
Með vísnasöng ég vögguna þína hræri.
Þá sálin skilur við sjúkan búk,
sé þín, Jesús, lækning mjúk.
Enn fyrir henni upp þú ljúk
unaðsstaðnum kæri.
Með vísnasöng ég vögguna þína hræri.
Forsíðumyndina tók
*
Asgeir Long
Myndin hér fyrir ofan er úr hinni
ágætu myndabók Hjálmars R. Bárð-
arsonar: Island farsælda frón. Bók-
in er ljósprentuð í Lithoprenti, og hef-
ur útgáfa hennar tekizt einkar vel.
dam óilccvi 0/mdsniönnum
(bébill&jyhjOL fó.ía.
5