Vikan


Vikan - 17.12.1953, Blaðsíða 12

Vikan - 17.12.1953, Blaðsíða 12
rtX.'i íf ,u^:r*v' Maöurimn sewn r«rd ad frem/a morð eftir Ronald Knox J^jAÐ þarf ekki vísindalega hæfileika til að vera góður lögfræðingur, | sagði Sir Leonard. — Miklu frem- ur listræna hæfileika. Maður verður að hafa auðugt ímyndunarafl og ímynda sér atburðarásina, eins og maður vill hafa hana, og auðvitað þannig, að skjól- stæðingurinn sé saklaus. Ef við vissum sannleikann í mörgum málum, mundi okkur líklega finnast hann ennþá ein- kennilegri en þessar hugsmíðar okkar. Auðugt ímyndunarafl er semsagt nauð- synlegt — hef ég nokkurn tíma sagt ykkur söguna af skjólstæðingi mínum Westmacott? Margir kröfðust þess, að hann segði hana núna, og Sir Leonard hóf sögu sína með hljóm- fögru röddinni, sem margir keppinautar hans öfunduðu hann af, og virti öðru hvoru fyrir sér glóðina í vindlinum sínum, eins og hann fengi andagift sina þaðan. Athygli allra við- staddra beindist nú að honum. - - '★— • — ÉG kynntist Westmacott fyrst í sambandi við afbrot, sem aldrei kom fyrir rétt, þó þar skylli hurð nærri hælum. Ég var aðeins beðinn um að láta í Ijósi skoðun mina á málinu í það skipti. Wes.tmacott var roskinn maður, nokk- úð veiklulegur,. svo hann leit.ekki út fyrir að eiga effir að verða gamall, og eirðarlaus, eins og hann hefði ekki hugann við það, sem hann var aðutala um. Honum hafði vegnað vel í viðskiptum og var nýbúinn að draga sig í hlé . méð talsverðar tekjur, sem hann vissi ekki, hvernig hann átti að nota. Það vakti að.. minnsta kosti undrun vina hans, þeg-ar hann ákvað að dvelja yfir jólin. í einu af þessum íeiðinlegu, stóru lúxushótelum i Cornwall. Það var einn af þessum stöðum, sem reyna að láta fólk ímynda sér að það sé á Miðjarðarhafs- ströndjinni, með tilbúnu sólskini, geysilegri upphitun og innisundlaug, þar sem vatnið er um 80° heitt allan sólarhrínginn. Hann gat auðvitað hafa valið Cornwall vegna heilsu sinn- . ar', en .enginn skildi, hvers vegna hann hafði einmitt(,yalið þennan stað, því allir vissu, að hann vap gamaldags í hugsunarhætti og íhaids- samur í skoðunum. Gestirnir á hótel Kesplend- ept . ypru . heimsborgarar og listamenn. Meðal gestanna að þessu sinni ‘yúr vel þekktur rithöfundur, sem ég ætl0íáB ■ kalla Smith, af' því að hann er enn •5,i;í^£‘egv þið munduð kannast við hann. Þið skiljið, að þetta gerðist fýrír nokkrum árum. Nú á dögum ef auðvitað alveg sama, hvað menn skrifa og hvaða skoðunupy.-þ'fif halda fram; það er allt kallað list. En þlt'Var enn til fólk, sem hneykslaðist, og' Shiith hneykslaði það. Bækur hans sýndu ekki áðal- lega skort á velsæmi, en hann hafði slæm á- hrif á unga fólkið, ef gamall karlskröggur, eins og ég, get leyft mér að taka svo til orða. Öllum kom saman um það — þó flestir reynd- ar dáðust að honum fyrir bragðið. Westmacott hafði aldrei hitt hann áður, og hitt fólkið var sannfært um, að þeir mundu ekki verða neiriir vinir. En svo undarlega vildi til, að það reynd- ist rangt. Það leit út fyrir að Westmacott hefði ekki lesið neina af bókum Smiths, og satt að segja las hann lítið annað en sakamálasögur, en af þeim las hann eina á dag. Og . . . jæja, það var einkennilegt, að svona vinátta skyldi takast á jafn auðvirðilegum stað og Hotel Resplendent. Aðsóknin var í lakara lagi þetta árið. Fólk hafði ekki eins mikla peninga og venjulega, og hótelstjórinn reyndi að bæta úr því, með því að hvetja gestina til að stofna til nokkurskonar f jölskyldusamkvæmis með gamaldags jólaleikjum. Auðvitað var veizlan á, jóladag, og þar var allt, sem með þurfti: jólagjafir, gerfihöfuð af villigöltum, viðarbol- ur á eldinn frá Svíþjóð, og götusöngvarar, sem reýndar voru búnir að æfa sig undir stjórn ó- perusöngvara í marga mánuði. Um hálf ellefu höfðu stjórnendur veizlunnar ákveðið að gest- irnir — sem voru milli 20 og 30, þegar frá voru taldir sjúklingarnir, sem voru farnir í rúmið, og heimskingjarnir, sem höfðu farið. út — færu í blindingjaleik. Það varð ekki mjög skemmtilegt, einkum af því að anddyrið, þar sem leikurinn fór fram, var hitað eins og líkbrennsluofn. Seinna minntust menn þess, að það hafði einmitt verið Westmacott, sem kom með uppástungu, sem var ákaflega ólík honum. Hann stakk upp á því, að þau skyldu öll fara i blindingjaleik í sundlauginni. Þau skemmtu sér samt vel við það, West- macótt fór ekki ofan í, heldur gekk um á bakkanuiri. Satt að segja fóru ekki nema góðir sundmenn ’ofan í, því laugin var fjögurra metra djúp og ekkert aririað en handrið með- fram barminum, til að vega sig upp úr henni. Smiith og Westmacott lentu í stælum. West- macott sagði, áð fólk gæti ekki yitað í hvaða átt það synti, þegar bundið væri fyrir augun á þvi, en Smith, sem var mjög góður sund- maður, hélt því fram,' að ekkert væri auð- véldára, ef maður hefði yfiríeitt tilfinningu fyrir áttum. Það var komið fram yfir mið- nætti, þegar gestirnir fóru upp úr lauginni, 'en Smith og Westmacott urðu eftir, til að út- kljá deiluna þannig, að Smith átti að synda tíu sinnum eftir endilangri láuginni, án þess •'að-áð 'koma nokkru sirini við hliðárveggina. Þegar Westmácott batt 'vasaklútinn fyrir aug- un á vini sínum, til að fullvissa sig um að ekki væru brögð í tafli, voru allir farnir. Jæja, Smith synti sínar tíu ferðir og gekk vel, eftir því sem hann sagði sjálfur. Hárin tók aldrei í handriðið meðan hánn synti, því það var nokkuð hátt yfir yfirborði vatnsins, og þegar hann var búinn, ætlaði hann auðvitað að taka í það — en greip í tómt. Hann þreif klútinn frá augunum á sér, og sá þá að búið var að slökkva öll ljósin. Hann gat hvergi fund- ið handriðið og fór að gruna, hvað hefði kom- ið fyrir. Einhvern veginn hafði heilmikið vatn rúnnið úr lauginni meðan hann var með bund- ið ' fyrir augun, og nú var um ekkert annað að ræða en halda áfram að synda, þangað til einhver kæmi og kippti þessu í lag fyrir hann. Eða þangað til vatnið væri orðið svo grunt, að hann gæti staðið á botninum. Áður en langt leið, datt honum annað at- riði í hug. Hann vissi nokkurn veginn hvar vatnið rann úr lauginni, og að meðan verið var að skipta um vatn, var þar talsverður straumur. Hann fann engan straum núna, og þessvegna rann vatnið ekki lengur úr lauginni. Hann minntist þess um leið, að sundlaugin var langt frá íbúðarherbergjunum og því ó- líklegt að til hans heyrðist, þó hann reyndi að kalla. Hann gat heldur ekki skilið hvernig vatnið gat hafa byrjað að renna í burtu af sjálfsdáðum og hætt því aftur, án þess að nokkur maður kæmi þar nærri. Brátt fór hann að gruna, að þessi nýi vinur hans, Westmacott, hefði af einhverri óskiljanlegri ástæðu skilið hann þarna eftir til að drukkna. Jæja, það er sagt að djöfullinn líti eftir sín- um, og það vildi svo til, að næturvörðurinn varð var við, að vatnið rann úr lauginni, og minntist á það við einhvern. Það var farið að rannsaka málið, og Smith var dreginn upp úr. Það mátti ekki tæpara standa. Smith var auð- vitað sannfærður um, að hann hefði orðið fyr- ir kænlega undirbúinni morðtilraun. Því ekkert hefði verið auðveldara fyrir Westmacott eri a‘ð hleypa vatninu aftur í laugina, eftir að hann var drukknaður, og þá hefðu allir haldið, að hann hefði framið sjálfsmorð. Hvernig gat góð- ur sundmaður annars drukknað með handrið- ið við hendina. Það leit úr fyrir, að úr þessu yrði umfangsmikið mál, ekki síst eftir að Westmacott hafði gefið skýringu í einkavið- tali við lögfræðing sinn. Hann sagðist hafa verið að gera að gamni sínu, og kvaðst hafa ætlað að bjarga Smith seinna. Allt var gert til að þagga málið niður. Hóteleigendurnir lögðu sig einkum fram um það, því þeir álitu úti um vinsældir hótelsins, ef það yrði bendlað við hneykslismál. Enda gat Smith ekki sannað, að Westmacott hefði fiktað við tækin, sem hleyptu vatninú úr lauginhi. Þetta var ástæð- an fyrir því, að lögreglan lét málið niður falla, og Smith lét sér nægja að fá álitlegár skaða- bætur. Utgefendur hans voru alvég æfir. Þeir höfðu haft eitthvert veður af þessú og voru farnir að vonast til að geta selt eirihver kynst-' ur af næstu bók hans, vegna athyglinnar, sem- málið mundi vekja. ■ V- ■ Jæjá, þar skall hurð nærri hælum, og ég bjóst sízt af öllu við ■. að hitta Westmácott, sem virtist ákaflega daufgerður og lítill aéf-in- týramaður, aftur í sambandi við stárf mitt. Þó hafði lögreglan komizt að atriði, sem hefði breytt skoðun minni á honum, ef ég hefði vitað ; um það þá. Það vildi svo vel til fyrir lögreglunaj að þjónninn hans hafði setið inni á sínum yngri árum og vildi um. fram allt gefa henni allar upplýsingar. Hann sagði lögregiunrii, að hús- bóndi sinn hefði breytzt ákaflega mikið sið- ustu vikúna áður en hann fór í jólaleýfið. Einu sinni hafði hann komið heim- undir morgun og litið út eins og hræðileg byrgði hvíldi á hon- um, þó hann hefði venjulegá verið léttur í skapi. Nú bölvaði hann þjónunum og hrökk í kút við minnsta tilefni. Hann keypti Skamm- byssu, sem lögreglan fann heima hjá honum (ég gleymdi að taka það fram að haníi var piparsveinn), og það sem virtist ennundarlegra var að um sama Jeyti náði hann í banvænt eiturlyf. Seinna sagði ég honum, að það hefði verið undursamleg heppni að lögreglan skyldi ekki fylgja málinu fastar eftir. Ég held, að það hafi bjargað honum, að nýlega hafði lög- reglan tvisvar gert |sig að athlægi . . . Já, þið hafið rétt fyrir ykkur, ég kom líka þar við sögu. Tæpri viku eftir að málið var útkljáð kom nýr maður til sögunnar, maður, sem engum geðjaðist að. Þetta var ræfilslegur náungi að nafni Robinson, sem virtist liggja mikið á Westmacott var ríkur, taugaóstyrkur og annars hugar 12

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.