Vikan


Vikan - 17.12.1953, Síða 6

Vikan - 17.12.1953, Síða 6
EG er nýkominn til Englands frá Ástra- líu, sagði Louis Rougemont, þar sem ég dvaldist þrjátíu ár meðal villimanna. Þetta var vorið 1898, og nokkrum vik- um síðar var hann orðinn frægur. Bók- in um æfintýri hans birtist sem fram- haldssaga í víðlesnu tímariti, rækilega myndskreytt, og höfundurinn ferðaðist um England þvert og endilangt flytjandi fyrirlestra. Hann var að útliti alveg eins og land- könnuðir eiga að vera. Hann var tein- réttur og spengilegur og með grátt, fall- egt skegg; og hann var frjálsmannlegur í framkomu og talaði eins og lærðu menn- irnir. Almenningur hafði ánægju af, vísindamennirn- ír trúðu sögunni og allir voru á einu máli um, að hér væri á ferðinni stórmerkilegur maður. De Rougemont var fæddur i París 1844 — eða svo sagði hann. Lif hans hafði verið æfintýra- legt frá upphafi. Hann var naumast búinn að slíta bamaskónum, þegar hann lagði land tmdir fót og hélt til Singapore um Cairo, þar sem hann gekk í félag með perluveiðurum. Upp frá þeirri stundu, fullyrti hann, hófst æfintýrið fyrir alvöru. Hann var ekki fyrr kom- inn á perlumiðin en hann komst í kynni við ægilegt sæskrímsli, sjö metra langa ófreskju með loðinn haus. Svona til bragð- bætis varð hann svo sjónar- vottur að því, þegar risakol- krabbi gerði sér máltíð úr vesælum Kínverja, en í beinu framhaldi af því réð- ust sjóræningjar á leiðang- urinn, um það leyti sem hann var nýbúinn að finna þrjár undurfagrar og feiknverðmætar svartar perlur. Hinum hroðalega bardaga (sagði de Rougemont enn) lyktaði með því, að hann stóð einn uppi lifandi á skipinu. Skall þá á eitt voðalegt fár- viðri, sem hrakti skútuna undan sér dögum sam- an. De Rougemont lifði veðrið af með því að binda sig við mastrið, og einhvernveginn tókst honum lika að halda liftórunni í einasta félaga sínum, hundgreyi að nafni Bruno. Þeir höfnuðu að lokum á eyðieyju eða rifi, og var það um hundrað metra langt, tíu metra breitt og stóð aðeins tæpa þrjá metra upp úr sjó á flóði. Og þarna, sagði de Rougemont, lifði hann nú í meira en tvö ár í kofa, sem hann byggði úr skeljum. Hann reið risaskjaldbökum um sjóinn og stýrði þeim með því að þrýsta tánum í augu þeirra. En úr niðursuðudósum bjó hann til málm- Rougemont sýndi skjaldbökureið í Eng- landi. Skjaldbökunni hvolfdi. pjötlur, sem hann rispaði á neyðarskeyti og hnýtti við háls pelikana, í von um að þeir bæru hjálparkall hans til einhvers skipsins. Svo rann upp sá dagur, að fleka rak upp á rifið og var á honum Ástralíunegri, kona hans og tvö börn. De Rougemont tók konuna — Yomba hét hún — frá eiginmanninum og „giftist" henni. En þetta var aðeins byrjunin. Nú smíðaði æfin- týramaðurinn sér bát úr flekanum og hákarls- skráp, og sigldi til Ástralíu. Hann kom að landi í grennd við Cambridge-flóa, þar sem hinar blóð- þyrstu mannætur tóku eftir því, að hann var hvítur, og héldu þar af leiðandi að hann væri guð. Hann lærði mál villimannanna og kenndi Yomba að bjarga sér á ensku. Hann var jafnan hciðursgestur í veizlum villimannanna, en hafði að sjálfsögðu megnustu andstygð á mannakjöts- áti þeirra. Hann lenti i orustu við hval og tókst að koma honum dauðum á land. Þá efndu villimennirnir til veizlu, sem stóð meðan hvalurinn entist. Þeir gáfu honum „vegabréf" og létu hann ferðast milli hinna ýmsu ættbálka í góðu yfirlæti. Tók hann oftar en einu sinni þátt í hernaði þeirra, var í fylkingarbrjósti á stultum og skaut örvum að hinum skelfdu andstæðingum. Eitt sinn barðist hann við villinaut, særði það tveimur örvaskotum, en mátti samt stðkkva á bak þess, áður en hann fengi ráðið niðurlögum þess með stríðsöxi sinni. 1 lok bardagans setti að honum mikinn sótthita. Þá sá hann það ráð vænst að skríða inn í kvið nautsins og liggja þar af nóttina. Þegar hann vaknaði um morguninn, vai' hann orðinn alheilbrigður. Hinsvegar var hann hérumbil strandaður fyrir fullt og allt í nautskviðnum, þar sem skrokkurinn var farinn að stirðna. Hann fann gullmola svo stóra, að hann loft- aði þeim ekki, risastóra gimsteina — og hráolíu, sem gusaðist upp úr jörðinni. 1 klett einn klappaði hann feiknmikla mynd af Victoriu drottningu — og sagði áheyrendum sínum heima í Englandi, að hann hefði neyðst til að hafa drottninguna strípaða, þar sem villimennirnir suðurfrá vissu ekki hvað föt væru. En aldrei lét heimþráin de Rougemont í friði, og alltaf var hann að hugsa um, hvernig hann gæti komist heim til síns ástkæra föðurlands. Auk þess var þetta erilsamt líf úr hófi fram. Það rann naumast upp sá dagur, að de Rougemont mætti Berjast viö sjórœningja. glima við hvali, slátra mann- œtum? Hann vann sér ekki léttara verk. Svo kom hann heim til Eng- lands og varð frœgur — þangað til menn fóru að fá eftir- þanka og byrjað var að rannsaka málið. Þá sprakk blaðran! 6

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.