Vikan - 15.04.1954, Page 2
Þ() GETUR HÆTT Afi REYKJA
Framhald af bls. 13.
með að brjóta bindindið, án þess að
gera þig að athlægi!
Annað — Brjóttu bindindið ekki
„bara t þetta eina sinn.“ Á þamn hátt
geturðu ekki gert þér neina von um
að losna við ávarumn.
Þú losnar ekki við tóbaksþorstann,
nema með fullkomnu bindindi. Og þú
ert ekki búinn að sigra, fyrr en þú
ert að fullu og öllu laus við þennan
óeðlilega þorsta. Þú ert ekki frjáls
fyrr en þér stendur nákvæmlega á
sama um tóbakið. Nákvæmlega á
sama hátt og eitt staup er of mikið
fyrir drykkjusjúklinginn, eins er ein
sígaretta of mikið fyrir reykinga-
manninn. 1 hvert skipti sem þú neit-
ar sjálfum þér um sígarettu, færistu
nær markinu, sem þú hefur sett þér.
Þriðja — Vertu óhrœddur við
freistingamar, reyndu ekki að forð-
ast þœr — glímdu hiklaust við þœr.
Þessari aðferð má líkja við aðferö
íþróttamannsins, sem æfir sig undir
hina stóru keppni. Með því að venjast
freistingunum, ert þú í rauninni í
einskonar þjálfun. Þú herðist við
hverja raun.
Sá sem hættir að reykja, skyldi
líka gæta þess að dekra svolítið við
sjálfan sig fyrst í stað. Reyndu til
dæmis að veita þér þá ánægju, sem
felst í því að borða góðan mat. Fáðu
þér stundum kaffisopa eða gosdrykk,
þegar tóbaksþorstinn verður sérstak-
Svar til Ernu:
Þú ert að vísu nokkuð ung, en að-
aðalatriðið er, að þú sért hraust og
dugleg og óhrædd að glíma við erf-
iðleikana. Sértu það, erum við á Vik-
unni ekki í neinum vafa
um, að þú getir orðið
'jj kokkur á síldarbát með
stallsystur þinni.
m \ Um kaup og kjör get-
mj um við ekki gefið þér upp-
W | lýsingar; við ætlum —
P. fj með tilliti til aldurs ykkar
' — að það sé samkomu-
lagsatriði. En ráða vildum við þér
að reyna að fá pláss hjá góðum,
reglusömum formanni. Ef þú getur
sýnt foreldrum þínum, að traustur og
dugandi maður vilji taka við þér í
sumar, munu þau naumast neita þér
um þetta.
Vonum að þetta blessist og bátur-
inn þinn afli öllum bátum betur.
Ritstjóri URVALS biður „Kaup-
anda", sem skrifaði URVALI bréf,
að lána sér tímaritsheftið, sem hann
talar um í bréfinu. Það fæst ekki í
bókabúðum hér.
lega sterkur. Hafðu sælgæti af ein-
hverju tagi við hendina.
Þetta er sérstaklega mikilvægt.
Vertu ekkert hræddur um að þú
kunnir að venja þig á tyggigúmmí
eða, brjóstsykur. Löngunin í sælgæti
mun minnka eftir því sem tóbaks-
löngunin dvínar. Það er ótrúlega mik-
il hjálp að geta skotið einhverju
bragðgóðu upp i sig, þegar mann
langar sérstaklega mikið að reykja.
Við eigum enn eftir að minnast á
eitt atriði, sem þó er mjög mikilvægt
i baráttunni við nikótínið. Það er sú
vitneskja, sem maður öðlast snemma
í stríðinu, að maður geti hætt, þrátt
fyrir alla spádóma. 1 því einu felst
mikil og óvænt gleði. Líkaminn er
ekki einasta laus við hin skaðvænlegu
áhrif tóbaksins; hugurinn er líka laus
við þá þvingun, sem er tóbaksþorst-
anum samfara.
Þú ert meiri maður fyrir bragðið.
Þér liður betur, þú ert hraustari,
þróttmeiri, viðbragðsfljótari. Þú
mátt vera stoltur af því að hafa
sigrað. Eftir sex mánuði eða sex ár,
þegar einhver bíður þér sígarettu,
muntu hafna henni umhugsunarlaust.
Þú kannt að segja: „Nei, þakka þér
fyrir — ég reykti einu sinni, en
hætti." Og þú mátt vita, að reykinga-
maðurinn mun öfunda þig í hjarta
sínu, öfunda þig af því að vera laus
við þennan ófögnuð.
(Þýtt og endursagt)
Okkur langar til þess að biðja þig
um að birta fyrir okkur textann
„Hvar ertu vina sem varst mér svo
kær“, sem Haukur Morthens syngur.
— Edda og Hildur.
Svar: Hér er textinn „Hvar ertu“
við lag eftir Oliver Guðmundsson.
Hvar ertu vina sem varst mér svo
kær
veiztu að ég elska þig draumfagra
mær.
Upp frá þeim degi er þig dreymdi
hjá mér
dvelur minn hugur hjá þér.
Man ég þá stund er ég mætti þér
fyrst.
Man er ég fékk þig að skilnaði kysst.
Hví ertu horfin mér hugljúfa mær,
hvar ertu sem varst mér svo kær.
Mig langar til að biðja þig um að
afla fyrir mig upplýsinga. Svo er mál
með vexti að mig langar til að læra
bamauppeldi. Og mig langar til að
fá að vita ýmislegt i þvi sambandi. . .
Eg hef hug á að byrja næsta haust.
Eins langar mig til að vita hvert ég
á að senda umsóknina. — Gullý.
Svari Undanfarið hefur Uppeldis-
skóli Sumargjafar ekki verið starf-
ræktur, en nú stendur til að byrja
næsta haust. Námið tekur tæp tvö ár.
Þú skalt skrifa frú Valborgu Sigurð-
ardóttur, skólastjóra, Hagamel 16 og
fá hjá henni nánari upplýsingar.
Þangað skaltu líka senda umsóknina,
þegar þú ert ákveðin.
Viltu segja mér eitthvað um leik-
arann Gene Nelson. Hvenœr er hann
fæddur Er hann giftur og hvað á
hann mörg böm o. s. frv. Viltu gefa
mér heimilisfang hans og helzt birta
mynd af honum. — S. J.
Svar: Við getum leyst úr þessu öllu,
nema að við eigum því miður ekki
mynd af leikaranum. Hann er fædd-
ur í Seattle, 1920. Hann var orðinn
lipur dansari og skautahlaupari, þeg-
ar hann var í skóla og komst því að
sem aðalstjarna í skautasýningum
Sonju Henie. Hann var hermaður á
stríðsárunum og þegar hann kom
heim, fór hann að leika á leiksviði.
Én svo lagði hann leið sina til HoUy-
wood, þar sem hann dansaði og söng,
þar til Warner Bros gerði við hann
margra ára kvikmyndasamning.
Gene Nelson er bláeygur og ljós-
hærður. Hann er ógiftur og utaná-
skrift hans er Warner Brothers, Bur-
bank, California, U. S. A.
Hagstæð viðskipti.
Sendið 100 notuð íslenzk
frímerki og þið fáið:
1 sígarettukveikjara — eða
1 karlmanns-sokka — eða
20 stk. rakvélablöð (þýzk).
Sendið aðeins ógölluð frímerki.
RICHARD RYEL
Grenimel 28
Reykjavík
-
VEGNA PÁSKANNA
og hinna mörgu frídaga, sem í
hönd fara, er óhjákvœmilegt aö
fella úr blaði'ð í næstu viku.
Næsta tölublað Vikunnar kemur
pví út 29. apríl.
FORSÍÐUM YNDIN
Pétur Thomsen, sem tók for-
síðumyndina síðustu af forseta-
hjónunum, tók líka þessa mynd
af reykvískri blómarós að fara
á grtmudansleik. Eins 'og sjá
má, er kjóllinn hennar úr besta
efni — Vikunni. Lesendur Vik-
unnar munu lcannast þarna við
nokkrar forsíður — Sigfús HaTl-
dórsson við píanóið, Önnu
Neagle t hlutverki kvennjósnar-
ans Odettu, Rasputin, söngkon-
una í hljómsveit Stan Keaton,
balletstúlkur í Þjóðleikhúsinu,
Þórsmerkurmynd o. s. frv.
MUNIÐ
NDRA MAGASIN
Prjónakjólar
i
FALLEGT ÚRVAL
Garðastræti 2 — Sími Jj.578.
Útgefandi VTKAN H.F., Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Gísli J. Ástþórsson, Tjarnargötu 4, sími 5004, pósthólf 365.
2