Vikan


Vikan - 15.04.1954, Qupperneq 15

Vikan - 15.04.1954, Qupperneq 15
orðið bílslys. Þeir eru á leiðinni með slasað fólk. — Ég skal taka á móti því, svaraði læknirinn. Inni í skurðstofunni var Claire Duval farin að taka fram áhöldin. Hún átti von á erfiðri nótt. Þegar Lery læknir og hún voru búin að sinna átta sjúkl- ingum, kom aðstoðarlæknirinn inn. — Það er enn einn frammi, sem ég held að þér verðið að líta á. Það sést ekkert á honum, en ég er hræddur um, að hann sé alvarlega slasaður innvortis. — Komið með hann, svaraði Lery læknir. Hann rannsakaði sjúklinginn og sagði svo: — Gefið honum blóð, Claire. Rob- in aðstoðarlæknir hjálpar mér. Þetta er mjög sjaldgæfur skurð- ur og hann getur lært af því. Claire leit undrandi á hann. Venjulega talaði Lery læknir ekki svona rólega, þegar hann var búinn að vinna svona lengi og leggja óvenju hart að sér. En það virtist ekki skipta neinu máli, hvað kom fyrir í kvöld. Hann skipti ekki skapi. Með öruggum höndum skar hann upp og gekk frá sárum og bað meira að segja kurteislega um það, sem hann þurfti. Undir morguninn, þegar öllu var lokið, fannst Claire hún varla vera þreytt, aðeins örlítið ringluð . . . y^EGAR hún kom fram, stóð Lery læknir þar og var að berjast við að leysa böndin á sloppnum sínum. Nú voru hend- urnar á honum, sem höfðu virzt svo stöðugar inni í skurðstof- unni, farnar að skjálfa. Hún gekk til hans. — Leyfið mér að hjálpa yður. — Þakka yður fyrir, Claire. Ég verð að játa, að ég er alveg dauðuppgefinn. Það er ekkert gaman að fá svona slys eftir erfiðan dag. En maður verður að gera sitt bezta. — Ég skammast mín fyrir það, sem ég sagði við yður í morgun. Mér þykir vænt um að geta aðstoðað yður. Þér voruð hreinasti snillingur í kvöld. — Þér sögðuð aðeins sann- leikann, Claire. Mér er sagt að þér séuð að fara frá okkur. Ger- ið það ekki. Ég má ekki missa yður. Það reyndist ekki erfitt að fá hana til að skipta um skoðun. — Jæja, við skulum fara, sagði hann. Þau gengu hlið við hlið út úr sjúkrahúsinu. Og nú fannst þeim þau ekki vera ó- kunnug hvort öðru. En ef Lery læknir hefði séð svipinn á Claire, þegar hún kom heim, hefði hann vitað strax það sem hann fékk ekki að vita fyrr en löngu seinna. PRÁ Hollywood kemur sagan um konuna, sem vitjaði sálfræðingsins. „Ég hef svo miklar áhyggjur af manninum minum,“ andvarpaði hún. „Hann blæs reyk gegnum nefið, og það hræðir mig.“ „Það er alls ekkert óvenjulegt þó maður blási reyk í gegnum nefið,“ svaraði sálfræðingurinn. „En maðurinn minn reykir ekki.“ Heimilistæki þau, er við bjóðum yður eru framleidd af heims- þekktum fyrirtækjum, með áratuga reynslu að baki. FRÁ BRETLANDI: ‘ENGLISH ELECTRIC' KÆLISBCÁPAR ÞVOTTAVÉLAR 7,6 Kub.fet kr. 7.040.00 Kr. 4.390.00 FRÁ BANDARÍKJUNUM: KÆLISKÁPAR ÞVOTTAVÉLAR 10 Kub.fet kr. 7.958.00 Kr. 3.397.00 ARMSTRONG strauvélin er ódýrust allra strauvéla kr. 1.645.00. Mjög hagkvæmir greiðsluskilmálar i r i LAUGAVEG 166 15

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.