Vikan


Vikan - 10.03.1955, Side 10

Vikan - 10.03.1955, Side 10
HEIMILIÐ RITSTJÖRI: ELÍN PÁLMADÓTTIR Fæða, sem aldrei kemur á matborðið Kúmlega fimmti hluti matvælauppskerunnar, sem bændur heimsins sá til, kemur aldrei á mat- borðið, segir í tímaritinu Memo, sem Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) gefur út. H Ú S RÁÐ FINGRAFÖR eiga að hverfa af „póleruðum" húsgögnum, ef þau eru fyrst nudduð með veikri edikblöndu, og húsgagnaáburður síðan borinn á blettinn. Edik kemur lika að góðum notum, þegar litrík föt eru þvegin. Liturinn fölnar síður, ef svolitlu ediki er hellt út í skolvatnið. Ef látin er 1 tsk. af ediki á pönnu, sem búið er að steikja fisk á, hverf- ur fisklyktin alveg. Ef þú átt erfitt með að sofna, eftir að hafa drukkið vín, þá skaltu opna gluggann, gera nokkrar leik- fimisæfingar þangað til þú ert orðin móð. Eftir það sofnarðu undir eins. Hafirðu rifið kvöldkjólinn þinn, getur verið gott að líma glært lím- band undir rifuna. Það helzt i nokkr- ar vikúr og sést lítið. Hver var hún? TTÚN máLaði sig með hárauð- 1J-um varalit af mikilli leikni. Hún har rauðan lit á vangana, til að vekja áhuga karlmann- anna. Hún reytti hinar dökku auga- brúnir sínar og stýfði hárið. Hún máiaði neglumar á f ingr- um og tám. Hún bar með sér einkenni- legt ofið vesld og í því geymdi hún púðurkvasta, augnabrúna- plokkara, og stöng úr appelsínu- viði til að ýta aftur naglabönd- unum. Hún átti dásamlega fallegt hylld, skreytt fjöðrum, sem hún geymdi í púður, varalit og Ásptlað er að rúmlega 20% af væntanlegri matvælauppskeru heims- ins eyðileggist eða stórskemmist af völdum skordýra og pesta. En þau matvæli, er þannig fara forgörðum myndu nægja til að fæða nokkra tugi milljóná manna. Þekking manna og reynsla í bar- áttunni gegn jurtasjúkdómum og öðrum eyðileggingaröflum vex að vísu með ári hverju, segir í grein- inni, en á sama tima breiðast jurta- sjúkdómar út frá einni heimsálfu til annarar og skordýr flytjast milli landa með hinum hraðskreiðu sam- göngutækjum nútímans. Alþjóða upplýsingastarfsemi um jurtasjúkdóma og pestir er haldið uppi á vegum FAO, samkvæmt al- þjóðasamþykkt um jurtavernd. Upp- lýsingum er safnað um allan heim um sjúkdóma og skaðsemi skordýra. Árangursríkar varúðorráðstafanir. Sérfræðingur á sviði jurtasjúk- dóma var nýlega sendur á vegum FAO til að hjálpa bændum í Afgan- istan í baráttu þeirra gegn jurtasjúk- dómum og skordýraplágum. Hann komst að þeirri niðurstöðu m. a., að íbúarnir í þorpinu Rousa hefðu fund- ið upp mjög svo árangursríkar gagn- ráðstafanir gegn skordýrapest í ávaxtatrjám, ,,án þess að nota svo mikið sem gramm af skordýraeitri." Sérfræðingurinn, brezkur maður C. S. Catterell að nafni, skýrir svo frá, að þorpsbúar í Rousa hreinsi ávaxtatré sín af skordýralirfum með „berum höndunum". Er þetta gert haust og vor. Reynist mikil brögð að þeirri möl- tegund, sem skaðleg er fyrir ávext- ina, hjá einum bónda fremur en öðrum, safnast þorpsbúar saman hon- um til aðstoðar og hjálpa honum að hreinsa trén. Ef einhver neitar að hreinsa tré sín koma nágrannar hans í ávaxta- garð hans og taka til óspilltra mál- anna að þrífa tré hans — en þegar trén fara að bera ávöxt á næsta upp- skerutíma koma sömu nágrannarnir aftur í garð bónda, setjast undir trén og borða ávextina. „Ég mun ekki leggja til að dýrt skordýraeitur verði notað í stað þess- arar aðferðar," segir Catterell. „Heldur mundi ég leggja til að samskonar aðferð yrði tekin upp víð- ar. kinnalit. Hver var þetta? Þetta var Inkastúlka, sem uppi var fyrir 1000 árum. Fom- leyfafræðingur nokkur fann múmíuna, sem einu sinni var hún, ásamt eigum hennar, þeg- ar hann opnaði nýlega peruv- íska gröf. Stúlkur! Það er ekkert nýtt undir sólinni. (<7r English Digest) Matseðili Kryddaðar vöfflur: Hrærið 2 egg saman við 140 gr. af sykri og blandið í það 1 msk. af bræddu smjöri eða smjörlíki, 130 gr. hveiti, nokkrum afhýddum og niðurbrytjuðum sætum möndlum, % tsk. kanel og 1% líter af mjólk. Berið vöfflurnar á borð heitar með sykri. Klæðilegur Þetta er hentugur búningur fyrir konur, sem vinna úti. Skokkurinn er úr gráu ullar- efni, sem alltaf er í tízku og hvorki er of viðkvæmt né áber- andi. Sniðið á honum er þannig, að hann fer vel og aflagast ekki og pilsið er nægilega vítt, til þess að það hefur engin áhrif á það, þó setið sé í því meiri- hluta dagsins. Og allar getum við víst verið sammála um, að alltaf sé nauðsynlegt að vera snyrtilegur, jafnvel í vinnunni. En þessi skokkur hefur fleiri góða kosti. Það er auðvelt að sauma hann og auðvelt að breyta yfirbragði hans með því að nota við hann mislitar blússur og klúta. Ef við ætlum t. d. út að skemmta okkur eftir skrifstofu- tíma, er auðvelt að smeygja sér úr blússunni og setja upp hvítu líninguna með slaufunni, sem sýnd er á myndinni. 1 hana þarf 30 sm. af 90 sm. breiðu piqué- efni. Misliti silkiklúturinn setur sérkennilegan svip á skokkinn. búningur 1 honum eru 50 sm. af 90 sm. breiðu efni. Hvers konar peysur og blúss- ur, mislitar og röndóttar, með löngum ermum og stuttum fara vel við skokkinn og það sem meira er, þær þurfa ekki að ná alla leið niður í mitti. I rönd- óttu blússuna á myndinni þarf aðeins 1,30 m. af 90 sm. breiðu efni. Og loks setur stóri hvíti krag- inn úr everglaceefninu hátíð- legan svip á skokkinn og þann- ig útbúnum er hægt að fara í honum hvert sem er. í kragann þarf 60 sm. af 90 sm. breiðu efni. Ef þú hefur ekki efni á að fá þér þetta allt úr nýjum efn- um, þá hlýturðu að eiga gamla sumarkjóla, blússur og annað þessháttar, sem hægt er að nota, ofan í' skúffu. Það sem mestu máli skiptir, er að litirn- ir fari þér vel, því grái skokk- urinn gerir hvorki gagn né ógagn í því tilliti. Mundu að- eins, að heldur dökkur grár lit- ur lætur þig sýnast grennri en ljósgrár. Sítrónuvöf ílur: 175 gr. af hveiti hrærist saman við niðurrifinn börk af 4 sítrónum. Því næst eru þeytt tvö egg og þau hrærð saman við, ásamt 1% dl. af vatni. Nú er 1 msk. af smjöri eða smjörlíki og 4 'dl. af mjólk bætt út í. Yfir vöfflurnar er stráð sykri og rifnum sítrónuberki. 3. vöffluuppskriftin: Hrærið 350 gr. af hveiti vel saman við % líter af mjólk, blandið saman við 1 þeyttu eggi, 350 gr. af köldum, soðnum kartöflum, sem búið er að hakka og hræra, 1 msk. af sálti og að lokum % líter af mjólk í viðbót. Deigið er síðan látið bíða í 2 tíma, áður en vöfflurnar eru bakaðar. Vilji maður hafa þær sætar, má bæta sykri í eftir smekk. Vöfflurnar eru síðan bornar á borð með sykri og sultu. Salatsósa 1 egg, 20 gr. sykur, safi úr hálfri sítrónu, ýo dl. rjómi. Eggið er hrært með sykrin- um. Síðan er sítrónusafinn og rjóminn látinn saman við og hrært þangað til það er orðið vel jafnt. 10

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.