Vikan


Vikan - 10.03.1955, Qupperneq 15

Vikan - 10.03.1955, Qupperneq 15
Það fæðist einn á hverri mínútu Framhald af bls. 11. þjónusta við örvilnaðar konur kunni að færa yður einhvern hagnað — einkum þegar um er að ræða dóttur amerísks stál- konungs. En ég hef önnur áf orm! Alonzo sló öskuna af síga- rettunni sinni. — Á ég að skilja það þannig, að þér neitið að leyfa mér að leysa út armbönd- in? spurði hann. Sidonay kinkaði kolli í ákafa. — Einmitt, sagði hann. — Arm- böndin voru fengin að láni hjá Raymond. Þeim á að skila í fyrramálið. Ef ungfrú Carna- way vill heimsækja mig í kvöld og ræða málið, getur verið að ég afhendi henni armböndin fyrir þá upphæð, sem ég lét hana fá fyrir þau. Annars álít ég það skyldu mína að fara til lögreglunnar. MacTavish reis á fætur. Hann teygði sig yfir borðið, lagði lófann yfir andlit Sidonays og ýtti fast á. Sidonay féll aftur fyrir sig á stólnum og lenti í arninum. Alonzo gekk til hans, tók hann upp með annarri hendi og kastaði honum á sófann. — Ég kem í fyrramálið klukk- an tíu, sagði hann. Ég mun hafa tuttugu þúsund franka með- ferðis og þú færð mér arm- böndin, annars . . . Hann setti á sig hattinn og reigsaði út. Það var glaða tunglskin á svölum Les Palmiers hótelsins, svo að það myndaðist áhrifa- mikill geislabaugur um höfuð hinnar glæsilegu Helenar Carna- way, þegar hún gekk um með MacTavish. — En Alonzo, sagði hún. — Nú geturðu ekkert gert meira. Ef Sidonay neitar að leyfa þér að leysa út armbönd- in og fer til lögreglunnar á morgun, taka þeir mig fasta. Hamingjan má vita hvað pabbi segir, þegar hann fréttir það. Af hverju brosirðu? — Heyrðu, Helen, sagði MacTavish. — Það er ekki öll von úti enn. Á morgun klukk- an níu — um leið og opnað er — ætla ég til Raymonds. Ég œtla að kawpa armböndin. Ég hef verið fjári heppinn síðustu dagana og ég vil allt fyrir þig gera. Hann fann að hún þrýsti handlegg hans. — Svo ætla ég aftur til Sidonays, hélt hann áfram. — Ég ætla að biðja hann um að leyfa mér að leysa út armböndin. Ef hann neitar, þá læt ég sækja lögregluna. Vertu nú ekki að hafa á móti því. Það verður auðvelt fyrir þig að borga mér, þegar þeningarnir þínir koma, og ég vil margt til vinna, að sigra þennan Sido- nay. Það er því ákveðið mál. Hún andvarpaði fegin. — Þú ert dásamlegur, Alonzo! Og þar sem munnur hennar var nokkuð nálægt hans á þessari stundu, þá notfærði hann sér það — eða hvað hefðir þú gert? Klukkan tíu morguninn eftir kom MacTavish, óaðfinnanlega klæddur, heim til Sidonays. Hann sagði stúlkunni, sem kom til dyra, að hann vildi tala við veðlánarann undir eins og ef Sidonay væri með nokkur und- anbrögð, þá mundi hann teyma hann á næstu lögreglustöð. Sidonay kom glottandi fram. — Ákaflega snjallt, muldraði hann. — Ákaflega snjallt og hetjulegt. Ég hef haft samband við Raymond í morgun, og mér er sagt að þú hafir keypt arm- böndin sex fyrir ungfrú Carna- way. Hann yppti öxlum. — Ég býst við að þú getir verið ánægður með sjáfan þig, sagði hann að lokum, um leið og hann opnaði skúffu í borðinu sínu og tók upp armböndin. MacTavish var í sjöunda himni, þegar hann hélt til Les Palmiers hótelsins. Hann var ákaflega ánægður með sjálfan sig. Hann hafði bjargað hríf- andi ungri stúlku, sem var milljónamæringsdóttir og sem þar að auki virtist kunna að meta félagsskap hans. Innan fárra daga mundi hann fá end- urgreidda þá peninga, sem hann hafði lagt út. Og auk þess hafði hann haft þá ánægju að ergja Sidonay. Helen beið hans í anddyri hótelsins. Hann fleygði arm- böndunum í kjöltu hennar. — Svona fór það, sagði hann. Hún sendi honum töfrandi bros. — Mér finnst þú alveg dásamlegur, sagði hún. — Ég hef góðar fréttir að færa. Pabbi talaði við mig í síma frá Pitts- burgh og peningarnir mínir koma á morgun. Þá get ég borg- að þér það, sem þú hefur lagt út fyrir mig, þó ég muni alltaf vera í skuld við þig fyrir að bjarga mér frá þessum hræði- lega Sidonay. Bíddu héma svo- litla stund, bætti hún svo við. — Ég ætla að koma armbönd- unuir. í öryggishólfið. Eftir tiu mínútna bið reikaði hann út á svalirnar. Konur eru ■alltaf svo lengi að púðra á sér nefið, hugsaði hann. En þá sá hann nokkuð, sem kom honum til að brosa gremju- lega. Niður götuna óku tvær manneskjur í stórum sportbíl með fulla farangursgeymsluna. Annað var Sidonay og hitt ungfrú Helen Carnaway. Og með þeim fóru 20 þúsund frank- arnir hans, ásamt demanta- armböndunum sex. Þetta sýnir það, að það er alveg sama hversu snjall mað- ur er, það er alltaf til einhver, sem er örlítið snjallari. Þegar Alonzo stóð þarna eftir, lá við að hann dáðist að þessari snjöllu gildru, sem hann hafði gengið svo auðveldlega í. Hann sneri aftur inn í hótelið. — Það fæð- ist einn á hverri mínútu, muldr- aði MacTavish. FIX-SO nál og þráður næstu kynslóðar. — Sparið tímann, notið FIX-SO — Fatalímið FEX-SO auðveldar yður viðgerðina. Mafið ávalt túbu af FIX-SO við hendina. ÍSLENZKA VERZLUNARFÉLAGIÐ H.F. Sími 829Jf3 — Laugaveg 23 'A ffC íl Jr\ 15

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.