Vikan - 28.04.1955, Blaðsíða 5
henni þétt að sér, og hún gat fundið hið hug--
rakka hjarta hans slá við barm sér. Margt var
enn eftir, sem hún gæti lifað fyrir. Lífið hafði
margt að bjóða henni: Tyrol, heimili, börn Kon-
rads og hann sjálfan.
,,Ég vil ekki deyja.“
Hann gaf henni í skyndi síðustu fyrirmælin,
því að nú varð hann að fara. Hún varð að
ijúka hinni óhugnanlegu morgunmáltíð, eigin-
konan, sem aldrei myndi njóta brúðkaupsnætur-
innar, og fara síðan með Adolf til herbergisins,
þar sem hann hafði ákveðið að þau skyldu
deyja. Hún átti að taka við eiturhylkinu, en
ekki taka eitrið inn, og Konrad myndi siðan
koma til hennar og færa hana á brott.
„Ég vissi aldrei, að ég elskaði þig svona
heitt,“ hvíslaði hún.
„Annan liðþjálfa? Auf Wiedersehen“.
„Auf Wiedersehen."
Hann var farinn. Hún festi litla krossinn, sem
hún hélt á í hendinni, við talnabandið, sem hún
bar um hálsinn. Hún lét krossinn renna niður
á milli brjóstanna, og hún fann til huggunar
hins heilaga tákns. Það var eins og guð veitti
henni aftur viðtöku í návist sína. Það var eins
og hún sæi í fyrsta sinn sannleikann í mynd
krossins, og frá honum geislaði ljós heimsins.
Brúðkaupsverðurinn var ríkmannlegur, því að
nú var engin þörf á að spara mat lengur. Það
var enginn morgundagur fyrir höndum. Við og
við glitruðu tár í augum frú Göbbels, er henni
varð hugsað til barna sinna. Kampavínið flóði
og maturinn var afbragð.
„Eva borðar ekkert," sagði Adolf, en matar-
lyst hans var óskert.
„Ég er þreytt, skothríðin er svo hávær."
„Bráðum færðu langa hvíld, og þá þagna all-
ar byssur.“
Hún reyndi að brosa. Þó að Eva Braun væri
huglaus, varð frú Hitler að vera hetja. En hvern-
ig færi, ef Konrad yrði hinni ógurlegu skothríð
að bráð og kæmi ekki aftur? Hún þorði varla að
hugsa hugsunina til enda. Hvernig færi? Þá biði
hennar ekkert nema dauðinn.
Þau töluðu um sjálfsmorð. Það var cyanid í
hylkjunum, og þau myndu deyja umsvifalaust
og þjáningalaust. Hún varð skelkuð af tali
þeirra. Bálköstur hafði verið hlaðinn, en á hon-
um átti að brenna lík hennar og Adolfs, svo að
óvinirnir yrðu einskis vísari. Hún leit á ungleg-
ar hendur sínar og mjúka handleggi. Ég er of
ung til að deyja strax, hugsaði hún, en það var
ekki skipt um umræðuefni, og hún varð skyndi-
lega gagntekin yfirþyrmandi efa um, að Konrad
kæmi nokkurn tíma aftur.
Máitíðinni var lokið. Adolf rétti henni eitur-
hylki handa einkariturunum, og full hugrekkis,
sem hún hafði ekki trúað, að hún byggi yfir,
fór hún fram í fremra herbergið og rétti frú
Christian annað hylkið og frú Junge hitt. Hún
kvaddi þær báðar með handabandi. Hún reyndi
að telja sjálfri sér trú um, að allt þetta fólk
myndi deyja, en hún ein myndi lifa. Hún varð
að lifa. Hún fór aftur inn í setustofuna og tók
sér stöðu við hliðina á Adolf, en hann leit nú
út líkt og eiturlyfjaneytandi. Kveðjustundin var
komin. „Flýttu þér, Konrad!“ hrópaði hjarta
hennar. „Bregztu mér ekki. Ég þoli þetta ekki
iengur, og það er svo lítill tími til stefnu."
„Vertu sæll,“ sagði hún.
Adolf hafði aldrei sýnt slíka ró. Hann var
líkastur leikbrúðu, er þau gengu inn í innra
herbergið, þar sem síðasti þáttur hins mikla
harmleiks hafði verið settur á svið. Hann var
leikari fyrst og fremst og annað ekki. Hún leit
til dyranna, sem Konrad hafði ætlað að koma inn
um.
Ó, fljótt, fljótt, hrópaði hjarta hennar, en fyr-
ir ofan þau drundi hávaðinn af skothríðinni með
vaxandi þunga. Hávaðinn hafði aldrei verið meiri.
Hún sá hlaðna skammbyssuna á borðinu fyr-
ir framan Adolf, og hrökk ósjálfrátt skref aftur-
ábak. Hann leit á hana og mælti: „Hetjudauð-
inn bíður.“
,,Ég er hrædd.“
Framhald á ble.
HÁRNÁLAR
ERU HÆTTULEGAR!
JANIE KING horfði í kringum sig i her-
berginu, á stúlkurnar í næfurþunnu sum-
arkjólunum. Eitt andartak fannst henni,
að hún hlyti að sýnast ósköp ellileg í
gráu dragtinni sinni. En svona búning-
ur hæfði bezt vinnu hennar. Þokkaleg, end-
ingargóð föt áttu bezt við í auglýsingaskrif-
stofu.
„Æ, hvað svona boð eru kjánaleg,“ hugsaði
hún. „Öll þessi fyrirhöfn einungis vegna þess,
að stúlka er nýbúin að opinbera trúlofun
sína. Maður gæti haldið, að ekkert væri meira
virði í heiminum en að trúlofast.“
„Nú, og getur það ekki einmitt staðið heima,
stúlka mín ?“ hvíslaði óþægileg rödd í brjósti
hennar. „Væri þér ekki hjartanlega sama um
inu og hafa það óþvingað. En Hanny og Carol
gátu þetta auðvitað ekki. Það fór þeim illa
að gefa hárinu lausan tauminn. Kannski átti
vélritaði miðinn að minna þær á þetta.
Janie datt i hug á heimieiðinni, hvort ekki
mætti nota þetta ,,spakmæli“ í auglýsingu.
Hún gat ekki gleymt þessum orðum: „Hár-
nálar eru hættulegar!“ Það mætti til dæmis
nota þau í auglýsingar um snyrtivörur, nota
þau sem einskonar áminningu til kvenna,
sem ekki gáfu sér tima til að hugsa um út-
lit sitt. Hún ákvað að nefna það við ICirk.
S? V v
hverja einustu auglýsingu, sem þú hefur sam-
ið, ef Kirk Nichols vildi bara biðja þín?“
Hún horfði aftur i kringum sig í herberginu
og hjarta hennar fylltist öfund. Flestar stúlkn-
anna voru annaðhvort trúlofaðar eða giftar.
Hvernig fóru þær að þessu? Hvaða leyni-
vopn áttu þær ? Það var aðeins mánuður
síðan þær höfðu haldið upp á trúlofun Hanny.
Og nú ætlaði Carol systir hennar að gifta sig
eftir aðeins fjóra daga.
Hanny var lagleg og nett; hún hlaut að
ganga í augun á karlmönnum, hugsaði Janie.
En Carol var stór og sterkleg og útitekin.
Það var ekki hægt að segja, að hún væri lag-
leg.
Janie fannst allt í einu, að hún þyrfti að
hvíla sig stundarkorn. Hún var búin að fá
höfuðverk og hávaðinn gerði hana ringlaða.
Henni leið betur, þegar hún var búin að loka
baðherbergisdyrunum á eftir sér. Hún horfði
á sjálfa sig í speglinum. Hún var ekki fög-
ur, en hún var að minnsta kosti engu ósnotr-
ari en Carol eða Hanny — eða nokkur hinna.
Og hún var áreiðanlega laglegri en stúlkan,
sem Kirk Nichols hafði verið að gefa auga
í boðinu siðastliðinn föstudag.
Hún steig aftur á bak frá speglinum og
horfði á sjálfa sig í fullri líkamsstærð. Dragt-
in fór henni ágætlega, þótt efnið væri kannski
með grófasta móti. Hún var líka vel vaxin.
Svo tók hún eftir vélritaða miðanum, sem
limdui' var á spegilinn. Á honum stóð: „Hár-
nálar eru hættulegar!" Hvað í veröldinni gat
þetta þýtt? Átti þetta að vera einhverskonar
spakmæli ?
Það lá hrúga af hárnálum á snyrtiborðinu.
Janie notaði hárnálar sjaldan. Það fór henni
alveg eins vel að greiða hárið aftur með höfð-
Hann tók ekki eftir Janie í fyrstu, þegar
hún gekk inn í veitingahúsið tveimur dögum
seinna. Hann var að tala við laglega brún-
hærða stúlku við kaffibarinn. Janie hikaði
andartak og langaði mest til að snúa við.
Svona hafði henni aldrei áður verið innan-
brjósts. Hún var vön að ganga hiklaust að
Kirk, gefa honum olnbogaskot og minna hann
á tilveru sína eitthvað á þessa leið: „Afsak-
aðu, bróðir sæll, en skyldan kallar.“ En í
dag var hún dauðhrædd. Henni fannst hún
hlyti að sýnast svo kjánaleg í þessum spá-
nýja kjól- og með þessa spánýju hárgreiðslu.
Þegar hann tók eftir henni þar sem hún
hafði sest við borð, gekk hann til hennar, sett-
ist og pantaði mat. Hann blaðaði í auglýsinga-
textunum, sem hún fékk honum, og sagði:
„Mér líst vel á þetta hjá þér, og ég ímynda
mér, að forstjórinn verði líka ánægður. Hann
er orðinn svolítið . . .“
Svo þagnaði hann og starði: ,,Janie,“ sagði
hann undrandi. „Janie! Hvað hefur komið
fyrir þig?“
Hún brosti bara.
CAROL lék við hvern sinn fingur, þegar
Janie heimsótti hana í nýju íbúðina viku
seinna. „Þú ert fyrsti gesturinn minn,“ sagði
hún. Svo rak hún upp stór augu, alveg eins
og Kirk hafði gert. „Hvað hefur komið fyrir
þig, Janie? Þú ert alveg stórkostleg.“
Janie hló og sléttaði úr hrukku á nýja svarta
kjólnum sínum. „Hárnálar eru hættulegar,"
sagði hún.
Carol brosti: „Ég skil þig ekki.“
„Ég á við aðvörunarorðin á speglinum þín-
um. Mér datt í hug, að ef þau hefðu hjálpað
Framhald á bls. H.
. . VEIZTt? . .
1. Við hvaða tækifæri var þessi mynd tekin?
2. Er höfundur „Gissurrar gullrass“ lífs eða
liðinn ?
3. Var heilög Jóhanha uppi á 15. eða 17. öld?
4. Hver er faðir prentlistarinnar og hvenær
var hann uppi?
5. Hver þessara þriggja fékk Óskarsverð-
laun í ár: Marlon Brando, James Stewart
og Gary Grant ?
6. Hvað gerir strúturinn, þegar hann hræð-
ist?
7. Hver er stærsti stjórnmálaflokkur Frakk-
lands?
8. Á hvaða tveimur eyjum var Napoleon í
útlegð?
9. Hvar er hæsta bygging veraldar?
10. Hver lék aðalhlutverkiö í ,,Nóa“ Leik-
félagsins T
Sjá svör á bls. 11).
5