Vikan


Vikan - 02.06.1955, Blaðsíða 2

Vikan - 02.06.1955, Blaðsíða 2
TOSTUMNN VINSTTJLKXJR! Hérmeo birtum við annað ljóðið, sam þið báðuð um, hitt (Við sátum tvö) birtum við svo seinna. Gjörið svo vel! Viltu með mér vaka í nótt, vaka á meðan húmið hljótt, leggst um lönd og sæ lifnar fjör í bæ viltu með mér vaka í nótt. Vina min kær, vonglaða mær, einni ann ég þér, ástina veittu mér aðeins þessa einu nótt. Viltu vera svo góð að birta fyrir mig í nœsta blaði númerið, sem upp hom, þegar dregið var í Happdrœtti Byggingarsjóðs Víkings. Það átti að draga 2. apríl, en ég lief livergi séð það auglýst. — Helga. SVAR: Þú átt þó ekki númerið 13041 ? Ef svo er, þá ertu líka eigandi að Vespu-mótorhjóli. Það er búið að draga í’ Víkingshappdrætt- inu, eins og þú hélzt, en enginn hefur ennþá vitjað vinningsins. Þarf maður að hafa 4 stig i sundi, til að komast í Iþróttakennaraskól- ann á Laugarvatni? Nœgir gagn- fræðapróf, til að komast í þann skóla ? — Lási. SVAR: Svarið kemur nokkuð seint, Lási, en þar sem þú varst búinn að fá svar við hluta af bréfinu þínu, varstu látinn bíða þar til svolítið er farið að hægjast um með vorinu. Já, gagnfræðapróf nægir eða próf úr héraðsskóla. Þú þarft líka að hafa 4. stigs próf i sundi, en það munu flestir nemendur áðurgreindra skóla hafa tekið. Auk þess er krafizt vissrar kunnáttu í leikfimi, en það er greinilega tekið fram á umsóknar- eyðublaðinu, sem þú getur fengið hjá fræðslumálaskrifstofunni. Dreng- ir þurfa t. d. að geta stokkið 1.25 sm. og stúlkur 90 sm. ERLA! Utanáskrift kvikmyndaleik- arans Jeff Chandlers er: Universal Studios, Universal City, California, U.S.A. Bréfið getum við ekki samið fyrir þig. Þú hlýtur að þekkja ein- hvern, sem getur komið saman ein- faldri setningu á ensku. SVEINA! Jane Wyman er hjá Warner Brothers, Burbank Califor- nia, U.S.A. Hér- með fylgir mynd- in af henni, sem þú baðst um. Fögur voru fjöllin hér, fram i dalnum léku sér marga æskuunaðsstund yngissveinn og fögur sprund. Hlupu frjáls um hoit og mó, höfðu í blómalautum skjól, bundu kransa brostu, eins og blóm við sól. Bjartir lokkar léku í ljósi sólar dægrin löng. Þá var ástin Ijóðrænt lag, er lífið söng. Fegurð enn í fjöllum býr, — faðmur dalsins, grænn og hlýr. Sveinar enn þar fara á fund við fögur sprund. Fyrir JONNU birtum við „I faðmi dalsins“ eft- ir Guðmund Þórð- jane Wyman arson, sem Ragnar Bjarnason hefur sungið inn á hljómplötu undir lagi Bjarna J. Gislasonar. Tímaritið SAMTIÐIN flytur framhaldssögur, smásögur, kvennaþætti, bókafregnir, get- raunir, bráðfyndnar skopsögur, víðsjá, ferða- og flugmálaþættí, samtalsþætti, frægar ástarjátningar, bridgeþætti, úrvalsgreinar, nýjustu dægiu-lagatextana, ævisögur frægra manna o. m. fl. 10 hefti árlega fyrir aðeins 35 kr. Nýir áskrifendur fá 1 eldri árgang í kaupbæti. Póstsendið í dag meðfylgjandi pöntun: Ég undirrit....... óska að gerast áskrifandi að BAMTIÐINNI og sendi hér með árgjaldið, S5 kr. Nafn .............................................................. Ileimili .......................................................... Utanáskrift vor er: SAMTlÐIN, Pósthólf 75, Reykjavík. 1. Ég er svo maga- og rassstór, hvernig er liœgt að laga þá galla? 2. Ég lwf mikinn hármaðk. Hvernig á ég að losna við hann ? 3. Hvaða litir fara mér bezt? Ég er með skoleitt hár, fremur dökkt og með rauðleitum blœ, brún augu og er fremur rjóð í kinnum? SVAR: 1. Þú skalt reyna leikfimis- æfingar. Liggðu endilöng á gólfinu með handleggina að síðunum og veltu þér svo eins og kefli. Slíkar veltur reyna sem sé á kviðvöðyana og lend- arvöðvana. Þú getur líka gert æfingu, sem er í því fólgin, að kviðurinn er ýmist þaninn út eða dreginn inn. Hreyfingarnar eiga að fylgja andar- drættinum. Við þetta styrkist þind- in og kviðvöðvarnir. Þegar frá líður eru þessar æfingar gerðar gegn mót- stöðu, þannig að hjálparmaður styður flötum lófa á kviðinn eða með þvi að þungi, (bækur og þessháttar) er lagð- ur á hann. 2. Þessi kvilli er tíðastur á síð- hærðu kvenfólki, sem sjaldan klippir sig. Stundum er of tíðum hárþvotti, eða vondri sápu kennt um. Venjulega jafnar þetta sig með tímanum, án þess að nokkur lækning sé viðhöfð. 3. Hlýir og skæi'ir litir, eins og t.d. rautt, rauðgult, gult, brúnt og rauð- fjólublátt, ættu að fara þér vel. Einnig draplitað, grámað hvítt og svart. Ef þú hefur dökk-bronzleitt hörund ættirðu að forðast liti eins og lavenderblátt, fölblátt og kaldan, skærbláan lit. BRÉFASAMBÖND Birtlng & nafni, aldri o( helmilUf&nri koat&r 6 krönur. Jiirgen Gerwicke (við 14—16 ára Islending, skrifar þýzku og ensku), Miinster í Westf., Sentmarcuger — Wej 1106, Deutschland — Guðmundur Theodórsson (við stúlkur 15—17 ára), Laugalandi, Reykhólasveit, A-Barð. -— Hjördís Þorsteinsdóttir (við pilta 17—19 ára) og Valgerður Jónsdóttir (við pilta 15—18 ára), báðar að Eiðum, S-Múl. Forsíðumyndina tók Hjálmar Bárðarson á Núpsstöð- um í Skaptafellssýslu, en þar endar bílvegurinn, eins og kunnugt er, svo cnn eru þar næg verkefni fyrir þarf- asta þjóninn, hestinn. MUNIÐ NDRA MAGASIN Karl 6. Sölvason Forjnvor 18 Simi 7939 Beykjsrik ðíí gluggahreinsun fljótt og vel af hendi ieyst. | | — HBENGH) 1 SlMA 79S9 — : BAUNA KRAFTSÖPA Reynið hina hressandi og bragðgóðu súpu, búna til úr völdum HOLLENSK- UM grænum baunum. súpur diska ES2Ó Biðjið um „H0NIG“ Hver pakki inniheldur efni á 4 HEITJDSÖIAIHIKGÐIR: Eggert Kristjánsson & Co. h.f. Útgefandi VIKAN H.F., Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Gísli J. Ástþórsson, Tjamargötu 4, sími 5004, pósthólf 305. 2

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.