Vikan - 23.06.1955, Blaðsíða 2
PÓ8TURIIMIM
Geturöu gjört svo vel og sagt mér
eftir hvern kvœðið Saga málarans
er? Erindin eru alls lij. Fyrsta erind-
ið er svona:
Við bjuggum í koti hjá klifi út við sjó
í kœrleik við ylinn vona.
Hann pabbi minn gerði mönnum skó
hún mamma var þvottakona.
SVAR: Þvi miður vitum við ekki
hvar þetta kvæði er að finna, en ef
einhver annar lesandi gæti sagt okk-
ur það, eða skrifað það upp fyrir
okkur, mundum við með ánægju birta
það fyrir þig — eða að minnsta kosti
eitthvað af því.
__ I __
SVAR TIL D.F.: Réttindi til að kenna
leikfimi færðu, eftir að hafa lokið
prófi í Iþróttaskólanum á Laugar-
vatni. 1 21. tbl. Vikunnar svöruðum
við fyrirspurn um þann skóla. Um-
sóknareyðublöð færðu á Fræðslu-
málaskrifstofunni.
__ i __
Viltu gefa mér heimilisfang Burts
Lcmcasters, birta mynd af honum og
mKGUNlNN BVNJNR
MBD >MP< RNKKJ&M!
HEILDSÖLUBIRGÐIR:
Eggert
Kristjánsson & Co. It.f.
Reykjavík.
segja mér hvort hann er giftur, hvort
hann á börn o.s.frv.
SVAR: Burt Lan-
castef hefur verið
kvæntur Normu
Andersen síðan
1946 og á með
henni 5 börn. Þau
reka sína eigin
kvikmyndavinnu-
stofu og þangað
geturðu skrifað
honum. Utaná-
skriftin er: Norma
Products, 4000 w.
Oliver Avenue,
Burbank, Califor-
nia.
t _
Eg er með dökka bauga undir
augunum, sem hvorki hafa komið af
svefnleysi né lasleika. Eg er búin að
hafa þessa bauga lengi og þeir virð-
ast heldur stækka með aldrinum.
Heldurðu að það geti stafað af þvi
að -ég er ákaflega nœrsýn og þarf að
rýna mikið? Geturðu ekki gefið mér
einhver ráð, til að losna við þá?
SVAR: Við kunnum því miður engin
ráð betri en að hylja baugana sem
mest með kremi og púðri. En sagð-
istu rýna? Það er áreiðanlega miklu
ljótara og meira áberandi en baug-
arnir, sem þú hefur svo miklar á-
hyggjur af. Nú á dögum hikar engin
kona við að ganga með gleraugu, ef
hún þarf á að halda, því sé gler-
augnaumgerðin rétt valin, getur hún
verið til mikillar príði fyrir andlitið.
Og nú er hægt að fá umgjarðir í
öllum litum og gerðum. Auk þess
mundu ljósar umgjarðir draga úr eða
fela alveg baugana undir augunum á
þér, þar sem ljósir fletir draga allt-
af meira að sér athygli en dökkir.
Kanntu ekki erindið, sem þessar
Ijóðlínur eru úr: „Eg ungur unni þér,
þín ást var helguð mér . . . Mér
þœtti vœnt um, ef þú gœtir birt það
fyrir mig.
SVAR: Þessar ljóðlínur eru úr ljóði
eftir V. H. Hallstað, sem heitir „Eg
ann þér.“ Það er sungið undir lagi
eftir Óskar J. Cortes, og er svona:
Þú kemur vina mín,
í kvoid er máninn skín.
Við þræðum þekkta slóð —
þú ert svo góð.
'Ég ungur unni þér,
þín ást var helguð mér,
hún vefur sumri og söng
um síðkvöld löng.
Við hlýðum klökk og sátt
á kvöldsins andardrátt
er húmið hylur grund.
Það er heilög stund.
Nú veiztu, ástin min,
hve oft ég minnist þín.
Nú einan áttu mig.
Sg elska þig.
SSn.
BRÉFASAMBÖND
mrtlng: á nafni, aidri og; beixailisfanfff
kootar 5 krónur.
Lars Bernhardt, 12 ára (við íslenzk-
an dreng, sem er frímerkjasafnari.
Skrifar sænsku og svolítið í ensku)
Solliden Sanatorium, Östersund,
Sverige — ICatrín Ólafsdóttir, Fag-
urgerði 9 og Erla Guðmundsdóttir,
Sigtúni 3, (við pilta 17—20 ára),
báðar á Selfossi — Gunnar Sigurðs-
son, Máná og Öli Gunnarsson, Vala-
dal (við stúlkur), báðir á Tjörnesi,
S-Þing. — Elísabet Karlsdóttir,.
Skagabraut 44 og Heiðrún Þorgeirs-
dóttir, Sóleyjargötu 8 (við pilta eða
stúlkur 15—17 ára), báðar á Akra-
nesi — Júlía Friðriksdóttir (við pilta
eða stúlkur 16—19 ára), Felli við
Finnafjörð, Langanesströnd, pr. Þórs-
höfn, N-Múl.
Fsrjnror lð Siml 7»38
Bojkjavík
ÖU gluggahreinsun
fljótt og val af
hendi leyst.
— HRINGH) I SlMA 7939
FORSÍÐUMYNDIN
Slíka sjón má sjá á hverju ári
17. júní. Páll ísólfsson að
stjórna Þjóðkórnum. Myndina
tók Hjálmar R. Bárðarson.
MUNIÐ
NDRA MAGASIN
Fást í 6 stykkja pökk-
um, 25 í dós eða 50
í smekklegu glasi.
Holland
SÚPUTENINGAR
Ljúffengir og kraftmikl-
ir, bragðbæta súpur, sós-
ur og gefa matnum hið
rétta bragð.
HLÍLDSÖIIJBIKGÐIK:
Eggert Kristjánsson & Co. h.f.
0tgefandi VTKAN H.F., Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Gídi J. Ástþórsson, Tjamargötu 4, sími 5004, pósthólf 365.
2