Vikan


Vikan - 23.06.1955, Page 8

Vikan - 23.06.1955, Page 8
GISSURRI BREGST BOGALISTIN. Rasmína: Herra Geithóls hefur boðið þér með sér i veiðiferð í dag. Það verður fullt af fínum samkvœmismönnum í snekkjunni hans. Gissur: En ég œtlaði að gera annað, Rasmína. Rasmína: Gerðu það sem ég segi þér. Segðu Geithöls að þú þiggir boðið með ánœgju. Gissur: Ætlið þér að sœkja mig? Ágœtt, Geit- hóls, ég skal vera tilbúinn. Gissur: Og mundu svo að hringja i Hafnarhúsið og biðja fyrir þessi skilaboð til mín, Dinty. Sendiboðinn: Það komu skilaboð til Gissurrar. Hann er beð- inn um að koma strax á skrifstofuna sína. Gissur: É<; er því miður hrœddur um, að ég verði að hœtta við að fara, Geithóls. Þeir hljóta að vilja skrifa undir stóra samninginn, sem ég var að segja yður frá, núna strax. Gissur: Þetta fór alveg eins og ég bjóst við. Jœja, nú þarf ég bara að ná mér í leigubíl og hitta svo Dinty og hina strák- ana. Kalli kíila: Mér datt ekki í hug, að þetta tœkist, Gissur. Siggi sífulli: Gissur kann svei mér lagið á því. Lalli letingi: Er þetta ekki betra en að veiða fisk? Gissur: Ég vil nú alltaf heldur borða fisk en að veiða hann. Rasmina: Þú lýtur út alveg eins og nýsleginn tú- skildingur, Gissur. Ertu nú ekki feginn að þií fórst? Gissur: Svo sannarlega! Ekkert jafnast á við hreint loft og sólskin. Ég veiddi ekkert, en mér er líka alveg sama. Þjónninn: Herra Geithóls sendi Gissurri þetta og bað mig um að skila því, að veiðiferðin hafi verið dásamleg og að honum þyki leitt, að Gissur skyldi ekki geta komið með þeim. r Hjúkrunarkonan: Hérna kem ég með kvöld- matinn yðar, Gissur. Það er glcenýr fiskur. Gissur: Komið með eitthvað annað. Ég hef enga lyst á fiski í dag. ÞJÓÐIRNAR GETA UNNIÐ SAMAN IÆST þegar þér finnst útlitið í alþjóðamál- um sérstaklega dap- urlegt, skaltu hugsa um þann mikla sam- starfsvilja og þá ágætu al- þjóðlegu samvinnu, sem liggur á bak við þá stað- reynd, að þú getur sent bréf í pósti til útlanda. Þetta er sannarlega þess virði, að því sé gaumur gefinn. Alþjóðlega póstmálastofnun- in, sem stjórnar þessari óvenju- legu og ágætu alþjóðlegu sam- vinnu, var stofnuð fyrir rösk- lega 80 árum. Nærri öll lönd veraldar eru meðlimir. Jafnvel þau, sem enn standa utan sam- takanna (eins og t. d. Kína), starfrækja póstþjónustu sína í samræmi við reglugerðir Póst- málastofnunarinnar. Gerum ráð fyrir, að maður í Mlinchen sendi vini sínum í Milwaukee í Bandaríkjunum bréf. Hvernig kemst það til skila og hver borgar fyrir flutn- ing þess yfir lönd og höf? Þegar Póstmálastofnunin var stofnuð 1875, voru allir aðilar sammála um tvö meginatriði: að öll meðlimalönd stofnunar- innar mættu gegn gjaldi nota flutningatæki allra annarra meðlimaríkja til flutnings 'á pósti; og að ,,móttökulandinu“ bæri ætíð skylda til að dreifa þeim pósti, sem þangað bærist, ,,sendi-landinu“ að kostnaðar- lausu. Því er það, að þegar maður- inn í Miinchen póstleggur bréf- ið sitt, er það (til dæmis) flutt um borð í hraðlest til Parísar, þar sem franska póstþjónustan tekur við því og kemur því til Cherbourg. Þaðan kann það að fara með Queen Mary til New York. Bæði Frakkland og Bret- land taka gjald af Þýzkalandi fyrir að flytja bréfið. En þegar það kemst til New York, tekur bandaríska póstþjónustan að sér að skila því til móttakand- ans í Milwaukee endurgjalds- laust. Þar sem hvorki Bretar né Frakkar geta staðið í því að telja hvert einasta bréf, sem fer um hendur þeirra, er venjuleg- ast rannsakað á þriggja ára fresti, hve umfangsmiklir þessir flutningar eru. Rannsóknin fer fram snemma sumars, þegar ætlað er að póstflutningar séu næst því að vera „eðlilegir.“ Verið er að framkvæma eina slíka rannsókn einmitt núna. Hvert land leitast við að komast að ákveðinni niðurstöðu um hve mörg kíló af pósti berist frá hverju landi. Niðurstöðutölurn- ar eru síðan sendar til aðalbæki- stöðva Póstmálastofnunarinnar í Bern í Svisslandi, þar sem sérfræðingar hennar reikna út það grunngjald, sem hverju landi beri að greiða. Auk grunn- gjaldsins eru svo allskonar aukagjöld — svo sem fyrir flutning á böglapósti, fyrir á- byrgðarbréf og póstávísanir. Allar þessar upplýsingar fær Póstmálastofnunin í Bern, en hún tilkynnir síðan hverju með- limaríki á ákveðnum tímum, hve mikið það skuldi öðrum löndum fyrir póstflutninga. Það var Bandaríkjamaður — póstmálastjóri Abrahams Linc- olns — sem fyrstur stakk upp á því, að stofnað yrði til al- þjóðasamvinnu um póstflutn- inga. Efnt var til ráðstefnu í París 1863. Þar komu saman fulltrúar frá 15 löndum til þess að undirbúa stofnun alþjóða- sambandsins. Tólf árum síðar var Alþjóðlega póstmálastofn- unin sett á laggirnar með stuðn- ingi 22 ríkisstjórna. Alþjóðlega póstmálastofnun- in efnir til ráðstefna á fimm ára fresti. Þar eru reglugerðir stofnunarinnar teknir til ræki- legrar endurskoðunar. Síðasta ráðstefnan var haldin í Briissel 1952, og mættir voru póstfull- trúar frá um 200 löndum og ný- lendum. Það er óneitanlega uppörv- andi að kynnast starfsemi Al- þjóðlegu póstmálastofnunarinn- ar. Á þeim vettvangi hafa þjóð- irnar sannað, að þær geta unn- ið saman í friði og einlægni. Hjálpsemi borgar sig œvinlega OMENICO BOTTA heitir Itali einn, sem sat í fangelsi í Milano. Hann hafði hlotið 20 ára íangelsisdóm fyr- ir f jársvik og var búinn að afplána sjö ár, þegar hann fékk frelsi á mjög óvæntan hátt. Hann sýndi svo mikla fórnfýsi, þessi tugthúslim- ur, að yfirvöldunum þótti ekki annað sæma en að launa honum með sakar- uppgjöf. Domenico var að vinna í fang- elsisgarðinum, þegar rifrildi úr dagblaði fauk yfir fangelsis- múrinn. Þegar hann tók það upp, rakst hann á frétt um tveggja og hálfs árs gamla telpu að nafni Lucia Bechelli, sem var mállaus (sagði blaðið) vegna fátæktar foreldranna. Lucia var holgóma og faðir hennar, sem var verkamaður, hafði ekki efni á að láta fram- kvæma aðgerðina, sem mundi gera henni fært að tala. Domenico hugsaði mikið um þetta í klefa sínum á kvöldin. Loks tók hann óvænta ákvörð- un. Hann gekk á fund fangelsis- stjórans og fékk hjá honum leyfi til að hefja fjársöfnun í fangelsinu. Fólk, sem heimsótti fangana, var beðið að leggja eitthvað að mörkum í styrktar- sjóð Luciu litlu. Domenico efndi meira að segja til happdrættis meðal fangavarðanna um þrenn föt, sem hann hafði átt þegar hann var handtekinn; þau voru í geymslu í fangelsinu og hann vissi, að þau mundu orðin of lítil honum. En 2,500 krónurnar, sem hon- um tókst að safna, nægðu ekki. Svo að hann fékk talið um hundrað af samföngum sínum á að hætta að reykja í einn mánuð. Þótt þeir ynnu myrkr- anna á milli til þess að aura saman fyrir tóbaki, afhentu þeir Domenico hvern eyri þennan mánuð. Að lokum gat hann sent föð- ur Luciu rösklega 5,000 krónur, og þegar aðgerðin var fram- kvæmd, tókst hún ágætlega. Auk þess urðu sumsé þau ó- væntu málalok hvað Domenico áhrærði, að stjórnarvöldin gáfu honum upp sakir — og nú seg- ir hann, að hinar vikulegu heim- sóknir til Luciu séu honum bezta hvatningin til að lifa heið- arlegu lífi. Hann er raunar ekki eini af- Framhald á bls. lJf. BLESSAÐ BARNIÐ Mamman: Léztu hjólið þitt inn, þegar þú hœttir að leika þér á þvi? Lilli: Æ, ég gleymdi því, mamma. Pabbinn: En þú átt alls ekki að gleyma því. Hve oft er ég búinn að segja þér að láta það inn i bilskilr- inn á kvöldin? Pabbinn: Farðu strax út og settu hjólið inn. Láttu þetta svo ekki lcoma fyrir aftur! Lilli: Já, pabbi. Lilli: Það er lögregluþjónn að spyrja eftir þér, pabbi. Pabbinn: Hverjum? Mér? Lögregluþjónninn: Hvers vegna setjið þér bílinn eklci inn i bílskúrinn? Yður er fuilkunnugt um það, að það er bannað að slcilja bíla eftir úti á götunni á næturnar. 8 9

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.