Vikan


Vikan - 07.02.1956, Blaðsíða 6

Vikan - 07.02.1956, Blaðsíða 6
ÁSTRÍÐUR, ÁST, ÆVIMTYRI . . . . IT'RIPOLIBÍÖ býður upp á skemmtilegt myndasafn um þessar mundir. Hér eru þrjár myndir úr safninu. Tvær eru franskar og sú þriðja þýzk. Allar hafa þær verið sýndar á Norðurlöndum við mikla aðsókn, til dæmis gekk Fernandel- myndin í sex mánuði í Kaupmannahöfn, Sirkusdrottningin fékk góða aðspkn í tvo mánuði og Byltingarnætumar í fjóra mánuði. Tvær myndanna — Sirkusdrottningin og Byltingamætur — eru rómantízkar ævintýramyndir. Hinir Forboðnu ávextir Fernandels eru hinsvegar m. a. merkilegir um það, að í myndinni leikur þessi sprellugosi ósvikið dramatiskt hlutverk — og fádæma vel! Þetta er mynd um ástríður og ástir og örlagaflækjur. Hún er byggð á sögu eftir hinn fræga rithöf- und George Simenone. Ástin kemur líka mjög við sögu í Sirkusdrottningunni, en kringum þau átök em fléttaðar stórfelldar lýsingar á sirkuslífi. I leikskrá segir, að myndin sé byggð á sögu eftir nóbelsskáldið Gerhart Hauptmann. Byltingarnætur er spretthörð og glettin ævintýramynd í litum. Þarna er ást og rómantík, stríð og eltingaleikur, korðar og fjaðraskúfar, riddarar og fagrar meyjar. Það er ósvikið líf í tuskunum frá upphafi til enda og hin fagra Martine Carol, sem Caroline hershöfðingjafrú, ratar í hin ótrúlegustu ævin- týri. Byltingarnætur er skrautleg og spennandi mynd. Frakkar gerðu hana. Hún ver-ður væntanlega sýnd í þessum mánuði, og Sii’kusdrottningin er alveg á næsta leiti. Kfst: Maria Kitto í Sirkusdrottnin^unni. Mið: Fernandel og Francoese Arnoul í Forboðnir ávextir. Neðst: Martine Carol og Jean Claude í Byltingarnætur. Meö herkjunni hefst það ÞKÍxAR leikari hlýtur stjörnunafnbótina í kvikmyndaheimin- um, má nærri undantekning:arlaust reiða sig á þetta: það er dug-naði lians og seiglu að þalvka, að hann er kominn upp á tindinn. I>etta á jafnt við um konur sem karla. Furðu margir leikarar eru ahlir upp í fátækt. Ýmsir hafa unnið fyrir sér allt frá barnæsku. 1 stjörnuhópnum eru fyrrverandi verkamenn, bílstjórar, vinnukonur, afgreiðslu- stúlkur o. s. frv. Corinne Calvet, sem við birtum myndina af, er nú dáð og rílc kvikmyndastjarna. Bn fyr- ir fáeinum árum, stóð þessi sama stúlka í dimmum og drungalegum verksmiðjusal, þar sem dynurinn var svo mikill, að verkafólkið varð að liröpa eða nota bendingar til þess að gera sig skiljanlegt. „Vélin, sem ég vann við, var með einskonar þeytara,“ segir Corinne. „Hugsið ykkur risastóra uppjívottar- vél, sem i stað Jiess að J>vo borðbúnað þvær sótsvört olíuföt. Gusurnar ganga úr lienni þegar minnst varir. Við svona vél stóð ég S/2 tíma á dag. Kg var í gúmmitreyju og svuntu yfir samfestingnum. I>ó var ég oftast orðin holdvot að kvöldi.“ Hvenær datt Corinne fyrst í hug að verða lcikkona. „Kg var staðráðin í því frá blautu barnsbeini,“ segir hún. „Og jafnvel í allri ágjöfinni lijá herjans vélinni, efaðist ég eldti um, að einn góðan veðurdag mundi draumurinn rætast.“ — Ben Yalin. Corinne Calvet 6

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.