Vikan


Vikan - 23.02.1956, Qupperneq 3

Vikan - 23.02.1956, Qupperneq 3
Tíbet er sannarlega skrítið land ÞAR TÍÐKAST ALLAR TEGUNDIR HJÚNABANDA HVERNIG litist þér á að eiga f jóra eða fimm eiginmenn — og alla samtímis? Fyndist þér það alveg dásamlegt — eða liroðalegt ? Ef þú værir búsett í Tíbet, þætti það að minnsta kosti hreint ekkert merkilegt. Því að í landinu því er litið með fullkom- inni velþóknun á þær konur, sem giftar eru fleirum en einum manni. Þær eru meira að segja taldar mjög til fyrir- myndar. Jafn sjálfsagt þykir fjölkvæni. Sann- leikurinn er sá, að í Tíbet virðast við- gangast allar heimsins tegundir hjóna- banda — og nokkrar að auki, sem lands- menn hafa að gamni sínu fundið upp sjálfir. Ég hef vitað þess dæmi, að tvær kon- ur væru giftar þremur karlmönnum, að maður væri giftur tveimur systrum, að maður væri giftur mæðgum. Ég hef meira að segja komið í klaustur, þar sem munk- arnir eru giftir nunnunum! Þar sem börn- in þeirra verða líka munkar og nunnur, er nýliðasöfnun óþörf með öllu. Vinsælustu hjónaböndin í Tíbet eru hins- vegar af því tagi, sem nefnt var hér í upphafi. Það er að segja, það tíðkast mjög, að konur giftist ekki aðeins einum manni, heldur öllum bræðrum hans í þokkabót! Gangur málsins er á þessa leið: Þegar elsti sonur fjölskyldunnar verð- ur fullveðja, útvega foreldrar hans hon- um konu við hans hæfi. Fyrir kemur, en oft er það ekki, að hann fær sjálfur að velja stúlkuna. En jafnvel þá verður hann að fá samþykki foreldranna, áður en hann giftist henni. Ef allt gengur vel, er skiptst á gjöfum, og síðan verður úr þessu hjónaband. Það tíðkast alls ekki neitt rómantískt tilhuga- líf, eins og meðal vestrænna þjóða. Hinsvegar finnst Tíbetbúum ekkert við það að athuga, þótt stúlkurnar eigi börn fyrir giftinguna. Ég hef verið í brúðkaupi, þar sem brúðurin sat með barn á hnjánum og gekk augsýnilega með ann- að. Tíbetbúinn virðist líta á svona hluti með mestu velþóknun — sem sönnun þess að stúlkan geti átt sæg af börnum. Þess má geta í þessu sambandi, að ef kona eignast ekki börn, virðist það ekki hvarfla að Tíbetbúum, að hún sé ófrjó. Þeir kenna karlmanninum alltaf um. Tengdapabbi líka! Hugsum okkur nú, að kona sé gift einkasyni. Ef hún eignast ekki börn og tengdafaðir hennar er ekkill, getur allt eins farið svo, að hann giftist henni, í þeirri von að bjarga málinu. I augum Tíbetbúans er það mjög mikil- vægt, að hann eignist erfingja. Líka reyn- ir hann að kom í veg fyrir, að eignir fjölskyldunnar splundrist í allar áttir. Þarna er höfuðorsök þess, hversvegna kona er gjarnan gift heilum bræðrahóp. Ef maður á t. d. fimm syni og þeir gift- ast einni og sömu konunni, er hreint eng- in hætta á að fjölskyldueignin sundrist, þegar farið er að skipta arfinum. Hvað skeður ef hjón eiga eintómar dætur? Þá hreppir elsta dóttirin eignirnar og sérstök tegund af eiginmanni er fund- in handa henni. Hann þarf að gangast undir þá kvöð að taka upp ættarnafn hennar, og er tilgangurinn auðvitað sá, að það varðveitist áfram. Giftingarsiðir Tíbetbúa eru mjög ein- faldir. I rauninni gerist ekkert annað en að aftur er skiptst á gjöfum, munkur flyt- ur fáeinar bænir — og svo er þetta búið. Ef brúðguminn á fullveðja bræður, verða þeir sjálfkrafa eiginmenn brúður- innar líka. Yngri bræður taka hana sér fyrir konu jafnóðum og þeir ná lögaldri. Hvað gerist ef eiginkonunni fellur ekki við manninn, sem valinn hefur verið handa henni? Alls ekkert. Hún dúsir með hann og alla bræður hans. StÖku sinnum skeður það, ef henni fell- ur ekki við neinn eiginmanna sinna, að hún verður sér úti um elskhuga. Þetta þykir að vísu heldur hneykslanlegt uppá- tæki, en allt um það — það eru þess dæmi. Það kemur því fyrir, að kona, sem á fjóra fimm eiginmenn og börn með öll- um, á elskhuga í þokkabót! Hvað um afbrýðisemi í svona hjóna- böndum? Vill ekki verða togstreita milli bræðra, sem allir eru giftir sömu konunni ? Það fer þá mjög leynt. Almenningsálitið bannfærir slíkar deilur. Það er ekki ein- asta litið á afbrýðisemi sem smekkleysu, heldur fær sá afbrýðisami það orð á sig, að hann sé eigingjarn siðleysingi. • Samheldni fjölskyldunnar er feikn mikilvæg í augum Tíbetbúans og það stappar nærri þjóðfélagsglæp að sundra einingu hennar. Til dæmis er hjónaskiln- aður nærri óþekkt fyrirbæri í Tibet. Það er talið mun heiðarlegra að fá sér aðra konu eða annan mann heldur en að flæma upphaflega makann frá sér. Þótt hin tí- betsku hjónabönd líti harla einkennilega út í vestrænum augum, hafa þau því að minnsta kosti þann kost, að þau eru hald- góð. Eru þá ekki erfiðleikar í þessum hjóna- böndum, rétt eins og í hjónaböndum vest- rænna þjóða? Auðvitað. En fjölskyldan gerir sér far um að halda þessum erfið- leikum leyndum fyrir umheiminum, og tekst það furðanlega. Raunar virðast vandræðin oft stafa frá erlendum áhrifum. Ungir Tíbetbúar af efnuðu fólki reyna nú gjarnan að komast úr landi til náms og sækja þá einkum ensku skólana í Ind- landi. Eldri kynslóðinni finnst æskufólk- ið koma heim fullt af kynlegum hugmynd- Þessar skrautklæddu stulkur eign- um, svosem firrum sem þeim að vilja aðeins eiga eina eiginkonu eða einn eigin- mann. Ég þekkti stúlku, sem gengið hafði í skóla í Darjeeling í Indlandi. Þegar hún sneri heim til Tíbet, giftist hún einka- syni manns nokkurs. Skömmu seinna and- aðist tengdamóðir hennar. I samræmi við landsvenjur, lýsti tengda- faðir hennar yfir þeim ásetningi sínum, að hann hygðist giftast henni. Hún vissi ekki sitt rjúkandi ráð. En að lokum tókst mann- inum hennar að telja föður sinn á að hætta við hugmyndina. Önnur tíbetsk stúlka, sem líka hafði gengið í skóla í Darjeeling, giftist ungum Tíbetbúa, sem átti tíu ára gamlan bróður. Þegar hann var orðinn 17 ára, minnti tengdamóðir stúlkunnar hana á þá skyldu hennar, að hún tæki sér piltinn fyrir mann. Hún þverneitaði. Tengdaforeldrar henn- ar stóðu fast á ,,rétti“ sínum og heimt- uðu, að hún giftist jmgri bróðurnum líka. Stúlkan átti ekki um annað að velja en flýja til Indlands. Skömmu seinna kom í ljós, að maðurinn hennar elskaði hana nógu mikið til að gera líka uppreisn gegn fjölskylduaganum. Hann tók sig upp og elti hana til Indlands. Þar búa þau nú í farsælu hjónabandi og eiga fimm börn. Annars tíðkast það víðar en í Tíbet að konur eigi fleiri en einn mann. Þennan sið má finna meðal ættkvísla í Peru, Ecuador, Vestur-Afríku, Síberíu, Bresku Guianu, á Borneo, Ceylon og Marquesa eyjum í Kyrrahafi og jafnvel meðal eski- móa. Stúlkur á Marquesa eyjum hafa eina all undarlega siðvenju. Þær líta á það sem dónaskap að hylja brjóst sín. Vegna vestrænna áhrifa, klæðast stúlk- urnar blússum, þegar þær sækja vinnu í bæjunum. En þegar þær mæta tignu fólki eða ganga inn í musteri, fara þær ávallt úr þessum flíkum. ast eflaust sæg af eiginmönnum 3

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.