Vikan


Vikan - 29.11.1956, Blaðsíða 2

Vikan - 29.11.1956, Blaðsíða 2
PÓSTURINN Geturöu eklci birt fyrri mig visu, scm einu sinni var mikið sungin hér og var um hann Jón bróður söngv- arans. Þctta var held ég upphaflega sungið í. einhverri revýu. SVAR: Þú átt sennilega við vísur, sem sungnar voru í revýunni „Allt i lagi, lagsi“, og eru svona: lón og ég — við vorum eins og bræður áttum föður, sem var okkur kær. Ekki skorti okkur heldur mæður, ei þær reyndust færri vera en tvær. Lánið elti Jón — en lét í friði mig. Lánsami Jón — ég öfunda þig. Við vorum látnir ganga menntaveginn. Jón varð stúdent 1901. Mikið varð hann faðir okkar feginn. En fyrir mér það gekk ekki jafn greitt. Lánið elti Jón o. s. frv. Nonni bróðir lærður var í lögum, á lokaprófi varð hann númer eitt. Mér gekk heldur illa í flestum fögum, ég fékk alltaf núll komma ekki neitt. Lánið elti Jón o. s. frv. Svo kom þar að ég bað hennar Bistu. Bista sagði já, og kyssti mig. Unaðsleg var ást okkar í fyrstu — unz Jón tók hana bara fyrir sig. Lánið elti Jón o. s. frv. Nonni dó og kúrir nú í kistu — er kostaði meir en til átti það svín. Ég er stjúpi barnanna hennar Bistu — því Bista hans Jóns er núna konan min Lánið elti Jón o. s. frv. Viltu gera svo vel að segja mér eitthvað um söngvarann Elvis Preslei og helzt gefa mér heimilisfangið hans. SVAR: Foreldrar Elvis búa í 7 herbergja sveitahúsi, sem sonurinn hefur keypt handa þeim í Memphis, Tennesee í Bandaríkjunum, en sjálf- ur er hann á sífelldum ferðalögum, heldur stundum upp i fimm hljóm- leika á dag og sefur varla meira en 4—5 klukkutíma á sólarhring. Elvis Preslei er fæddur í Tupelo í Missisippi 8. janúar 1935 og er einka- barn verksmiðjustarfsmanns og konu hans, sem bæði eru af írskum upp- í'una. Elvis söng fyrst i kirkjukór lít- illar kirkju, þegar hann var fjögurra ára gamall, síðan tók hann þátt í einni skólaskemmtun og kenndi sjálfum sér að hamra á guitar, sem faðir hans gaf honum á 12 ára af- mælisdaginn hans. Hann getur ekki lesið nótur og er stundum svo harð- hentur við guitarinn, að hann brýtur einn eða tvo á sýningu. Dag nokkurn, þegar hann vann hjá rafmagnsfyrirtæki, lét hann taka upp söng sinn og guitarleik að gamni sínu. Forseti upptökufyrirtækisins heyrði plötuna af tilviljun og undir- ritaði samning við Elvis nokkrum mánuðum seinna. Þegar fyrsta plat- an kom fram í þriggja tíma útvarps- þætti var hún leikin sjö sinnum hvoru megin vegna sífeldra óska gegnum símann. Og nú hefur Elvis aldeilis nóg að gera. Hann er samningsbundinn til hljómleikahalds allt næsta ár og fyrir það fær hann upp í 25.000 dali á viku. Ágóðahluti hans af hljómplötusöl- unni verður 400.000 dalir árið 1956. Auk þess hefur hann fengið 7 ára samning við Paramount kvikmynda- félagið. Og Elvis veit svosem hvað hann á að gera við peningana. Hann á fjóra kátiljáka og varla líður sá dagur að hann kaupi ekki einhverja áberandi og glannalega flík (í stað- inn fyrir þær, sem rifnar eru utan af honum). Og Elvis Preslei heldur áfram að koma fram með þriggja manna hljómsveitinni sinni, hamra ,,rock and roll“, sem gerir unglingana alveg óða, og skekja sig allan á sviðinu — fyrir 25.000 dali á viku. D.S.H.! Elvis Preslei er ókvæntur. að öðru leyti er bréfi þínu svarað hér að ofan. BRÉFASAMBÖND Blrting & nsfni, aldri og lieíniilÍHfaii^ I koBtar 6 krönnr. Diana Eiriksdóttir (við pilt eða stúlku 16—18 ára) Sólvallagötu 10, Keflavík ■— Einar Magnússon (við stúlkur 18—21 árs), Hurðarbaki, Kjósarsýslu — Guðrún Lúðvíksdóttir (við pilta eða stúlkur 18—21 árs) og Steinar Lúðviksson (við pilta eða stúlkur 15—17 ára), bæði á Ytri Völl- um, V.-Hún. — Georg Ragnarsson, Akurgerði 11 og Sigurður Hannesson, Suðurgötu 88 (við stúlkur 17—18 ára), báðir á Akranesi. — Bjarnfrið- ur Haraldsdóttir, Mánabraut 9, og Sigríður Beinteinsdóttir, Suðurgötu 85 (við pilta eða stúlkur 16—18 ára) og Inga Sigurðardóttir, Gunnubraut 10 (við pilta eða stúlkur 15—18 ára), allar á Akranesi. — Ingi Árnason, Guðmundur Þorgrímsson (við stúlk- ur 15—17 ára) og Hreinn Ragnars- son (við stúlkur 14—16 ára), allir í heimavist í Menntaskólanum á Akur- Framhald á bls. llf. tidkar hreinM* i heiM* i GILLETTE 1957 fyrirhafnar Gillette Raksturinn endist allan daginn Otgefandi VIKAN H.F., Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Gísli J. Ástþórsson, Tjamargötu 4, sími 5004, pósthólf 365.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.