Vikan


Vikan - 30.05.1957, Page 9

Vikan - 30.05.1957, Page 9
GARMURINN HANN GISSUR Rasmína: Gissur, nýja eldabuskan okkar, hún Bina Bras, hótar að segja upp, ef hún fái ekki launa- hœkkun. Gissur: Haf Og hún kom í gœr! Gissur: Hvað mér viðvíkur, er mér hjartanlega sama þó að hún hœtti. Hún gœti ekki soðið egg skammlaust, þó að llf hennar lœgi við. Rasmína: Jœja, hún er Kunninginn: Svo að hún Bina Bras er strax lilaupin úr rokin. Þú verður víst að vistinni? borða úti i kvöld. Gissur: Já, hún heimtaði kauphækkun fáeinum klukkutím- Gissur: Með ánaegju. um eftir að hún kom. Gissur: Hún hafði lieldur ekki mikið fyrir þvi að ráða sig aftur. Sagðist vera búin að fá sœg af tilboöum. Gissur: Guð hjálpi fólkinu, sem Gissur: Þessi staönr lítur bara vel út. Ætli ég borði þessi kerling kokkar i! ekki hérna. Þjónninn: Er nokkuð að? Gissur: MaUirinn er óœtnr, það er aTlt og sumt. Hvar er forstöðumaðurinn ? Forstöðumaðurinn: Hvað get ég gert fyrir yður? Gissur: Þetta er semsagt gjörsamlega ócett. Stcilcin er þalcin brunasárum, lcartöfl- urnar eins og vatnsgrautur, grænmetið hálf- soðið og naumiega það. Forstöðnmaðurinn: Farðu með þetta fram í eld- hús og spurðu nýju eldabuskuna hvort hún vilji eklci reyna aftur. Þjónninn: Áttu við Bínu Bras, þessa sem þú réðir í morgun ? 8 VIKAN ÞEIR SÁU FRAM \ VEGIIMIM eftir KURT BRADLEY Þessir menn virtust vita, hvað framtíöin bar í skauti sér. 'l EG veit daginn og stundina sem ég mun andast á,“ stóð í bréfi til brezka sjónvarpsþáttarins: Eruð þér í vanda? „Eg mun deyja í fangelsi. Get ég ekki með einhverju móti umflúið þessi dapurlegu örlög? Getið þið ef til vill hjálpað mér?“ Eruð þér í vanda? er einn af vinsæl- ustu sjónvarpsþáttum brezka ríkisút- varpsins. Maðurinn, sem þetta bréf ritaði, hefur sannað það fyrir stjómandi þáttar- ins, að bókstaflega allt sem fyrir föður hans kom og máli skiptir, hefur komið fyrir hann — soninn — og á sama aldurs- ári! Stjórnandinn lét starfsmenn sína rann- saka tólf atburði úr lífi bréfritarans. Ná- kvæmlega samskonar atburðir höfðu átt sér stað í lífi föðursins. Hann dó í fangelsi. Á þetta að verða hlutskipti sonarins ? Það er sjaldgæft, að mönnum takist að spá fyrir um helstu atburðina í lífi sínu, þótt margir hafi spáð rétt um dauðastund- ina. Meðal þeirra má nefna rithöfundinn Robert Burton, sem árið 1620 kom samtíð sinni á óvart með því að tilkynna, að hann mundi andast 25. janúar 1640. Hvað hann síðan gerði! Indverji að nafni Bimalendu Ghosal gat ekki einasta sagt fyrir um það — upp á dag — hvenær ýmsir ættingjar hans mundu látast, heldur hvernig þeim mundi vegna í lifanda lífi. Þetta gerði hann með því að rekja sögu ættarinnar mörg hundr- uð ár aftur í tímann. Hann byrjaði með því að spá því, að faðir hans mundi deyja hinn 16. júní 1916. Fjölskyldan hló að honum. En hann hafði rétt fyrir sér. Þegar Bimalendu Ghosal kom til Eng- lands árið 1936, fékk hann skeyti frá fjöl- skyldu sinni, sem tjáði honum að móðir hans væri hættulega veik og vonlaust um líf hennar. Hann símaði um hæl, að hún ætti eftir að lifa í mörg ár ennþá; hinsveg- ar mundi yngri systir hans andast innan níutíu daga! Og það gerði hún. „Sjálfur mun ég andast,“ spáði hann, „17. júní 1945.“ Og enn hitti hann naglann á höfuðið. Það var samt ungverskur maður, sem gæddur var furðulegustu spádómsgáfunni, sem um getur. Það verður ekki betur séð en hann hafi nákvæmlega vitað, hvað fyrir hann mundi bera í lífinu, hversu skemmti- legt sem það má vera. Hann hét Elak Barna og var um skeið ráðherra. I æsku var hann gjörólíkur jafnöldrum sínum, líkari fullorðnum manni en barni. Hann grét aldrei, því að hann virtist gera sér ljóst hve tilgangslaus tárin eru. Ef móðir hann gleymdi að gefa honum á pel- ann, leit hann ásakandi á hana! Hann var ákaflega hlýðinn og námsfús. Hann var satt að segja fullkomið undra- barn. Þegar drengir töluðu um að verða eitthvað spennandi, þá kom hann öllum á óvart með því að lýsa yfir: „Ég ætla að verða aðstoðarutanríkisráðherra!“ Hann virtist ávallt vita, hvað fyrir hon- um lá. Þótt hann kvæntist, varð hann aldrei ástfanginn, því að hann virtist ein- faldlega ekki geta hrifist af neinu né nein- um. Þegar hann var kvaddur til herþjón- ustu, vissi hann það fyrirfram, að hann mundi losna við þá kvöð vegna hjartaveilu. Barna sást aldrei brosa, enda brosir maður að hinu óvænta. Enginn heyrði hann kvarta, því að það er bamalegt að kvarta yfir því, sem ekki er hægt að um- flýja. Að lokum var hann skipaður aðstoðar innanríkisráðherra, en hann vissi, að hærra muridi hann ekki komast' í met- orðastiganum. Hjartasjúkdómur hans ágerðist, svo að hann hækkaði líftrygginguna sína og keypti sér legstað í fallegum kirkjugarði. Hann óttaðist ekki dauðann. Mánudaginn 5. febrúar 1933 hringdi hann á lækni sinn og bað hann að vitja sín klukkan níu árdegis á föstudag. Klukk- an hálf níu fékk hann tak fyrir hjartað. Hálftíma seinna kom læknirinn. Því sem hér hefur verið lýst, hafði Barna skrifað í dagbók sína áður en það gerðist. Rétt áður en hann gaf upp öndina, fékk hann konunni sinni dagbókina og sagði: „Ég hef skrifað í hana framtíðaráætlun þína.“ Barna hafði haldið dagbækur árum sam- an, og þeir sem fengu að glugga í þær á meðan hann lifði, segja, að á því sé eng- inn vafi, að hann hafi hvað eftir annað vitað upp á hár hvað í vændum var. Það er vissulega sjaldgæft, að menn geti á þennan hátt séð fyrir óorðna hluti í lífi sínu. En margir hafa lýst sínu eigin andláti. Árið 1953 var tíu ára gömlum dreng í Miinchen, Horst að nafni, sagt að semja dálitla ritgerð um einhvert eftirfar- andi fimm viðfangsefna: 1) Fæðing. mín; 2) Móðir mín; 3) Slysahættan á vfegun- um; 4) Ferðalög; 5) Hvaða starf hentar kvenfólki bezt? Hann kaus þriðja viðfangsefnið. 1. rit- gerðinni lýsti hann því, hvemig ungur piltur á reiðhjóli var að flýta sér heim til sín, reyndi að fara fram úr vörubíl, sem var með múrsteinahlass, varð fyrir bílnum og lést samstundis. Klukkustundu síðar var Horst lagður af stað heim á leið á hjólinu sínu og lá mikið á. Eins og hann lýsti því í ritgerð- inni, reyndi hann að skjótast fram hjá vörubíl hlöðnum múrsteinum, varð fyrir honum og lét lífið. Franz Meyer, prófessor við háskólann í Jena, var í júní árið 1937 kvaddur að dán- arbeði eins nemanda síns, sem fékk honum lykil að öskju og bað hann að opna hana að sér látnum. Stúdentinn andaðist 13. dag mánaðarins og Meyer fór að ósk hans. I öskjunni var bréf til hans, þar sem hinn látni lýsti óhugnanlegum draumi, sem hann hafði dreymt. Honum hafði verið gengið inn í kirkju- garð, þar sem hann sá sér til mikillar skelfingar mosagróinn legstein með nafni sínu á. Á steinum var dánardagurinn: 13. júní 1937. ÁST VIÐ FYRSTU SÝN Hér eru þau, banda- riski íþróttamaðurinn Harold Connolly og tékkneska íþróttamærin Olga Fikotova, sem mest var talað um fyrir skemmstu, þegar óvissa ríkti um það hvort ást- arævintýri þeirra fengi góðan endir. Það varð ást við fyrstu sýn, þeg- ar þau birtust á Olym- píuleikunum í Ástralíu, en þar varð Conolly hlutskarpastur í sleggju- kasti og Olga sigraði í kringlukasti. Um skeið virtist henni ganga eitt- hvað treglega að fá far- arleyfi frá Tékkóslóvak- íu, eftir að luin og Con- nolly opinbernðu. En fór allt vel og er móðir Con- að bjóða þau þetta þarna nollys velkomin til Bandaríkj- anna. VIICAN !»

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.