Vikan


Vikan - 27.06.1957, Side 2

Vikan - 27.06.1957, Side 2
o Við gömlu hjónin fórum á gömlu dansana 17. júní og þar var sungið og spilað lag, sem okkur minnir að hafi heitað Á réttardansleik. Af þvi við erum nú sveitafólk, langar okkur að fá textann. Getur þú hjálpað okk- ur, Vika góð? — Karl og kerling. SVAR: „Á réttardansleik" er eftir Loft Guðmundsson blaðamann. Hér er textinn hans: Á grundinni við réttarvegginn ganga þau í dans, og Gunna stígur jitterbugg en Jónki óla-skans; Jónki bóndi í hjáleigunni og kaupakonan hans. Brosljúf, ástfús borgarmœr, sem bregður ei við neitt, ilmvatnsþvegin, uppmáluð og augnabrúnareitt, og Jónki hefur rakað sig og rauðan lubbann greitt . . . Hæ-hæ og hó-hó, tónar töfra og kalla. Hæ-hæ og hó-hó, hljóma klettar fjalla. Og fullur máninn gægist yfir grettið tindaskarð; geislasindri fölvu stráir laut og döggvott barð. Er það bara blær, sem pískrar bak við réttargarð? Heitt að Jóni hallast Gunna, hvíslar: Ég er þreytt . . Hvaða fjas og vitleysa, — og Jónki brosir gleitt. Ó, hann Jón, það erkiflón, sem aldrei skilur neitt. Hæ-hæ og hó-hó, grund við dansinn dynur. Hæ-hæ og hó-hó, harmonikan stynur. Á grundinni við réttarvegginn gengið var I dans, og þegar Jónki þreyttist á að þramma Óla-skans, vegavinnustrákur stökk af stað með Gunnu hans. Og fullur máninn gægist yfir grettið tindaskarð, glottir kalt að Jónka, er skimar út um laut og barð. Já, — hamingjan má vita hvað af henni Gunnu varð . . . Hæ-hæ og hó-hó, hrópar Jónki og stynur. Hæ-hæ og hó-hó, dimmt í klettum dynur. Fyrir nokkrum dögum sá ég hér í verzlun einkar fallega garðstóla, sem FORSÍÐUMYNDIN Hér er hún aftor komin, fegurðardrottning ársins — Bryndís Schram. Okkur fannst viðkunnanlegra að birta myndir af henni einni og nýkrýndri. — Þessi fegurðar- samkeppni er annars buin að valda okkur á VIKUNNI nokkrum erfiðleikum. Svo er mál með vexti, að á sumrin að minnsta kosti verða síðustu síðurnar að vera tilbúnar til prentunar á föstudagskvöldi, eða fjórum dögum áður en byrjað er að dreifa blaðinu. Nú vildi svo til, að feg- urðardrottningin var að þessu sinni valin á föstudags- kvöldi, eða með öðrum orðmn eftir að frágangi blaðsins átti að vera lokið. Þennan vanda var aðeins hægt að leysa með því að prenta mynd af DKOTTNINGAKEFNUNUM, fresta prentun bls. 2 fram á laugardagsmorgun og setja þá — eldsnemma — inn á síðuna nafn og númer þeirrar stúlku, sem hreppt hafði titilinn. Hinsvegar var ógerlegt að birta strax mynd af henni „sóló“, nema þá að leggja í þann kostnað að hafa tilbúin myndamót af ÖLLUM keppendunum. — Þetta er með öðrum orðum ákaflega flóMð. En okkur á VIKIJNNI fannst skemmtilegra að útskýra það fyrir kaupendum okkar, hvaða atvik ollu því, að ógerlegt var fyrr en nú að sýna nýju fegurðardrottn- ingunni þá sjálfsögðu kurteisi að bjóða henni einni á forsíðuna okkar. LJÓSM.: SIGM. M. ANDKESSON. kostuðu á fimmta hundrað króna. JGg œtlaði að láta eftir mér að kaupa einn, en tók fyrst vinkonu mina með mér í verzlunina og sýndi henni grip- inn. Hún gat frœtt mig á því, að í Sví- þjóð kostuðu samskonar stólar tuttugn til þrjátiu krónur sænskar. Ég verð að játa, að þessar upplýs- ingar komu svo ónotalega við mig, að ég hœtti við kaupin. En eftir á að hyggja: getur þetta annars verið rétt hjá konunni ? — Hanna. SVAR: Já, og VIKAN þykist meir að seg-ja vita hvaða stólategund sé hér á dagskrá. En samanburðurinn verður reyndar ekki alveg eins sorg- Framhald á bls. 15 Fjöldinn leggur leið sína til nkkar vegna þess að hjá okkur er ávaUt bezta úrval heimilis-raftækja. — Höfum nú fyrirliggjandi: ELDAVÉLAR, þýzkar STRATJVÉLAR, þýzkar TJPPÞVOTTAVÉLAR, amerískar HRÆRIVÉLAR, amerískar ELDAVÉLAR, INNBYGGÐAR í eldhúsborð og bakarofn í vegg, sænskt. — Hagkvæmt verð. RAFMAGNSOFNAR og ARINAR (kamínur) vöfflujarn STRAUJARN og GUFUSTRAU- JARN. HRADSUÐUKATLAR og KÖNNUR LAMPAR alls konar, innan og utanhúss. Véla- og raftækjaverzlunin h.f. Bankastræti 10. — Sími 2852. Útgefandi VIKAN H.F., Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaöur: Gísli J. Ástþórsson, Tjamargötu 4, sími 5004, pósthólf 495.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.