Vikan - 02.06.1960, Blaðsíða 28
I’ENIMAVINIK
Asbjörn Laate, Krusesgt. 1, Oslo, Norge. 29
ára gamall skrifstofumaður, kann ensku, þýzku,
dönsku. — Rene Gill (16 ára stúlka) Apt 6,
123 Vz James Street North Hamilton, Ontario.
Vill skrifast á við 17—19 ára pilt. — Mrs. Myrtle
Ross, Thornton, Ontario, Canada. Miðaldra
hjúkrunarkona, sem vill skrifast á við mann
eða konu. — Margrét Ingimarsdóttir, 1. Conrwell
Road, Cleettnorpes, Lincs, England. — Halla
Guðmundsdóttir, Humberston Court, 10 Humber-
ston Avenue, NR Grimsby, England. — Lára
Haraldsdóttir, Danesmere 69, Cluirnc Avenue,
Humberston, Lincs, England. Þessar þrjár ís-
lenzku stúlkur langar til að skrifast á við pilta
á aldrinum 18—22 ára. — Guöný S. Kristjáns-
dóttir, Enni, Viðvikursveit, Skagafirði, við pilt
eða stúlku 16—18 ára, mynd fylgi. — Guðrún
Ragna Jónsdóttir, Skrúð, Reykholtsdal, pr.
Borgarnes. Vill skrifast á við pilta eða stúlkur
12— 14 ára. — Guðrún Benediktsdóttir, Víðigerði,
Reykholtsdal, pr. Borgarnes. Pilta og stúlkur
13— 16 ára. — Anna Magnúsdóttir, Húsmæðra-
skólanum Löngumýri, Skagafirði, óskar eftir
bréfi frá pilti á aldrinum 20—25 ára. — Sigur-
lína Jónsdótir, Hiismæðraskólanum Löngumýri,
Skagafirði, óskar eftir bréfi frá 20—25 ára
manni. — Sigrún Sigurðardóttir, Húsmæðraskól-
anum Löngumýri, Skagafirði, óskar eftir bréfi
frá manni 20—25 ára. — Hulda Jónsdóttir, Hús-
FARAH DIBA
Framháld af bls. 15.
Undanfarna daga hefur varla verið talað um ann-
að en Farah Diba. „Sú var ekki lengi að því að
hremma gullfiskinn", segir einn, en svo minnast
þeir atburðar, sem gerðist fyrir tveimur árum.
Það gerðist í lok fyrsta kennslumisseris við „skírn-
ina“, sem allir nemendur þurftu að taka þátt í.
Farah Diba hafði nýlega látið innrita sig í skól-
mæðraskólanum Löngumýri, Skagafirði, óskar
e-ftir bréfi frá pilti 19—23 ára. — Kristín Björg-
vinsdóttir, Húsmæðraskólanum Löngumýri,
Skagafirði, óskar eftir bréfasambandi við pilt
18—22 ára. — Kristín Jónsdóttir, Vonarstræti
3, Reykjavík, við pilta eða stúlkur 16—18 ára.
— Jóhanna Gunnarsdóttir, Vonarstræti 3,
Reykjavík, við pilta og stúlkur 16—18 ára. —
Olga Björnsdóttir, Ekru, Eskifirði, pilt eða
stúlku 14—15 ára. — Kristín Hreggviðsdóttir,
Hruna, Eskifirði, pilt eða stúlku 15—16 ára. —
Þórarinn Stefánsson, Gránufélagsgötu 11, Akur-
eyri, óskar eftir bréfasambandi við pilt eða
stúlku 14—16 ára. — Elsa Jónsdóttir, Vestur-
götu 26, Akranesi, vill skrifast á við pilt 14—16
ára. — Ingibjörg Árnadóttir, Suðurgötu 16, Akra-
nesi, við pilt 15—l(f ára. — Ágústa Friðriks-
dóttir, Miðstræti 5a, Vestmannaeyjum, óskar
eftir bréfaskriftum við pilt á aldrinum 16—19
ára.
ann, og þó að hún hefði umgengizt hina nemendur
bæði við námið og í glöðum hópi þeirra á veit-
ingahúsunum, hafði hún haldið þeim í nokkurri
fjarlægð, að vísu vingjarnlegri, en óyfirstígan-
legri fjarlægð. Það, sem kom fyrir á skírnar-
daginn, var gott dæmi um þetta. Meðal margra
annarra þrauta áttu nemendur að svara ýmsum
spurningum, og voru þeir skyldugir að svara þeim,
hversu óþægilegar og nærgöngular sem þær voru.
Ef það mistókst, fengu þau úr kaffikönnunni yfir
sig, — kaffinu var skvett beint framan í þau.
Farah slapp ekki heldur við það, og þó að hún
væri rennblaut langt niður á bak, brosti hún glað-
lega. Loks spurði dómarinn: „Hefur þú kysst
nokkurn pilt?“ „Nei,“ svaraði Farah. Allir lustu
upp ferlegu ópi. Dómarinn, en hann var rauð-
skeggjaður risi, gekk til Farah og tók utan um
hana og — — — En lengra komst hann ekki.
Augu Farah leiftruðu, og fyrir þeim glúpnaði
hann.
E'n allt endaði þetta í glaumi og gleði á litlu
veitingahúsi. Þar var Farah klædd sem rómversk
keisaradrottning.
„Þessi drottningarskrúði fer þér dásamlega,"
sagði Lísa, persnesk vinkona hennar, hlæjandi.
„Þú ættir að giftast keisaranum okkar."
„Já, — því ekki það?“ sagði Farah brosandi.
DJÖRF OG SPORTLEG.
Það var ekki minni undrun í Teheran en í París
yfir vali keisarans. En þar áttu vinir Farah líka
margar minningar um hana, og ein af þeim var
atburður, sem gerðist 27. okt. 1954. Þann dag
var 35 ára afmæli keisarans, og var það haldið
hátiðlegt með mikilli viðhöfn á stóru, nýju
íþróttasvæði. Keisarinn sat í fullum skrúða á
viðhafnarpalli. Stjórn Mossadeqs var þá nýfarin
frá, og Múhameð Reza keisari hafði fengið völdin
aftur. Það var hans hlutverk að vinna að nýrri
uppbyggingu, og framtiðin blasti við. Við hlið
hans sat ung og fögur kona, Soraja, konan hans,
sem hafði gefið honum ást sína og fólkið ætlaðist
til af, að hún gæfi honum erfingja.
Eftir grasflötinni fyrir neðan pallana gekk ung
skátastúlka í átt til keisarans og bar fána skáta-
sveitarinnar, sem gekk á bak við hana í beinni
röð Fyrir neðan sæti keisarans tók hún sér stöðu,
og það var hreykin, ung stúlka, sem þar stóð.
Nafn hennar var Farah Diba. ■
Þetta var í fyrsta sinn, að Farah var í nálægð
keisarans, Því að hún var ekki af heldra fólkinu
eða aðlinum. Faðir hennar hafði dáið úr maga-
krabba, þegar hún var 12 ára, og móðir hennar
stóð þá uppi eignalaus. Farah hafði þá flutzt til
frænda sins, sem var arkítekt og hét Gothbi.
Bjuggu þau í litlu húsi utan við bæinn. Fjölskyld-
an hjálpaðist að við að kosta Farah í skóla. Fyrst
var hún í 9 ár i Heilagrar Jóhönnu skólanum i
París undir umsjá franskra nunna. Þegar hún
var 15 ára, fór hún í persnesk-franskan mennta-
skóla. Franskan var sem hennar annað móður-
mál, og burtfararprófið olli henni engum örðug-
leikum. Tíminn leið, og hún áttaði sig varla á,
að hún væri orðin fullþroska stúlka, og það
gerðu piltarnir varla heldur. Hún var samt mjög
lagleg, með þykka, svarta hárið, stór augu, ávala
höku og grannt mitti. En drengjaleg framkoma
hennar yfirskyggði það.
Það voru að vísu til speglar, en Farah notaði
þá ekki mikið. Hún var óvenjuhávaxin af pers-
neskri konu að vera, rúmlega 170 sm, og gekk
alltaf á hælalágum skóm og í stórum, víðum
peysum. Það var hentugur búningur, og lifsstarfið,
sem hún valdi sér, skyldi líka vera hagnýtt og
karlmannlegt, en hún ætlaði að verða arkitekt
eins og Gothbi, frændi hennar. Það var orðið
mjög arðvænlegt starf í Persíu núna. Eftir að
olíulindirnar komust í eigu Persa og stórkost-
legar byggingaframkvæmdir hófust í sambandi
við það, var Gothbi, frændi hennar, orðinn stór-
ríkur maður á tveimur árum. Nú átti fjölskyldan
stórhýsi úr hvitum marmara I fínasta hverfi út-
bæjarins Darous. Þar hafði Farah sitt eigið bað-
herbergi, lagt rauðum flísum.
En skólinn kallaði, og hún varð að yfirgefa
öll þessi nýfengnu lífsþægindi. Hinn 16. sept. 1959
hélt fjölskyldan henni skilnaðarveizlu með 60
gestum. En Farah hafði ýmsar áhyggjur. Allt
var orðiö dýrara í París, og frændi hennar hafði
lagt alla sina peninga og jafnvel meira til í þetta
stóra hús. Þá kom einhver með þá uppástungu,
að hún leitaði til Zahedis, tengdasonar keisarans,
en hann sá um styrki til námsdvalar erlendis.
ÞYKIR YÐUR GAMAN AÐ FARA
Á SKÍÐUM?
Svona einföld spurning varð til þess að breyta
Farab úr drengjalegri unglingsstúlku i feimna
■s'N'W'v'Vv
veita rafmótorar vorir fyrir jafn-
straum og víxlstraum. Þeir fást í
mjög miklu úrvali af ýmsum teg-
undum og gerðum, allt að 4000
kw lyftumótorar, sem bæði eru
eídtraustir og vatnsþéttir.
Gjörið svo vel að heimsækja okk-
ur þar sem við sýnum á XXIX. al-
Þjóðlegu kaupstefnunni í Poznan
12. til 26. júní 1960 í skála nr. 11.
Einkaútflyt jendur:
Polish Foreign Trade Company
for Electrical Equipment Ltd.,
Warszawa 2, Czackiego 15/17,
P. O. Box 254. Sími: 6-62-71.
Uinhoðsmenn: TRANS OCEAN BROIÍERAGE
Hólavallagötu 7.
REYKJAVÍK
2 8
yiKAK