Vikan - 02.06.1960, Blaðsíða 23
VIKAi
; Otgefandi: VIKÁN H.F.'
Ritstjóri: Ritstjórn og auglýsingar:
‘ Císli SigurSíison (ábm.) Skipholti 33.
|í<.t Auglýsi tigas t j óri: Simar: 35320, 35821. 35322. .
Asbjiirn Magnússson Pnsthnlf 149.
Framkvæmdastjóri: Afgroiðsla og drcifing:
Hilmar A. Kristjáneson Verfi í lausa.söhi kr. 15. Askrifturvérð BlaSadreifing, Míklubraut 15, slmi 15017 rr Ihvntim: liiimir h.f.
» tvt. *ii .bjn íojuii^öiCE'G tól t lOl-Si I \ I il II •un Myndamót: Myndaiuót h.f. .■■;■ ■■
I NÆSTA BLAÐI
♦ Óhappaferill atgjörfismanns. Þriðji og síðasti þáttur-
inn um Kambsránið. Hann fjallar um Sigurð Gott-
svinsson og afdrif lians.
♦ í 30 þúsund feta hæð með Flugfélagsvél.
♦ Hún annast gróðurhúsin meðan bóndinn grefur.
Viðtal við ung hjón á nýbýli í Ái’nessýslu.
♦ íslands hrafnistumenn. — Smásaga eftir Magnús
Tómasson.
♦ Rósir sem ilma og rokkar frá Bessastöðum. —
Heimsókn í Blónxa- og listmunakjallara Villijálnxs
frá Skáholti.
♦ Hver verður sumarstúlka Vikunnar. Ein síða nxeð
viðtali og íxxyndunx af þeirri fyrstxi í röðixnxi af finxm:
Hólmfríði Egilsdóttur.
♦ Húsmóðirin hefur níu líf. —
♦ Tízkan töfrar, grein eftri Matthías Jónasson.
v.v.v/
Forlagaspá
Hvað segja stjörnurnar um hæfileika yðar, möguleika og framtíð?
Viljið þér fá svar við þessu þá sendið upplýsingar um nafn, heimilis-
fang og ár, fæðingarstað og hvenær sólarhringsins þér fæddust ásamt
greiðslu í umsla merkt pósthólf 2000 Kópavogi og svarið mun berast
yður með pósti.
Lauslcgt yfirlit (sólkort) ......... kr. 50.00
Lauslegt yfirlit með hnattafstöðum . — 100.00
Spádómur fyrir 1 ár kostar ......... — 200.00
Nákvæmt yfirlit með hnattafstöðum .... — 500.00
Að gefnu tilefni tökum við fram að fæðingarsiund má helzt ekki
skakka meira en 15 mínútum.
Þór Baldurs.
.V.V.V.*
9
^tiVlnuUa í
<X
Hrútsmerkiö (21. marz—20. apr.): Þú átt von á
afar skemmtilegu tilboði, sem vafalaust væri gott að
Þiggja, en ólíklegt er að þú getir uppfyllt allar þær
kröfur, sem gerðar verða til þín i sambandi við þetta
tilboð. Gamall kunningsskapur getur orðið þér að
miklu gagni um helgina, líklega peningalega. Láttu ekki eigin-
girnina hlaupa með þig í gönur í þessu máli.
NautsmerkiÖ (21. apr.—21. mai): Þú skalt forðast
að neyta um of þeirra yfirburða, sem þú hefur yfir
kunningja þinn, þvi þú ert engu meiri fyrir það.
Stjörnurnar lofá talsverðum breytingum á högum
þínum, ef til vill verður það aðeins stutt ferðalag, en
hvað sem uppi verður á teningnum, verður það þér og öðrum
til ánægju. Reyndu að gera þér grein fyrir sjónarmiðum ann-
arra, þótt erfitt sé. Talan 7 skiptir þig miklu í vikunni.
TvíburamerkiÖ (22. maí—21. júní): Vikan lofar góðu,
og þótt þú mætir svolítilli mótspyrnu, verður það
aðeins til þess að sýna þér fram á, að enginn af fé-
______lögum þínum er fyllilega ánægður með sitt hlut-
skipti, svo að þú mátt vel við una. Ef þér þykir vænt
um einhvern, skaltu ekki vera feiminn við að votta honum
ást þína, því að eftir eina viku eða svo getur allt verið orðið
um seinan. Heillatala 5. Heillalitur rautt.
KrabbamerkiÖ (22. júni—23. júlí); Þú mátt sannar-
lega hlakka til þessa heimboðs, sem þú átt í vænd-
um eitt kvöldið, því að einmitt þetta kvöld verða
beinlínis þáttaskil í lífi þínu, þótt ekki komi það
strax í ljós. Það hefur ekki gengið allt sem skyldi
á vinnustað, en einmitt í þessari viku rætist úr því á nokkuð
skemmtilegan hátt, þótt þú eigir þar ekki hlut að máli.
Ljónsmerkiö (2If. júlí—23. ág.J: Þú mátt fyrir alla
muni ekki taka neina afstöðu í þessu máli, sem
varðar aðeins kunningja þinn. Stjörnurnar segja,
að ef þú gerir það, gæti það orðið til þess að þú
glatir vináttu þessa góða félaga. Nú mun árangurinn
af verki þínu í fyrri viku koma í ljós, og máttu vel við una.
Vertu ekki mikið á ferli eftir miðnætti fram að helgi.
Meyjarmerkiö (24. ág.—23. sept.): Það verður mikið
að gera í þessari viku, en þú þarft svo sem engu að
kvíða, þar eð þau verkefni, sem þú færð til úrlausnar
verða óvenju skemmtileg. Það slæzt upp á vinskap-
inn hjá þér og kunningja þínum af eintómum mis-
sldlningi. Reyndu að koma á sættuin, áður en það er um sein-
an. Þú færð furðulega hugmynd í vikunni og það væri hrein-
asta glapræði að hrinda henni í framkvæmd. Heillalitur blátt.
Vogarmerkið (24. sept.—23. okt.): Áform þín fá nú
byr undir báða vængi, og þótt þú sjáir ekki árang-
urinn af striti þínu í þessari viku, þarftu engu að
kvíða, vegna þess að endalokin verða betri en þú
þorðir nokkurn tíma að gera þér vonir um. Á ein-
hverjum opinberum stað kemur dálítið fyrir þig, sem kemur
þér í leiðinlega klípu, en eftir á að hyggja verður þetta aðeins
hjákátlegt, svo að þú skalt ekki taka það nærri þér.
DrekamerkiÖ (24. okt.—22. nóv.): Þröngsýni þin
verður að öllum líkindum til þess að þú ferð alranga
leið í máli, sem skiptir þig miklu. En ef þú reynir
að taka einnig til greina skoðanir annarra, gætu
endalokin orðið þér til ómetanlegs gagns og gamans.
Stjörnurnar vara karlmenn við ástleitnum konum, því að ekk-
ert mark skyldi tekið á þeim.
Bogmaöurinn (23. nóv.—21. des.): I þessari viku
gengur margt á, og ólíklegustu hlutir gerast og þótt
ekki virðist horfa vænlega um helgina, rætist mjög
skemmtilega úr þessu öllu. Þú munt hafa í svo miklu
að snúast, að þér geíst varla tími til svefns. Mundu
samt að vanrækja ekki skyldustörf þín, því að það getur kom-
ið þér illilega í koll.
Geitarmerkiö (22. des.—20. jan.): Þú mátt búast
fremur við efnalegum en andlegum hagnaði í vik-
unni, þvi að vikan verður í flestu nákvæmlega eins
og fyrri vika, nema hvað um helgina færð þú all-
skemmtilegt verkefni til úrlausnar, en ef þú hristir
ekki af Þér þetta slen, er hætt við að þú getir ekki leyst það,
og væri það miður.
Vatnsberamerkiö (21. jan.—19. feb.): Láttu nú sam-
vizku þína taka ákvarðanir en ekki vanhugsaðar
ráðleggingar kunningja þinna, ef eitthvað verður til
þess að breyta áformum þínum. Ekki skaltu taka
mark á því, sem sagt er um kunningja þinn, heldur
reyna að sýna mönnum fram á hið sanna í málinu. Þú verður
ekki mikið heima við í vikunni.
Fiskamerkiö (20. feb.—20. marz): Þú munt kynn-
ast manni eða konu í vikunni, sem verður þér ómet-
anlegur vinur framvegis. Líklegt er að allt gangi
ekki samkvæmt áætlun í vikunni, en ef þú sóar ekki
tímanum til einskis og lætur hendur standa fram
úr ermum, mun strax horfa betur. Bréf, sem þú skrifar eða
færð skiptir þig og einn kunningja þinn mjög miklu.
w
Það er ég sem er til hægri fíflið þitt.