Veðrið - 01.09.1967, Síða 5
Fœrsla kuldaskila og hugsanlegar flugleiðir leðurblakanna haustið 1964. Skýring-
ar í lesniáli.
Brunswick klukkan 61) að morgni hins 28. september og rétt undan ströndum
Labrador og Nýfundnalands sama dag, en loftstraumurinn á eftir skilunum bet
þau áfram og fer að sjálfsiigðu með sama hraða og þau.
Lítill vafi er á, að leðurblakan hefur komið með þessum loftstraumi og vind-
urinn borið hana meginhluta leiðarinnar. Hrímblakan er fardýr og flögrar suður
um Bandaríkin á haustin. Er hún talin leita allt norður til New Brunswick á
sumrin, og er rétt í fyrstu að reikna með, að þaðan hafi þessi leðurblaka komið.
Þegar kuldaskilin fóru þar yfir, kólnaði skyndilega um 6 til 12 stig frá þvi, sem
verið hafði undanfarna daga. Og þar sem loft varð alheiðskírt unt leið og vindur
snerist í vestrið og norðvestrið, er eðlilegt að losni um leðurblökurnar, sem eru
albúnar til flugs suður á bóginn.
Meðfylgjandi kort sýnir stöðu kuldaskilanna á sex stunda fresti, en færsla
þeirra hlýtur í stórum dráttum að gefa til kynna ferð leðurblakanna austur og
síðar norðaustur á bóginn. Meðalhraði loftsins á eftir skilunum hefur verið
um það bil 35 hnútar í átt til íslands, eða 65 kílómctrar á klukkustund. Oft er
ágætt flugveður eitt til tvö hundruð sjómílur á eftir kuldaskilum. Þar er regnbelti
skilanna nokkuð fram undan og skúrasvæði kalda loftsins nokkuð á eftir. En í
1) Á vcðurkortum er ávallt notaður Grcenwich mcðaltími, og svo cr gcrt hér.
VEÐRIÐ -- 41