Vikan - 26.05.1966, Blaðsíða 6
fyrir hverja
konu
... í yndis-
legum
ilmkremum
HIN SÉRSTÖKU ILMKREM FRÁ AVON.
Sex ilmtegundir — indœlar, mildar og lokkandi,
við hœfi hverrar konu. Sválandi, heit og rómantísk
áhrif. Við öll tœkifæri er ILMKREM ávallt það bezta.
Aðeins ögn á handleggi háls og herðar — kremið
hverfur, en ilmurinn verður eftir lengi — lengi.
KORTSLÚTTAÐUR MÚSKÍSENS.
Hæ, Vika!
Kvusslass er þetta eiginlega,
ha? Er alveg kortslúttað á Neon-
ljósunum á topphæðinni á þér,
eða hvað? Ég var að skoða gamla
Viku á biðstofunni hjá tann-
trekkjaranum mínum og rakst
þar á einhverja fimmaurabrand-
ara og píp út í The KINKS!
Þessa alklárustu, maður! Þú
segðir eitthvað annað, ef þú
heyrðir í gæjunum. Þú yrðir gar-
anterað alveg spól! Þetta eru
nefnilega mestu hörku stælgæj-
ar, er hingað hafa komið og eru
þeir alklárustu í músikmenning-
unni. Maður þarf ekki annað en
að sjá hárið á þeim til að fatta
það!
Og svo ert þú, rétt og slétt Vika
að bera The KINKS, þessa al-
svölustu saman við horfýsur eins
og Maju Kalls og pípfugla eins
og KARÚSÓ, svona hundasúrur,
sem syngja bara symfóníur og
drasl. Maður gæti bara næstum
haldið, að þú vildir heldur sheika
eftir einhverjum dreppúkó lög-
um eins og t.d. „Polo-nice í Ge-
dúr eftir Jóhann Sebestíu Bjakk"
eða ..sónudu eftir Brems í adúr“.
Svo heitir þetta svo geggjuðum
nöfnum eins og t.d. „Fyrri-for-
leikur-að-kantötu-í-undirheimum
-Orfeusar-í-dje-dúr-númer-tvö-í-
si e-moll -opus-níu-allegretto-fyrir
-fiðlustrengi-og-þokulúður-eftir-
Katzenjammer“. Nei, þá er betra
að biðja um „HELP“! Það er
stutt og ísí og það fatta allir, enda
er það alklárasta bítlalag, sem
gert hefur verið síðan byggðir
fæddust.
Nei, ég fatta ekki svona gæja,
sem hlusta á symfóníur og dót.
Haldið þið kannski, að það sé
eitthvað fínt? Ekki yrði ég staur-
bit þótt þið reynduð að halda því
fram, að Karúsó syngi betur en
Mick Jagger. Það væri alveg eft-
ir ykkur.
Nei, maður fattar nú fljótt fíd-
usinn hjá fína, fullorðna fólkinu,
sem finnst það svo fanta fínt og
flott að fara á fornaldarsymfón-
íupípmúsikina í Háskólabíó. Fuss
og foj! Það er ekkert, sem kort-
slúttar músiksensinn hjá manni
eins og symfóníur og Karúsóbaul.
Þeir hefðu aldrei átt að bjarga
honum af eyðieyjunni!
En hvað kom til, að þú fórst
að baknaga The KINKS. Hafa
þeir ikannski einhvemtíma talað
illa um þig? Þú hefðir átt að
skvera þér með í Austurbæjar-
bíó, þegar þeir léku þar. Það var
geggj!! Ég sló öldunginn um spír-
ur og spýtti niður eftir og redd-
aði pleisi á fyrsta bekk. Ég dobbl-
aði lögguna og tókst að skríða
upp á senu og ég gat komið við
buxnaskálm aðal-KINKSINS
með hægri löngutöng áður en
aðrir listunnendur drógu mig
niður. Ég fékk alveg geggjaða
gæsahúð, maður, og geng með
puttann í fatla og ætla að láta
kaskótryggja hann. En hugsiið
ykkur filinguna. Að vita, að
fingrafar manns er á buxna-
skálminni á The KINKS og á
hverjum morgni vakna ég kl. 8
og þegar ég ligg og hugsa til þess,
að kannski einmitt núna séu The
KINKS að klæða sig í fingrafarið
mitt, þá hríslast kaldur sviti í
gegnum merg og bein á mér.
Brjánn Bindilsson,
Silfurheimum 1.
SKIPAÐ GÆTI ÉG . . .
Póstur góður!
Ég les Vikuna oftast, og finn
sjaldan neitt athuga vert við
hana, utan einu sinni, þ.e.a.s. í
11. tbl. Vikunnar þar sem stúlka
talar um það að vinur hennar
segi ekki halló við hana þegar
þau hittast. Mér þykir þið vera
einum of frekir að segja „Láttu
strákinn lönd og leið bæði í hall-
æri og án, segðu aldrei „halló“
hvorki við hann né aðra stráka
nema bara í kveðjuskyni og
snúðu þér að því að öðlast svo-
lítið meiri þroska til ???arinnar.
Það er ekki fyrr en í fyrsta lagi
16—17 ára, sem nokkurt vit er
í því að fara að hallóa stráka eða
„vera með þeim“. Orð rétt. Ég
leyfi mér að spyrja, „hvað kemur
ykkur við þótt stúlkan sé með
strák? Ég hefði haldið að ykkur
kæmi það ekkert við og það væri
ekki í ykkar verkahring að banna
stúlkum að vera með strákum.
Þið ættuð að hugsa betur um
ykkur og ykkar en ekki vera að
skipta ykkur af því sem ykkur
kemur ekki við. Og að banna
stúlkunni að segja halló við
stráka það nær ekki nokkurri átt.
Þetta ætti ekki að sjást í lands-
ins bezta vikublaði.
Virðingarfyllst
Sveinn Guðm. Sveinsson.
g VIKAN 21. tbl.