Vikan - 26.05.1966, Side 16
Gullfoss, skipið og sklpstfðPinn
Eftir matinn fá farþegar kaffi í reyksal skipsins og þar er öllu tekið með ró því engum liggur á. X>að segir enginn FLÝTTU þér um borð í Gullfossi. Og ef það
skyldi nú koma fyrir sem aldrei hefur orðið hingað til, að einhverjum líkaði ekki vistin, þá þýðir ekkert að segja: Ég er bara farinn. Hér er lifað í sátt og sam-
lyndi og látið fara vel um sig þessa daga sem Gullfoss er á leiðinni yfir hafið. Hér er Kristján Aðalsteinsson, skipstjóri að ræða við hóp af farþegum yfir kaffi-
borði. Þarna eru meðal annars Kristján Jónsson, borgardómari. Friðjón Þórðarson, alþingismaður, Árni Garðar Kristjánsson, auglýsingastjóri Morgunblaðsins
og Sigurður Þorkelsson, verkfræðingur.
Höskuldur Skagfjörð, Hilmar Fenger og fleiri farþegar sem við ekki berum kensl á, hvíla lúin bein yfir kaffibolla að máltíð lokinni. I»arna hamast menn við að
slappa af eftir allan hamaganginn heima enda fara margir með Gullfossi gagngert til þess að hljóta þá hvíld, sem þeir vita að þeir ekki mundu fá annars staðar.