Vikan


Vikan - 29.06.1967, Síða 5

Vikan - 29.06.1967, Síða 5
<KI MA BROTNA uði fjórum, fimm eða sex bókum. Gefur þó að skilja, hversu til tekst, þar eð góðar þýðingar krefjast mikillar vandvirkni, kunnáttu og tillits- semi og eru sízt skjótunnari en frumsamin ritstörf. Þessi ósómi hendir meðal annars kunna gagnrýnendur, sem þykjast hafa vit á bókmenntum, eiga að leiðbeina skáldum og rithöfundum um vinnubrögð og kenna þjóðinni að skilja og meta skáldskap og aðra orðlist. Slík iðja er gerræði við tungu okkar og bókmenntir og sýnu hættulegra athæfi en frumsam- inn leirburður, sem ekki villir á sér heimildir. Ættu erlendir höfundar miklar skaðabætur skilið af islenzkum bókaútgefendum fyrir álitstjón vegna hneykslanlegra þýðinga, ef um þær gilti svipað mat oð aðra sölu- vöru, sem spillist í meðförum. Viðbjóðslegast er þó ef til vill, að hér eiga iðulega í hlut barnabækur, sem ættu að gleðja og göfga íslenzka æsku, en lama tungutak hennar og málskyn og rangfæra stíl og boðskap. Þvílík skemmdarstarfsemi þyrfti að varða þungum viðurlögum. Hvað veldur þessu? Tungumálakunnátta íslendinga er slík, að flestir þeirra komast sæmilega ferða sinna um lönd og álfur og heita læsir á erlendar bókmenntir. Auk þess eigum við marga snjalla rithöfunda, en þeir fást ekki við þýðingar að kalla, þó að nokkrir þeirra hafi stórvel gert í þeim efnum eins og Halldór Laxness, Gunnar Gunnarsson, Guð- mundur Gfslason Hagalín, Tómas Guðmundsson, Ólafur Jóh. Sigurðsson, Hannes Sigfússon, Hannes Pétursson, Einar Bragi, Sigfús Daðason, Geir Kristjánsson, Jón Óskar og Jóhann Hiálmarsson. Ennfremur hafa fslenzkir fræðimenn eins og Einar Ól. Sveinsson, Andrés Björnsson, Jónas Krist- jánsson, Ásgeir Hjartarson, Kristján Eldjárn og Jakob Benediktsson komið vandtúlkuðum bókmenntum prýðilega til skila í þýðingum. Nefndir menn fást hins vegar ekki við þýðingar að heitið geti. Astæðan er sú, að þessi vinna er smánarlega illa borguð nema þeim, sem starfa að þýð- ingum með hraðsaumasniði, framleiða mikið blaðsíðumagn á skömmum tfma með vélrænum hraða, kasta upp þýðingum og inn á segulbönd. Enginn, sem vinnur að þýðingum af samvizkusemi og nákvæmni, getur keppt við þá uppmælingarkappa um afköst. Útgefendur ganga á þetta lag f nirfislegu sparnaðarskyni, en gerast þannig samsekir bögubósunum um ámælisverð vörusvik og raunar siðferðilega ábyrgari. Mér er kunnugt, að umsvifamikill en hroðvirkur þýðandi snaraði á íslenzku víðfrægri bók af slíkum og þvflíkum vinnuhraða, að hann skilaði hundrað blaðsíð- um að jafnaði á viku. Arangurinn var auðvitað fyrir neðan allar hellur. en óhemjan bar áreiðanlega úr býtum góð daglaun tyrir uppmoksturlnn. Dæmi þessu Ifk munu fjölmörg, og gefur þá að skilja, hversu komið er málum. Frumsaminn skáldskapur yrði hér næsta bágborinn með sömu vinnubrögðum. Bókmenntir verða ekki til eins og þegar fé er gefinn heyruddi á garða eða sandi mokað upp á bílpalla. íslendingar mega ekki láta bjóða sér slíka óhæfu. Þetta er eins og að brjóta dýrmætan spegil. Bent hefur verið á, að verðlauna beri snjallar og vandaðar þýðingar. Vfst myndi ástæða til þess, en betur má, ef duga skal. Málið þarf að taka föstum tökum með framtíðarlausn fyrir augum. Greiða verður fyrir þvf, að skáldskapur og fræði, sem hæst ber í heimsbókmenntunum, komist á fslenzku f viðunandi túlkun. Ella verða (slendingar andlega afskekktir og einangraðir heimaalningar, þrátt fyrir velmegun, fjölmiðlunartæki, menntun og listhneigð. Þýðingarnar eru til dæmis strax orðnar vandamál sjónvarpsins, sem þó fer myndarlega af stað og vekur miklar vonir. Skýring sjónvarpsins á banameini brezka skáldsnillingsins Dylan Thomas sannar þetta. Hann var sagður deyja um aldur fram „úr eigin meðvitundar- leysi". Þvflíkt hrognamál sæmir ekki virðulegri menningarstofnun. Sjón- varpið verður að ætla sér annan hlut og meiri en þessa frammistöðu. Þýddar úrvalsbókmenntir kosta mikið í framleiðslu og verða naumast seldar með hagnaði á (slandi. Þær gegna hins vegar sama hlutverki og kennslubækur og sérhæf fræðirit. Við getum ekki án þeirra verið. Þess vegna ber ríkisvaldinu skylda til að láta sig mál þetta varða. Velja þarf af listrænni smekkvísi og sérfræðilegri þekkingu skáldskap og vfsindarit, sem þjóð okkar sé fengur að, fá úrval slíkra bóka þýtt af Framhald á bls. 28. 26. tbi. VTTTAN 5

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.