Vikan - 29.06.1967, Page 19
5
Hundi bjargað af
hjartasérfræöing i
[ Englandi var fyrir skömmu fram-
kvæmdur mjög vandasamur hjartaupp-
skurður, sem kannski hefði þó ekki ver-
ið í frósögur færandi, ef sjúklingurinn
hefði ekki verið hundur.
Hann heitir Kim, lítill dökkbrúnn rakki
af mjög blönduðu kyni. Hann var far-
inn að líta illa út, og dýralæknir fullyrti
að hann væri slæmur fyrir hjarta. Myndi
það draga hann til dauða svo fremi hann
gengi ekki undir uppskurð.
Og það var hann látinn gera. Tutt-
ugu manna flokkur dýralækna, hjarta-
sérfræðinga og hjúkrunárkvenna hófst
handa við verkið. Það tók tólf klukku-
stundir og átti sér stað í Keeleháskóla í
Staffordshire. Kim er fyrsti brezki hund-
urinn, sem gengizt hefur undir slíka að-
gerð.
Uppskurðurinn tókst eins og bezt varð
á kosið, og lifir nú Kim við beztu heilsu.
Húsbóndi hans, Francis McGuiness, slapp
líka vel. Þótt aðgerðin væri óhemju kostn-
aðarsöm, þurfti hann aðeins að borga um
fjögur hundruð krónur, samkvæmt föstu
greiðsluákvæði.
Mia Farrov, scm er aöeins tuttugu
og eins árs, scgist alls ckki hafa í
huga að skilja við hinn fimmtíu og
eins árs gamla eiginmann sinn,
Franlc Sinatra. Hún scst nú oft
í fylgd með brezka kvikmynda-
leikaranum Laurcnce Harvey, og
svo mikil brögð eru að því, að
jafnvel beztu vinir hennar vita
ekki hvað ]>cir eiga að halda.
Mia og Laurence Harvey leika
nú aðalhlutverkin í kvikmyndinni
„Gagnnjósnarinn", sem verið cr að
taka í London um þessar mundir,
— en Sinatra hefur nóg að gcra i
Ilollyvood.
— Við tölum daglega saman í
síma segir Mia Farrov, — og Frank
vissi frá upphafi að hann gekk að
eiga lcikkonu cn ekki heimakæra
húsmóður.
Hún heldur því fram að slúðr-
ið um rómantíkst samband milli
elmnar og Harvey, sé auglýsinga-
brella, gcrð til aö leiða athygli að
myndinni. Kunningjar þcirra segja
að þau hagi sér mjög siðsamlega,
en er það ekki cinmitt þannig sem
ástasambönd byrja svo oft í kvik-
myndaliciminum?
Mia í London
*■
26. tbi. yjKAN 19