Vikan - 29.06.1967, Síða 32
Ronson
RONSON
fyrir dömur
RONSON
fyrir herra
RONSON
fyrir heimilið
RONSON KVEIIUBRI
er tilvalin tækifærisgjöf
^ONSON
WORLD'S GREATEST LIGHTERS
STJORNÖSPA*
Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Taktu lífinu rólega og taktu ekki afgerandi ákvarð- anir. Þú þarft að standa í erfiðum viðskiptum. Láttu sem minnst uppskátt um fyrirætlanir þínar í náinni framtíð. Föstudagurinn er nokkuð vafasamur.
Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): Dálítið viðsjárverð vika hvað viðkemur viðskiptum, beint og óbeint. Leiddu allt slíkt hjá þér að sinni. Þu átt skæða keppinauta, sem fylgjast mjög nákvæm- lega með framkvæmdum þínum.
Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Þú hefur á tilfinningunni að þú hafir miklu meira til máianna að leggja en venjulega. Vendu þig á að tala skýrt og setja hugsanir þínar greinilega fram. Þú hefur miklar áhyggjur af ákveðinni persónu.
© Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí): Þú tekur þátt í smávegis óknyttum — farðu gætilega i þær sakir. Maður nokkur reynir að hafa upp úr þér upplýsingar, sem gætu spillt mjög fyrir þér ef þú lætur blekkjast. Þú lendir í ævintýraferð.
Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst); Framundan eru rólegir dagar og þú getur ráðstaf- að tíma þínum mikið án tillits til þarfa annarra. Þú hefur nokkrar áhyggjur af eigin fjármálum, en það eru ekki miklar líkur til heppni í því sambandi.
IÍf* Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): Sinntu störfum þínum af natni og þolinmæði. Þú ert ekki vel upplagður til að dútla og margendurtaka, en það borgar sig núna að sýna þolinmæði. Þú hefur samband við félaga þína og þið eigið góðar stundir.
& Vogarmerkið (24. september — 23. október): Vikan færir þér öryggiskennd, þú hefur nýlokið verki sem hefur hvílt þungt á þér. Þú gerir einnig góða verzlun sem þú býrð lengi að. Þú ert dálítið tímatæpur, en hefur lag á að grípa tækifærin.
Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Varastu hirðuleysi, það veldur þér tjóni. Haltu við eigum þínum, láttu ekki góða hluti drabbast niður. Fólk það sem þú umgengst mest daglega er dálítið þreytandi. Heilladagur er mánudagur.
Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. des.): Þú skalt ekki reikna með aðstoð annarra þegar þú leggur út i tvísýnu. Þú verður að treysta á sjálfan þig, ef undirbúning og þekkingu vantar, er allt til einskis. Heilladagur er föstudagur.
£ Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Það liggur einkar vel á þér og þú ferð fyrr á fætur en venjulega. Þér verður mikið úr deginum. Sífelld- ur áróður dynur á eyrum þínum en þú hristir hann skaðlaust af eyrum þínum.
Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): Forðastu allar umræður er varða tilfinningar þínar. Þú gætir komið þér í þvingandi aðstöðu. Þú stendur í miklum snúningum fyrir sjálfan þig og aðra. Þú ferð í stutt ferðalag.
Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Þú skiptir að líkindum um starf eða gerir aðra breytingu á högum þinum sem kemur þér til að hugsa öðruvísi og leggja þig meira fram. Þú notar frítimann til að vinna heima við.
32 VIKAN
26. tbl.