Vikan


Vikan - 05.10.1967, Síða 20

Vikan - 05.10.1967, Síða 20
VflR HflNN UFLÁTINN í síSasta blaSi var sagt frá óhugnanlegu afbroti, sem fram var í Bretlandi. James Hanratty var fundinn sekur um þaS og tekinn af lífi í apríl 1962, enda þótt hann neitaSi sekt sinni til hins síSasta. Hér heldur greinin áfram og segir frá Peter Alphon, sem boSaSi til blaSamannafundar og játaSi á sig afbrotiS. Morguninn þann fjórða apríl 1962 var svo hinn hálfþrí- tugi smáþjófur, James Hanratty, hengdur í Bedfordfangelsi fyrir morðið á John Gregsten. Hann neitaði sekt sinni til hins síðasta. Þeir, sem síðast hittu hann í dauðaklefanum áður en hann gekk síðustu skrefin í lífi sínu, voru tveir kaþólskir prestar. Með tár í augum veittu þeir honum síðustu smurninguna. Á eftir kváðust þeir sannfærðir um sakleysi hans. — Þetta hefði ekki skipt svo miklu máli ef Hanratty hefði ekki verið kaþólskur, sögðu þeir við blaðamenn. — En játi kaþólikki ekki allar syndir sínar áður en hann deyr, fer hann beina leið til helvítis. En Hanratty stóð fast á því, sem hann hafði sagt fyrir réttinum. Ekki gat hann neitt grætt á því, þar eð ekkert gat lengur komið í veg fyrir líflát hans. Hann hefði því ekki staðið neitt verr að vígi, þótt hann hefði játað allt fyrir okkur. En þegar kvöldblöðin höfðu dreift fréttinni um aftökuna um England, drógu flestir þar í landi andann léttar. Nokkrir voru þó ekki ánægðir, og þeirra fremstur í flokki var verjandi Hanrattys, Michaei Sherrard, þrjátíu og þriggja ára að aldri. Hann hafði reynt að hindra dauðadóminn á þeim forsendum, að ekki væri fullkomlega sannað að Han- ratty væri A 6-morðinginn. En dómstóllinn hafði ekki einu sinni viljað endurnýja réttarrannsóknina. Síðan hafði hann ásamt foreldrum Hanrattys og tuttugu og þrjú þúsund manneskjum öðrum, sem voru gegn fram- kvæmd dauðadómsins, skrifað undir náðunarbeiðni. — En þeirri beiðni var einnig vísað frá. Butler innanríkisráðherra, sem tók ákvörðun í því máli, skrifaði föður Hanrattys: — Þvi miður verð ég að gefa til kynna, að í máli sonar yðar hafa ekki komið fram neinar þær afsakanir honum til handa, að þær réttlæti náðun hans. Nokkrum dögum síðar, þegar ljóst var orðið að Butler hafði vísað náðunarbeiðninni á bug, kom dálítið fyrir. Eitt vitnanna við réttarhöldin, Charles „Dixie“ France, framdi sjálfsmorð. Þann sextánda marz 1962, nokkrum vikum áð- ur en Hanratty var tekinn af lífi, fannst hann dauður í her- bergi sínu; hafði skrúfað frá gasinu. „Dixie“ France hafði verið einn af beztu vinum Hanratt- ys, en engu að síður vitnaði gegn honum við réttarhöldin. Hann hafði skýrt svo frá, að dag einn hefði Hanratty sagt við hann: — Ég hef fundið góðan stað til að fela hluti á. Undir sæti á einhverjum strætisvagninum. Þar leitar enginn. Þetta varð eitt öflugasta vopn ákærandans gegn Hanratty. Hreingerningamaður nokkur hafði einmitt fundið skamm- byssuna, sem Gregsten var myrtur með, undir sæti í stræt- isvagni tveimur dögum eftir morðið. Frú Carol France sagði við blaðamenn daginn eftir sjálfs- morð manns síns: — Dixie hefur hegðað sér næsta undarlega allt frá því að Hanratty var handtekinn. Hann hefur verið taugaóstyrk- ur og órólegur. Það var eitthvað sem þjáði hann, en hann neitaði að segja hvað það var. En ég er sannfærð um að sjálfsmorð hans stendur í sambandi við A 6-morðið. Þessi atburður kom samt sem áður ekki af stað nýrri rannsókn af lögreglunnar hálfu. Frá sjónarmiði Basils Acotts, lögreglufulltrúa, sem handsamað hafði Hanratty og komið honum í gálgann, var sögunni um A 6-morðið lokið. Nákvæmlega ári eftir aftökudag Hanrattys, þann fjórða apríl 1963, var dyrabjöllunni hringt hjá foreldrum Hanratt- ys. Móðir hans lauk upp. Úti fyrir stóð miðaldra maður. Framhald á bls. 37. 20 VIICAN 40- tbl-

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.