Vikan - 05.10.1967, Síða 26
HVERNIG
A METSÖLUBÖK
AÐ VERA?
Raonar Jónsson
forstjóri Helgafells:
Sniðugheit í auglýs-
ingum og almennar
lygar
Þótt ég eigi að heita bókaút-
gefandi, vonast ég til að vera
ekki með öllu réttur aðili til að
svara spurningu af þessu tagi.
Ég hef aldrei keppt að því marki,
hvorki um umbúðir né innihald,
að fá gert metsölubækur. Og þess
vegna hef ég aldrei reynt að
finna upp resept fyrir þess kon-
ar sálarfóður.
Ég hef þó, engu síður en aðr-
ir, gefið út margar metsölubæk-
ur, en það eru slys, — skýring-
in sú, að því er ekki að treysta
fremur en öðru í þessari völtu
veröld, að góð og sígild bók nái
EKKI metsölu, eins og þær bæk-
ur, sem samdar eru og gefnar út
til að þóknast f jöldahugmyndum
um ástalíf, ónáttúru, lækna, kvik-
myndaleikara og boxara.
Aðalástæðan fyrir því, að sí-
gild verk ná þó tíðum ekki til
fjöldans fyrr en seint og síðar
meir og það á þessari miskunn-
arlausu listkynningaröld, er held
óg sú, að hinir menningarlegu
tengiliðir milli skáldsins og les-
andans, blaðamenn og þó eink-
um gagnrýnendur, láta ekki
nægilega að sér kveða. Þeir lifa
jafnvel til að fara I hálfgerða
fýlu gagnvart róttækum og um-
deildum verkum.
Útvörp og sjónvörp gera auð-
vitað engan greinarmun á góðu
og illu. Þar er það magnið sem
gildir, eins og í vegavinnu.
Þetta er auðvitað ekkert svar
og hálfgerður útúrsnúningur, en
það er vegna þess, að ég veit
hreinlega ekki framyfir það sem
hér er sagt, hvaða „kosti bók þarf
að uppfylla“ til að geta orðið
metsölubók. Það er ekki einu
sinni kostum af neinu tagi að
þakka, heldur sniðugheitum í
auglýsingum og almennum lyg-
um eða þá að tiltekinn hand-
verksmaður hefur saumað á bók-
ina kápu og snyrt hana til út-
stillingar.
Valdimar
Jóhannsson
forstjóri Iðunnar:
Bókaútgáfa á fslandi
er yfirskilvitleg
Bókaútgáfa á íslandi er yfir-
skilvitleg — alveg yfirskilvitleg.
Það er margsannað mál, að það
er ekki hægt að reka bókaútgáfu
á íslandi. Smæð þjóðarinnar
kemur í veg fyrir að þetta standi
undir sér, enda er ekki hægt að
bera saman 150—200 þúsund
manna þjóð eins og okkur og
svo til dæmis Bretland og ensku-
mælandi lönd yfirleitt. — Þau
prenta ekki aðeins fyrir sjálfa
sig, heldur allan heiminn.
Samt verða sumar bækur met-
sölubækur einnig hérlendis, og
hverjar það eru, það er yfiisskil-
vitlegt — alveg yfirskilvitlegt.
Gils GuOmundsson
forstjóri Bókaútgáfu
Menningarsjóðs:
Metsölubók þarf að
vekja athygli
kvenþjóðarinnar
Til þess að ná metsölu á ís-
landi þarf bók að vekja athygli
langt út fyrir þann hóp, sem les
bókmenntir að marki. Hún þarf
að höfða til þeirra, sem lesa sér
til afþreyingar, án tillits til list-
gildis. Það eitt skiptir máli í
þessu sambandi, að bók þyki
forvitnileg fyrir einhverra hluta
sakir og veki almennt umtal. —
Sjálfsævisaga manns, sem hefur
verið kvæntur tíu sinnum, er
vænleg sölubók. Bókin þarf um-
fram allt að vekja athygli kven-
þjóðarinnar. Bók, sem er um-
ræðuefni í hverjum saumaklúbb,
hefur skilyrði til að ná metsölu,
aðrar bækur ekki.
Allir bókaótgefendur hafa velt fyr-
ir sér þeirri spurningu, hvernig bók
þurfi að vera til þess að hún selj-
ist vel. Hér velta ótta bókaútgef-
endur þessari spurningu fyrir sér
— hver með sínu móti.
Gunnar Einarsson
forstjóri Leifturs:
Áróður og auglýsingar
skipta mestu máli
Þótt skömm sé frá að segja, þá
er það hvorki efni né útlit bók-
arinnar, sem skiptir máli hvað
snertir sölu hennar. Það sem
máli skiptir er áróður þeirra
manna, sem að bókinni standa.
Þetta hefur margsinnis sýnt sig.
Og eins og liggur í augum uppi,
þá er aðstaða manna á Islandi
mjög misjöfn til slíkra aðferða.
Auglýsing krefst fjármagns, og
það eru ekki allir sem hafa það.
Ég ætti að vera farinn að
þekkja þetta. Ég hef fengizt við
útgáfustarfsemi síðan 1929; hef
sennilega gefið út fleiri bækur
en nokkur annar íslendingur.
Því miður er það svo, að bæk-
ur sem maður byggir á vegna
þess að þær eru góðar, bregðast
algerlega hvað eftir annað. Hins
vegar rjúka dægurflugur upp úr
öllu valdi, bækur, sem svo eru
gleymdar eftir nokkur ár. Slík-
ar bækur verða metsölubækur.
Hitt er rétt, að þessar betri bæk-
ur seljast á löngum tíma, en met-
sölubækur verða þær aldrei.
Ég endurtek, að til þess að bók
verði metsölubók, þarf að aug-
Iýsa, og til þess að auglýsa þarf
mikið fjármagn, því miður. En
góðar bækur eru enn að seljast,
þegar metsölubækumar eru
löngu gleymdar.
26 VIKAN 40-.tbl-