Vikan


Vikan - 05.10.1967, Page 39

Vikan - 05.10.1967, Page 39
^úklega.. notale&a Þetta er nýja Philips rafmagnsrakvélin með þremur kömbum. Atján hárskörp blöð leggjast mjuklega að húðinni og snúast í 5000 hringi á mínútu. Þau gefa mjúkan og notalegan rakstur. Rakstur fyrir daginn. Þægilega. A mettíma. Skoðið þessa nýju rafmagnsrakvél. Reynið hana. Þér getið neitað yður um flest annað en góða rakvél - Philips rafmagnsrakvél Aðrar tegundir af Philips rafmagnsrakvélum ætíð fáanlegar sekur. Að minnsta kosti þótti honum sem málið hefði ekki ver- ið upplýst nægilega.* Kvöld nokkurt, þegar hann sat heima, hringdi hjá honum síminn. Rödd ókunnugs manns sagði: — Ég aðvara yður, Russel lá- varður. Skrifið ekki þessa bók. Það er ekki að vita hvað því kann að fylgja. Þegar Russel lávarður spurði hver talaði, var honum aðeins svarað með hlátri. Síðan var lagt á. Símaógnanirnar gegn lávarð- inum héldu áfram. Ókunni mað- urinn var vanur að hringja seint að kvöldi, og hverju sinni neit- aði hann að segja hver hann væri. Að lokum sneri Russell lá- varður sér til lögreglunnar. Og til að fá að vera í friði varð hann sér úti um nýtt, leynilegt síma- númer. Að lokum tókst lögreglunni að þefa uppi þann, sem hringt hafði. Það var Peter Alphon, sá sem fyrstur hafði verið grunaður um A 6-morðið. Hann hafði setið í fangelsi tíu daga nokkrum vik- um áður en Hanratty var grip- inn. Ástæðan til að lögreglan grun- aði hann, var að hann hafði bú- ið á Vienna Hotel í Lundúnum. í herbergi nokkru þar fundust mörg tóm skothylki í tösku. Skot- hylkin voru talin vera úr morð- vopninu. Alphon harðneitaði að hafa komið nálægt glæpnum, og þegar honum að lokum tókst að koma fram með fjarvistarsönn- un — hann fullyrti að hann hefði verið hjá nokkrum kunningjum sínum nóttina, sem morðið var framið — varð ekki hjá því kom- izt að sleppa honum. Ástæðan til þess, að grunur lög- reglunnar beindist þá að Han- ratty, var sú staðreynd, að einn- ig hann hafði búið á Vienna Ho- tel. f vor leið var Peter Alphon ákærður fyrir símaógnanirnar gegn Russel lávarði. f maíbyrjun átti að leiða hann fyrir dómstól. En hann mætti ekki við réttar- höldin. Þess í stað hafði hann farið til Parísar. Föstudaginn tólfta maí í vor hringdi hann í frönsku blöðin og fréttaritara ensku blað- anna í borginni og sagði: — Ég hef fram að færa til- kynningu, sem veírja mun ó- hemju athygli. Þið eruð vel- komnir á blaðamannafund á hó- telið, þar sem ég bý, klukkan þrjú síðdegis. Fréttin um blaðamannafundinn náði líka til Scotland Yard. Þeg- ar blaðamennirnir komu á vett- vang um þrjúleytið, voru því tveir enskir leynilögregluþjónar meðal þeirra. Þeim var vísað inn í herbergi, þar sem flöskur stóðu á borði, og fengu sér að drekka meðan þeir biðu þess, að Alphon sýndi sig. Að lokum kom hann, klæddur snyrtilegum, ljósum fötum. Hann settist á stól, kvaddi sér hljóðs og mælti: — 1962 var James Hanratty hengdur fyrir A 6-morðið. Hann var líflátinn saklaus. Það veit ég með vissu, því að sjálfur er ég morðinginn. Það var ég sem skaut John Gregsten til bana og særði Valerie Storie. Blaðamönnunum hefði ekki brugðið meira, þótt sprengju hefði verið varpað á meðal þeirra. Mennirnir tveir frá Scot- land Yard voru iðnastir við að skrifa hjá sér. Þegar mesti æs- ingurinn var um garð genginn, fór Alphon að segja sína ótrú- legu og hræðilegu sögu. — Ég gerði þetta fyrir pen- inga, sagði hann. — Ég fékk fimm þúsund pund fyrir þetta hjá manni noklcrum, sem ég nefni ekki. Við getum kallað hann herra X. Við hittumst í fyrsta sinn 1959 á krá í Lundúnum. Þá kom í ljós, að skoðanir okkar voru líkar um margt. Meðal annars sýndi sig, að okkur þótti báðum skömm að því, hve margt gift fólk heldur framhjá. Og hvað það snertir er ég enn sama sinnis; mér geðj- ast ekki að þeim siðferðilega slappleika, sem einkennir þjóð- félagið nú á dögum. Það var herra X, sem fyrst minntist á John Gregsten við mig. Hann sagðist vita, að Greg- sten héldi framhjá með stúlku, sem ynni með honum. Dag einn sagði herra X við mig: — Fyrst þú ert svona dugleg- ur, ættir þú að geta látið hann hætta þessu? — Ég get næstum hvað sem er, svaraði ég. — Til dæmis notað skamm- byssu? — Auðvitað, það er enginn galdur. Síðan fór hann að tala um peninga, bauð mér fimm þúsund pund og afhenti mér þau. Þau voru lögð inn á reikninga mína í fimm eða sex bönkum í októ- ber 1961, nokkrum mánuðum eftir að morðið var framið. Maðurinn sem útvegaði mér skammbyssuna var Charles „Dixie“ France, sem líka var kunningi James Hanrattys. Hann afhenti mér byssuna um viku fyrir morðið. hafði aldrei skotið áður og neyddist því til að æfa mig dÍHtið. Ég skaut nokkrum skotum, og lét Dixie hirða tómu skothylkin. Á morðdaginn, tuttugasta og annan ágúst 1961, horfði ég fyrst á hundaveðhlaup í Slough. Það 40. tbi. VIKA'N 39

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.