Vikan


Vikan - 05.10.1967, Qupperneq 44

Vikan - 05.10.1967, Qupperneq 44
Skúlaritvélin heitir BROTHER Létt, i'alleg, sterk. 44 lyklar, ásláttarstillir, svart og rautt lit- arband, stálkápa og leðurlíkis- taska. Sjálfskipting á litarbandi. Lykill í borðinu leysir út ef tveir eða fleiri stafir festast uppi. Fullkomnasta, fallegasta og ódýrasta skóla- og ferðaritvélin á markaðinum. ábyrgð. Verö Kr. 2750- ORGARFELL HF- Skólavörðustíg 23. vinnu. Þú lærir aldrei nóg. Hvað finnst þér um snjóinn? Hann hló. — Ég hef svo sem aldrei séð neitt aðlaðandi við hann, — en snjókornin verða að vera lífleg. — Klukkan á veggnum sló tvö högg. Hann leit upp. Nánast hræddur. — Hvað er þetta sagði hann, — er klukkan orðin svona margt? Hann stóð upp. — Ertu að fara? — Já, ætli það sé ekki bezt. Ég veit ekki, hvert ég er að fara, en kannske geri ég hreint fyrir mínum dyrum. Það er líklega bezt. Gamla konan sagði ekkert, en fór inn í herbergi sitt. Hún kom aftur með nokkra peningaseðla, og stakk þeim í lófa hans. — Ég veit ekki hvort þú þarft þetta en kannske geta þeir hjálpað þér, — kannske ekki. En þú lítur út fyrir að þarfnast þeirra. Hann horfði til skiptis á hana og peningana. Hann átti ekki orð til. — En það væri gaman ef þú kæmir einhvern tímann aftur og heilsaðir upp á mig, sagði hún. Hann kinkaði kolli. — Það var reglulega gott að tala við þig, sagði hann um leið og hann sneri sér við. Þú ert eina manneskjan sem ég hef talað við lengi og eina manneskjan, sem nokkurn tíma hefur skilið mig. Þegar gamla konan hafði lok- að dyrunum á eftir honum, hristi hún sorgmædd hvítt höfuðið. — Að heyrnartækið mitt skuli hafa bilað, sagði hún við sjálfa sig, — ungi maðurinn hafði svo mikið að segja, og ég heyrði ekki orð. Dick Van Dyke Framhald af bls. 7. Broadway, fyrir sjónvarpsþætti sína og síðast en ekki sízt fyrir Mary Poppins, eins og flestir vita. Fyrir um það bil fjórum órum voru þau hjónin viðstödd brúðkaup, sem snart þau djúpt. Brúðhjónin voru vinir þeirra og Marge og Dick komust við af helgi þessarar stundar og alvöru skuldbindingar- innar milli þessara tveggja mann- vera. Nóttina þar á eftir sátu þau, töl- uðu saman og rifjuðu upp gamlar minningar, fram undir morgun, — (það var raunar ekkert ný bóla, þau eiga það ennþá til að sitja masandi mestan hluta nætur). Á þessum árum hefur verið ná- in vinátta milli Van Dyke hjónanna og prestshjónanna Carolyn og Charles Tucker Brown. Brown hefur lengi verið þekktur æskulýðsleið- togi. Marge og Dick sögðu séra Brown frá brúðkaupi sínu, sem þau líktu við það að vera gefin saman i hjónaband í einum af sýningar- gluggunum hjá Macy, og þau sögð- ust alltaf hálf skammast sín fyrir það. — Hversvegna endurtakið þið þá ekki þessa athöfn, á þann hátt sem ykkur langar til? spurði séra Brown. Um það leyti sem Marge og Dick áttu átján ára brúðkaupsdag, fluttu prestshjónin til San Francisco, þar sem séra Brown fékk betra brauð. Marge og Dick söknuðu þeirra mik- ið og ákváðu að fara í heimsókn til þeirra, og í beinu framhaldi af þeirri ákvörðun, datt þeim í hug að láta séra Brown gefa sig sam- an að nýju. Nú þurftu þau ekki að fá neitt gefins. Séra Brown fram- kvæmdi athöfnina í kirkju, sem söfnuður hans átti. — Þetta var dásamleg stund, nú skildi ég alvöruna, sem þetta heit felur í sér, sagði Marge. Dick kinkaði kolli samþykkjandi, en gat svo ekki setið á strák sín- um. — Það bezta er, að nú kemur ekkert mér á óvart, ég vissi, að hún hrýtur . . . — Og ég vissi að hann æpir upp úr svefni, sagði Marge. — Við hefðum gjarnan viljað að börnin hefðu verið viðstödd í kirkjunni, sagði Marge, — en við vildum vera ein á brúðkaupsferðinni. Þegar þau komu heim til sín, var það glaðvær hópur, sem tók á móti þeim. Eldri börnin sögðu, eftir að þau höfðu virt foreldrana fyrir sér, að þau gætu ekki séð neina breytingu á þeim, en Carrie Beth, sem er fjögurra ára og nútímabarn, sem hefur heyrt allt mögulegt um hjóna- bönd og hjónaskilnaði, sagði: — Eg elska ykkur bæði, og ég er voða fegin að þið komuð aftur heim tii að búa með okkur. Van Dyke hjónin eru ekkert að hvetja vini sína til að gera slíkt hið sama, en þau eru mjög ham- ingjusöm. — Og svo er þetta töluvert ódýr- ara í annað sinn, þá þarf maður ekki að kaupa leyfisbréf, segir Dick . . ☆ Svona fer allt... Framhald af bls. 15. honum. Oft hafði hann komið iil hennar eins og barn, stundum bar svo lil enn. Þann Björnson elskaði hún. Eitt sinn sem oftar var hún gestur hans, er hann hafði um sig hirð aðdáenda, blöskraði henni þá sjálfsdýrkun hans og sagði: „Þarna situr þú Björnson og ert hrærður af eig- in ágæti og mikilleik!" Árið 1867 kom út eftir hana smásaga — Saga ömmu minnar -— í safnriti, sem norskir höf- undar stóðu að. Hún vakti geysi- lega athygli. Taldi Björnson — og raunar allir, sem til þekktu — að söguhetjur væru hann og skáldkonan sjálf. Sagan fjallar um 33 ára gamla ekkju, 'sem tryllist af lífsást, er hún verður á vegi ungs manns. Lýsingin kemur vel heim við Björnson. hér eru þrædd samtöl, kafli birt- ur úr bréfi, ástarfari lýst. f trún- aðarbréfum, sem birt eru áratug- um síðar, játar hún, að sagan sé þeirra, sönn frásögn um samband þeirra. —- Björnson trylltist við bersöglina, varð um hríð svarinn andstæðingur hennar. Stórskáldin norsku hlutu að skyggja á frú Thoresen. Hún gaf út fjölda bóka, og nutu sumar þeirra mikilla vinsælda. Nokkuð IA /l/^Nfl^ 1' - ISKARTGRIPIRl SIGMAR & PÁLMI Hverfisgötu 16A, sími 21355 Laugaveg 70 - Sími 24910 . 1 i 44 VIKAN 40- tbl-

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.