Alþýðublaðið - 14.02.1923, Page 2
2
ALÞYÐ.UBLAÐIÐ
Skattaframtalið.
Friuntali til skatts á að vera
'okið á fimtudaginn í þessari
viku, og skulu þá skattskýrslur
vera komnar útfyltar og undir-
skrifaðar á skattstofuna á Lauf-
ásveg 25. Má leggja þær í bréfa-
kassa við dyrnar. Afgreiðslutími
á skattstoíunni er frá kl. 1 til 4
daglega og reyndar líka frá 10
til 12 f. h. þessa síðustu daga
þangað til fresturinn er útrunn-
inn, og eru þá veittar leiðbein-
ingar eftir því sem ráðrúm leyfir
við útfyllingu skýrslnanna. Menn
ættu sem mest að reyna að fylla
út skýrslur sínár sjálfir, þvf að
skattsto'an kemst auðvitað ekki
yfir það alt á sfðustu stundu. --
Ekki dugar að s-kila skýrslunum
auðum. Ef ekki eru eignir eða
tekjur, þá verður að skrifa ein-
hvers st ðar á skýrsluna réttar
upplýsin ar um hvernig fram-
telj mdinn fái viðurværi. Óundir-
skrifaðar skýrslur eru ekki teknar
trúanlegar. — Sjómenn, hjú og
aðrir sem fá frítt fæði eiga að
setja hvað lengi af árinu þeir
hafa haft það, eins og skýrslan
segir til. Húseigendur verða að
skúfaskýrt götunúmer á húseign
sinni, en virðingarverðið þurfa
þeir ekki að setja. — Yfirleitt
er vandalaust að fylla út skýrsl-
una ef menn lesa hána vel.
C.
Þingmálafundurinn
á Akurejri.
(E'tir sfmtali).
Morgunblaðið gat fyrir nokkru
um — og Vísir át það eftir
þvi, — að fámennur og ómerki-
legur þingmálafundur hefði verið
haldinn á Akureyri, í kjördæmi
Maguúsar Kristjánssonar lands-
verzlunarforstjóra, og hefði þar
þá verið samþykt að leggja niður
Landsverzlunkta.
Eins og vænta mátti, eru þetta
ósannindi fr’á upphafi til enda.
Fundurinn var mjög fjölmennur,
troðfult samkomuhús bæjarins,
og voru þar gerðar margar og
merkar ályktanlr um landsmál,
allar gersamlega á móti auðvalds-
stefnu Víds og Morgunblaðsins.
t. d. víttar aðgerðir síðasta þings
í bannmálinu og samþykt að
herða á banniögunum. Vítt und-
anlátssemi ríkisstjómar gagnvart
íslandsbauka og heimtuð nákvæm
rannsókn á tryggingum þeim,
sem bankinn hefði gefið fyrir
ríkis.*jóðslániuu til hans, og sam-
þykt, að landið ætti ekki að
gerast hlu hafi I þeim banka.
Ennfremur krifist stórum skarp-
ara eftirlits með því, að embætt-
ismenn landsins gerðu skyldu
sína. Loks var samþykt að skora
a alþingi að hlynna sem mest
að öllum ríkisrekstri, sem arð-
vænlegur væri fyrir landið, þar
með talin Landsverzlunin með
tóbak og steinolíu, og enn frem-
ur, að sá innflutningur, sem yrði
á vfnum tii lyfja og iðnaðar, yrði
lagður undir þá sömu verzlun.
Vísir og Morgunblaðið ættu
að birta fundargerðiná og biðjast
afsökunar, þegar þeu eru þannig
enn einu sinni staðin að opin-
berum ósannindum.
Askorun.
Ut af því, sem stendur í »Vísi«
í gær, að >Alþýðublaðið« háfi
»hallað mjög réttu málit í frá-
sögnum sínum um »prentaraverk-
fallið«, sem hann kallar svo,
þótt réttara sé að kalla það
verkbann, skora ég hér með á
ritstjóra blaðsins að segja til, í
hvaða atriðum það hafi átt sér
stað. Geri hann það ekki skýit
og skorinort, verður að líta svo
á, sem er, að þessi orð hans
séu staðlausu stafir og moldviðri
f augu almennings.
13. febrúar 1923.
Hallbfórn Hálldórsson.
Erlend símskeyti.
Khöfn, 12. febrúar.
Deflan við Tyrki.
Frá Lundúnum er sfmáð: Her-
stjórinn í Smyrna og foringj-
arnir á herskipum bandamanna
hafa orðið ásáttír um að láta
Signrðnr Magnnss.
læknir frá Patreksfirði, tekur að
sér alls konar tannlækningar og
tunnsmíðar. Til viðtals á Upp-
sölum frá io1/^ —12 og 4—6.
Sími 1097.
Nýja Ijósinyndastofan í
Kirkjustræti 10 er opin sunnud.
11 — 4, — alla virka daga 10 — 7.
Komið og reynið viðskiftin.
Verðið hvergi lægra.
Þorleifur og OsJcar.
Á Bergstaðastíg 2 sr ódýrast
og bezt gert við skófatnaÖ (bæði
leður og gummi). ,
Ingibergur Jónsson,
sitja við svo búið, þar til deilan
um dvalarleyfi skipanna hefir
verið útkljáð miili stjórnarvaldi
ríkjanna. Þingið (brezka) kemur
saman á morgun til þess að
kveða á um stefnuna í utan-
ríkismálunum.
Verðtalan þýzka.
Frá Berlín er símað: Verð-
talan þýzka fyrir febrúar er 5967.
lltintgcn er látinn.
Nanð ungarráðsta fanlr Frakka.
í’regnir frá Dusseldort stað-
festa það, að Frakkar eetli sér
að neyða Þjóðverja til þess að
kaupa óunnar vörur franskar,
og sé jafnframt bannaður allur
útflutningur úr tökusvæðunum
til annara hluta Þýzkalands.
Fiimar og áfcngisbannið.
Frá Helsingfors er símað:'
Þingið hefir felt frumvarp um
nýja þjóðaratkvæðagreiðslu um
áfengismálið.
Frakkar viðurkenna ráð-
stjórnina.
Frá París er símað: Frönsk
íjármálanefnd leggur í dag af
stað til Rússlands. Búist er við,
að Frakkar viðurkenni bráðiega
ráðstjórnina rússnesku.